Maður spyr sig....

guðm.steingrss„Það sem stjórnar minni afstöðu er að ég vil ekki fara með slæma pólitík, ámælisverða pólitík, fyrir landsdóm,"

Mér finnst vera nokkur viska í þessum orðum.

Ég held að við getum öll verið sammála um það að stjórnmálamenn (og þá helst Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn)  gátu á einhverjum tímapunkti gripið í taumana og komið í veg fyrir þá þróun mála sem síðar varð, og kom okkur í þau vandræði sem við höfum þurft að glíma við undanfarin misseri.

En þó verður að segjast eins og er, að harðasta gagnrýnin úr ranni stjórnarandstöðunnar, ber sterkan keim af "eftirá vísindum".  

Vissulega gagnrýndu Vinstri grænir útþenslu bankanna og allir stjórnmálamenn sem staðsettir voru/eru yst á vinstri væng stjórnmálanna, gagnrýndu bankastarfsemina á sínum tíma, en þó aðalega til að hneikslast á góðri afkomu þeirra. Engum kom slík gagnrýni á óvart úr þeirri áttinni.

Engin efnisleg gagnrýni kom á þessar afkomutölur, heldur lögðu áróðursmeistarar félagshyggjufólksins áherslu á að innræta hjá fólki öfund og tortryggni, ekki bara í garð fjármálastofnanna, heldur allra fyrirtækja sem sýndu "gróða". En orðið "gróði" hafa kommarnir alla tíð reynt að sverta og koma óorði á. Hagnaður er neikvætt í þeirra augum. Errm


mbl.is Hefur ekki sannfæringu fyrir ákærum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Ef þeir hefðu gert það  ( að grípa inní með einhverjum hætti - sem reyndar er ekki auðséð hvernig fara bar að ) væru þá sömu ráðherrar og jafnvel fleiri ekki ákærðir fyrir það að hafa sett bönkunum stólinn fyrir dyrnar og sett þá á hausinn?

Ólafur Ingi Hrólfsson, 27.9.2010 kl. 22:38

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Jú Ólafur, mjög sennilega

Gunnar Th. Gunnarsson, 28.9.2010 kl. 09:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband