Færsluflokkur: Bloggar
Hún stingur í stúf.... þessi.... í jólabókaflóðinu.
![]() |
Bók fyrir barnaníðinga tekin úr sölu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 11.11.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
"Skrímslið í Bolzano", fangavörður úr SS-sveitum, ... þarf að ræða það eitthvað frekar?
Tja,... í mínum huga vakna nokkrar spurningar. Fangavörðurinn Michael Seifert, hefur verið rétt um tvítugt þegar þessir atburðir áttu sér stað. Grimmdarverkin voru hryllileg á báða bóga og hatrið og heiftin var hluti af eðlilegu uppeldi ungs fólks.
Hver var bakgrunnur fangavarðarins unga? Hver var staða hans í SS-sveitunum? Hvenær var vitnisburðurinn gegn honum skráður fyrst? Er möguleiki að vitnin fari mannavillt eða að ákæruliðirnir séu uppsafn voðaverka sem fangar urðu vitni að og sameinuðu í einum manni sem náðist. Eina manninum sem gat náðst, vegna ungs aldurs.
Ég þekki ekki mál Michaels Seifert en ég efa í sjálfu sér ekki að hann hafi átt þátt í voðaverkum í Bolzano fangabúðunum. Mál hans virtist gleymt og grafið þegar skjöl um hann fundust af tilviljun árið 1994.
Nokkru áður en Seifert var dæmdur árið 2000, hafði annar tveggja yfirmanna búðanna verið sýknaður vegna skorts á sönnunum.
![]() |
Skrímslið í Bolzano" lést á sjúkrahúsi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 7.11.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Hugsið ykkur ef fjórir menn kæmu inn í troðfulla Hallgrímskirkju og hentu hver um sig handsprengju inn í fjöldan. Og svo væri ykkur sagt að verknaðurinn væri pólitísk yfirlýsing.
Það er erfitt að setjast niður til að ná samkomulagi við pólitísk öfl sem nota þessa samningatækni. Það virðast litlar líkur á málamiðlunum.
Hingað til hafa mótmælaraddir "hófsamra múslima" á vesturlöndum, gegn svona ofbeldi, verið afskaplega hjáróma, einmitt þegar þeir ættu að fara fremstir í fordæmingunni og steita hnefann framan í myndir af ódæðismönnunum, traðka á þeim og brenna.
Munum við sjá fjöldamótmæli múslima í Evrópu og Bandaríkjunum, gegn þessum ofbeldisverkum sem framin eru í nafni trúar þeirra?
Það er ólíklegt.... en kannski einhvern tíma.... vonandi.
![]() |
Yfir 70 létust í árásum á moskur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 6.11.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Íslendingar ætla sér að stunda hvalaskoðun nú sem endranær, enda vaxandi atvinnugrein. Ef það þarf að "hlúa að" greininni á einhvern sérstakan hátt, þá þarf það að vera eftir öllum jafnræðis og sanngirnisreglum og ekki skaða aðra atvinnurekendur.
Íslendingar ætla sér að stunda hvalveiðar nú sem endranær, enda vaxandi atvinnugrein. Ef það þarf að "hlúa að" greininni á einhvern sérstakan hátt, þá þarf það að vera eftir öllum jafnræðis og sanngirnisreglum og ekki skaða aðra atvinnurekendur.
Hvalveiðar og hvalaskoðun eru gjörólíkar atvinnugreinar og báðar heillandi á sinn hátt. Það hefur sýnt sig, bæði á Íslandi og í Noregi, sem eru tvö helstu hvalaskoðunarlöndin í N-Atlantshafi, að hvalaskoðun hefur haldið áfram að aukast, "þrátt fyrir" hvalveiðar í viðkomandi löndum. Þessi þróun er þvert á fullyrðingar hvalverndunarsinna og margra þeirra sem vinna í greininni.
Flestir ef ekki allir eigendur hvalaskoðunarfyrirtækja, vilja stöðva allar hvalveiðar. Þeir vilja stöðva gjörólíka atvinnugrein, jafnvel þó þeirra eigin sé í örum vexti!
Einhvernveginn gengur þetta ekki upp, því það getur ekki verið á faglegum forsendum sem þessir rekstraraðilar eru á móti hvalveiðum.
Þessi afstaða þeirra er auðvitað á sömu tilfinningalegu nótunum og rök International Fund for Animal Welfare og hafa ekkert með fagmennsku að gera. Það er alið á ýktum myndrænum slagorðum, eins og: Stöðvið grimmilega hvalaslátrun Íslands. Og svo er gefið í skyn að þessi dýr séu í útrýmingarhættu, en það er auðvitað fjarri lagi. Það er verið að tala um að veiða örfá dýr úr stofnum sem telja tugi þúsunda einstaklinga.
Sumir segja að verið sé að fórna meiri hagsmunum fyrir minni, og er þá vísað til viðskiptahagsmuna stórra íslenskra fyrirtækja í Evrópu og Bandaríkjunum, sem kunna að vera í hættu vegna þrýstings frá svona "Trjáföðmurum"
Það er dálítið merkilegt að þeir sem hafa mestar áhyggjur af þessum "tekjumissi", er fólk sem stendur utan þessara viðskiptahagsmuna. Þetta fólk kemur jafnvel frá umhverfisverndarsamtökum og hvalaskoðunarfyrirtækjum. Ekki hefur orðið vart efnahagslegrar dýfu í útflutningsverðmætum Íslendinga, þegar hæst heyrist í þessu fólki. Eflaust geta einstaka fyrirtæki staðfest tímabundinn samdrátt í sölu á afurðum sínum, þegar öfgasamtök gera sérstaka árás á fyrirtæki þeirra, jafnvel með fulltyngi myndatökumanna fréttastofanna. En svo líður þetta hjá, jafn harðan.
![]() |
Undirskriftir gegn hvalveiðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 5.11.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Það er tvennt sem ég styrki á hverju einasta ári, en það er Neyðarkall björgunarsveitanna og SÁÁ- Álfurinn, til styrktar ungu fólki í vímuefnavanda.
Það er eiginlega ekkert meira um það að segja.... annað en að ég hvet aðra til hins sama.
![]() |
Keypti fyrsta Neyðarkallinn minnugur Geysisslyssins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 4.11.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Heldur Steingrímur Joð virkilega að almenningur í landinu trúi honum, þegar hann segir að tafir á stóriðjuframkvæmdum á Suðurnesjum, "hafi ekkert með ríkið að gera"?
Að vísu hefur eitt stykki fjármálakreppa ekki liðkað fyrir, en það er þó annarskonar strik.
Í þrengingum og í áföllum virðast vinstrimenn og hugmyndafræði þeirra, eiga greiðari leið að almenningi. Ástæðan er sú að þeir hafa aldrei komist nálægt því að bera pólitíska ábyrgð þegar ástandið er "normalt" og hyllir jafnvel í góðæri. Við slíkar aðstæður hefur vinstrimönnum einfaldlega aldrei verið treyst af kjósendum. En svo þegar áföll dynja yfir, þá eru vinstrimenn auðvitað stikkfrí. Ekkert er þeim að kenna og þeir kunna að hamra á því í kosningabaráttum og fylgi þeirra ríkur upp. Það er í sjálfu sér ekkert skrítið við þetta.
Nýir kjósendur eru gjarnan markhópurinn við svona aðstæður en við bankahrunið mikla árið 2008 varð reiðin í þjóðfélaginu svo mikil að góðir og gegnir hægrimenn til margra ára, kusu annan hvorn vinstriflokkinn, í refsingarskyni við sinn flokk.
Auðvitað var það einhverskonar sjálfspíning hjá þessum mönnum að kjósa "vinstrið" yfir sig.
Líkt og heittrúaður lemur bak sitt til blóðs með svipu í refsingarskyni fyrir syndugar hugsanir, gengu þessir hægrimenn niðurlútir í kjörklefann með ásetning sinn.
Í aðdraganda alþingiskosninganna árið 2003, héldu Steingrímur og Þurríður Bachman fund á Reyðarfirði. Þar sögðu þau kinnroðalaust framan í Reyðfirðinga, að ekki væri of seint að hætta við framkvæmdirnar við Kárahnjúka. Þá voru liðin um tvö ár frá því framkvæmdir hófust og þegar hafði verið varið mörgum miljörðum í verkefnið.
Steigrímur og Þurríður vildu að við gerðum eitthvað annað.
![]() |
Hefur ekkert með ríkið að gera |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 29.10.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þessi hugmynd, að lögleiða cannabis, poppar upp hér öðru hvoru, en er jafnharðan slegin af borðinu.
Það væri gaman að fá að sjá útreikninga á því hvað lögregla, dómstólar og fangelsisyfirvöld, eru að borga mikla peninga fyrir marijúana - mál.
Og svo mætti kannski reikna líka út, úr því reiknisstokkurinn er kominn á loft, hvað hafa mætti í skatttekjur af þessum "iðnaði", ef hann væri löglegur. Við erum að tala um einhverja miljarða þarna í ávinning. Brot af því til meðferðarstofnanna sem taka við þeim sem leiðast út í ofneyslu, og við erum í fínum málum... held ég
Hinn heimsþekkti sjónvarps og vísindamaður, Carl Sagan, sagði eitt sinn: ...The illegality of cannabis is outrageous, an impediment to full utilization of a drug which helps produce the serenity and insight, sensitivity and fellowship so desperately needed in this increasingly mad and dangerous world
Maður spyr sig
ps. viðbót:
Í Hollandi eru cannabisefni leyfð. Samt er neyslan þar ekki meiri en annarsstaðar þar sem neyslan er lögbrot, eins og sést á töflunni. ( http://en.wikipedia.org/wiki/Adult_lifetime_cannabis_use_by_country )
![]() | National | 2005 | 15+ | 44.5 | [4] |
![]() | National | 2002-3 | 18+ | 42.4 | [2] |
![]() | National | 2004-5 | 16+ | 41.9 | [2] |
![]() | National | 2005 | 16-64 | 36.5 | |
![]() | National | 2005 | 15-64 | 30.6 | |
![]() | National | 2005-6 | 16-59 | 29.8 | |
![]() | National | 2005-6 | 16-59 | 29.8 | |
![]() | United Kingdom overall | 2004 | 29.6 | ||
![]() | National | 2005 | 15-64 | 29.3 | |
![]() | National | 2005-6 | 15-64 | 28.6 | |
![]() | National | 2003 | 18-59 | 24.5 | |
![]() | National | 2005 | 15-64 | 22.6 | |
![]() | National | 2004 | 18-64 | 20.6 | |
![]() | National | 2004 | 16-64 | 20.5 | |
![]() | National | 2004 | 15-64 | 20.1 | |
![]() | National | 2002-3 | 15-64 | 17.4 | |
![]() | National | 2002-3 | 15-64 | 16.8 | |
![]() | National | 2004 | 15-64 | 16.2 | |
![]() | National | 2004 | 15-64 | 15.6 | |
![]() | National | 2004 | 15-64 | 12.9 | |
![]() | National | 1998 | 15-64 | 12.9 | |
![]() | National | 2006 | 16-64 | 12.0 | |
![]() | National | 2002-4 | 21+ | 11.5 | [2] |
![]() | All urban areas of the country (approximately 73% of the total national population). | 2003 | 18-65 | 10.8 | [2] |
![]() | National | 2003 | 15-64 | 10.6 | |
![]() | National | 2004 | 15-64 | 10.4 | [2] |
![]() | National | 2003 | 18-54 | 9.8 | |
![]() | National (except Aegean and Ionian Islands) | 2004 | 15-64 | 8.9 | |
![]() | National | 2003-4 | 18+ | 8.4 | [2] |
![]() | All urban areas of the country (approximately 75% of the total national population). | 2001-2 | 18-65 | 7.8 | [2] |
![]() | National | 2002 | 16-64 | 7.7 | |
![]() | National | 2004 | 15-64 | 7.6 | |
![]() | National | 2001 | 15-64 | 7.6 | |
![]() | National | 2008 | 15-64 | 7.4 | |
![]() | National | 2006 | 15-64 | 6.6 | |
![]() | National | 2002-3 | 18+ | 4.6 | [2] |
![]() | National | 2005 | 18-60 | 4.4 | |
![]() | National | 2001 | 18-64 | 3.5 | |
![]() | 21 of the 36 states in the country, representing 57% of the national population. | 2002-3 | 18+ | 2.7 | [2] |
![]() | Four metropolitan areas (Fukiage, Kushikino, Nagasaki, Okayama). | 2002-3 | 20+ | 1.5 | [2] |
![]() | Beijing and Shanghai metropolitan areas. | 2002-3 | 18+ | 0.3 | [2] |
Hér er svo kort af Evrópu. Danir og Frakkar eru soldið stoned 
Ég var í Hollandi um daginn og tók myndina hér að neðan út um eldhúsgluggan hjá vinafólki sem við vorum í heimsókn hjá.
Við blasti "heimilisiðnaður" á verönd nágrannans. Leyfilegt er hverjum einstaklingi að rækta fjórar plöntur. Þarna er greinilega um meira magn að ræða. Kannski eru margir í heimili? 
![]() |
Styður lögleiðingu maríjúana |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 27.10.2010 (breytt kl. 14:43) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
Ég held að ráðherra íþróttamála, sætu hnátunni og flokkssystkinum hennar í VG, hugnist ekki þessi íþrótt. Reyndar hélt ég að hún væri bönnuð þessi tegund bardagaíþróttar, "hér á landi á", eins og skáldið sagði.
Spurning hvort veimiltíturnar í VG notfæri sér það ekki og komi í veg fyrir þennan stórmerka íþróttaviðburð í Laugardalshöll?
Ég sé fyrir mér sterkan kandidat í Álfheið Ingadóttur, sem forystugeit í vandlætingarkór VG.
![]() |
Gunnar mætir Russell í Höllinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 25.10.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Einhver þarf að taka skömmina fyrir Landeyjarhöfn. Hver á það að vera? Sótt er um að eyða miljón á dag.... aukalega, til þess að "reyna" að halda höfninni opinni.
Það er greinilegt að eitthvað hefur verið skakkt reiknað, eða ekki reiknað... með. Til eru mörg dæmi um hönnunarfeila og oft eru þeir ansi skondnir eins og ég sýni á nokkrum myndum hér að neðan.
En það er ekkert fyndið við klúðrið við Landeyjarhöfn. Hvorki fyrir fólkið sem stólar á þessa samgönguæð né hálftómann vegasjóð. Klúður af þessari stærðargráðu hlýtur að komast í sögubækur, jafnvel á heimsvísu.
Renndu menn blint í sjóinn á Bakkafjöru? Var þetta tilraunaverkeni? Lágu hönnuðir undir pólitískum þrýstingi?
Svo er hér að lokum "Funky unconventional" (verður ekki flokkað sem slys )
![]() |
350 milljónir í Landeyjahöfn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 15.10.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Það sem stjórnar minni afstöðu er að ég vil ekki fara með slæma pólitík, ámælisverða pólitík, fyrir landsdóm,"
Mér finnst vera nokkur viska í þessum orðum.
Ég held að við getum öll verið sammála um það að stjórnmálamenn (og þá helst Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn) gátu á einhverjum tímapunkti gripið í taumana og komið í veg fyrir þá þróun mála sem síðar varð, og kom okkur í þau vandræði sem við höfum þurft að glíma við undanfarin misseri.
En þó verður að segjast eins og er, að harðasta gagnrýnin úr ranni stjórnarandstöðunnar, ber sterkan keim af "eftirá vísindum".
Vissulega gagnrýndu Vinstri grænir útþenslu bankanna og allir stjórnmálamenn sem staðsettir voru/eru yst á vinstri væng stjórnmálanna, gagnrýndu bankastarfsemina á sínum tíma, en þó aðalega til að hneikslast á góðri afkomu þeirra. Engum kom slík gagnrýni á óvart úr þeirri áttinni.
Engin efnisleg gagnrýni kom á þessar afkomutölur, heldur lögðu áróðursmeistarar félagshyggjufólksins áherslu á að innræta hjá fólki öfund og tortryggni, ekki bara í garð fjármálastofnanna, heldur allra fyrirtækja sem sýndu "gróða". En orðið "gróði" hafa kommarnir alla tíð reynt að sverta og koma óorði á. Hagnaður er neikvætt í þeirra augum.
![]() |
Hefur ekki sannfæringu fyrir ákærum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 27.9.2010 (breytt kl. 23:51) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 947078
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Amerísk fasistaskyggni fyrir Grindavík?
- Greta gyðingahatari.
- Einföld útskýring Jóns Steinars - og upprifjun Jóns Bjarnasonar á sögulegum staðreyndum
- Viðurkennt í greinargerðinni
- Maí sem sumarmánuður?
- Vertíðin, strandveiðar og veiðigjöldin
- World Council for Health (WCH) styður kröfu um tafarlausa fjarlægingu mRNA-bóluefna
- MIKILL OG STERKUR VILJI TIL LANDRÁÐA HJÁ SAMFYLKINGU OG VIÐREISN...
- Maður ætti að halda uppá upphaflegu heiðnu hátíðirnar og finna þær
- Breytt umræða í útlendingamálum
Nýjustu albúmin
Af mbl.is
Erlent
- Lirfur frá helvíti kostað milljónir
- Hermenn alls staðar ef mótmælin aukast
- Þrír á sjúkrahús eftir sprengingu
- Banna botnvörpuveiðar á 30.000 ferkílómetra svæði
- Hundruð þjóðvarðliða á götum Los Angeles
- Segir Rússa spila óheiðarlega pólitíska leiki
- Hótelverð hækkað um 50 prósent
- Lík Sinwars fannst undir sjúkrahúsi