Færsluflokkur: Kjaramál

Þetta eru nýu störfin hennar Jóhönnu

jsJóhanna Sigurðardóttir hrósar sér af því að atvinnuleysið fari minnkandi og að ríkisstjórn hennar sé dugleg að skapa ný störf. Hún segir að tölur um fækkun atvinnuleysisbótaþega sýni þetta.

Öll nýu störf Jóhönnu (sem eru greinilega nýu fötin keisarans) eru í útlöndum. Þangað fer atvinnulausa fólkið og mælist því eðlilega ekki atvinnulaust á Íslandi.


mbl.is Fjöldi barna og unglinga meðal brottfluttra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flottir

lögrSkríllinn sem grýtti þessa ágætu menn og kastaði eggjum í Alþingishúsið, gæti kanski lært eitthvað, með því að fylgjast með þessari mótmælagöngu.

Svona prúðleg ganga er miklu áhrifameiri en ofbeldisfull skrílslæti.


mbl.is Lögreglan mótmælir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vitleysingum fjölgar í löggunni

lögganÞað sjá auðvitað allir, hvaða áhrif starfsflótti úr lögregluliði landsins mun hafa. Hlutfall vanhæfra mun auðvitað aukast.

Sumir segja að ekki sé á bætandi. Errm


mbl.is Óttast flótta úr stéttinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Út yfir gröf og dauða skal rukkað

áleiðheim

Við borgum kirkjugarðsgjald alla ævi. Maður hefði haldið að það dygði fyrir ljóstýru yfir hátíðirnar. GetLost


mbl.is Lýsingar á leiði hækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nútíma þrælahald

"Allt gert fyrir hagnaðinn"

Andstætt trú margra, þá gerir frjálshyggjan ekki ráð fyrir því að "grætt" sé án takmarkana. Réttlæti er hornsteinn mannlegs samfélags. Frjáls viðskipti eru sjálfsögð og eðlileg og hagnaður eins, er ekki tap annars, eins og margir ferkantaðir vinstrimenn halda. Viðskiptin ganga, þegar til lengri tíma er litið, út á það að báðir hafi eitthvað fyrir sinn snúð.

0607slavery1

Það verða alltaf til "kapitalistar" sem misnota sér aðstöðu sína. Nýta sér sára neyð fólks og græða á tá og fingri. Þessir aðilar eru ekki fulltrúar "kapilismans", heldur fulltrúar lítils minnihluta meðal mannfólksins, minnihluta sem Kaninn myndi kalla af sinni alkunnu hæversku: "Scum of the earth".

Samkvæmt skiltinu hér að ofan, koma að meðaltali 20 börn á hverjum einasta degi ársins með ólöglegum hætti inn í Bandaríkin.

Ég hef áhyggjur af þessum börnum, ég verð að segja það.... Undecided


mbl.is Sjálfsvíg starfsmanna Disneyland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvert á að flýja?

Það heyrðust raddir um það í haust, að Íslendingar gætu staðið frammi fyrir svipaðri katastrófu og Færeyingar þegar fólksfóttinn varð þar sem mestur í "þeirra" kreppu. Ef samsvarandi fólksflótti yrði hér, værum við að tala um 50-60 þúsund manns. Stór hluti þessa fólks kæmi ekki aftur.

 Atvinnuleysi hefur verið viðvarandi ástand nokkuð víða og mörg lönd eru í dag með svipað atvinnuleysi og er hér. Það er helst Noregur sem hefur lítið atvinnuleysi en þó jókst fjöldi atvinnulausra um 60% á örfáum vikum í vetur. Þar er þó enn að ég held innan við 3% atvinnuleysi.

Það er vert að staldra við og huga að hvert maður er að fara áður en lagt er upp í atvinnuleit. An er bara flan. Hér að neðan er skemmtilegur "To do list" hjá einum atvinnulausum. Það er vel hakað við "Surf the net"

a5zbtzoug7_unemployment


mbl.is Atvinnuleysi mælist 8% í Kanada
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verkalýðsfélag á villugötum

 AFL  Starfsgreinafélag er þriðja fjölmennasta verkalýðsfélag landsins í dag – á eftir Eflingu og VR. Stærð félagsins skýrist af víðtækum sameiningum verkalýðsfélaga á Austurlandi síðustu ár og miklum uppgangi í atvinnulífi í fjórðungnum.

AFL stendur nú fyrir fundaherferð þar sem formaðurinn og aðrir forystumenn félagsins munu á næstu vikum fara á vinnustaði og halda almenna fundi með félagsmönnum og leita samráðs um stefnumótun félagsins. Í auglýsingu sem birtist í "Dagskránni", sem er sjónvarps og auglýsinga-vísir fyrir Austurland segir m.a. eftirfarandi:

Forysta AFLs vill leggja áherslu á að sátt náist í þjóðfélaginu og að við sameinumst um:

  • Að verja velferðarkerfi sem tekið hefur áratugi að byggja upp
  • Að hrista af okkur frjálshyggjupestina sem hefur sýkt innviði þjóðfélagsins
  • Að efna til umræðu um endurskoðun grunnþátta samfélagsins
  • Að þeir sem hafa orsakað hrun efnahags þjóðarinnar verði kallaðir til ábyrgðar

Verkalýðsfélög eiga ekki að berjast í hugmyndafræðilegri stjórnmálabaráttu, allra síst ef þau vilja grundvalla starf sitt á sátt meðal félagsmanna sinna. Vill fólks sjá slagorð hjá verkalýðsfélagi eins og:

  • Að hrista af okkur sósíal-demókratísku pestina sem tíðkast í VG

Hjordis_Thora_SigurthorsdottirÉg segi nei, þó ég gæti vel tekið undir þetta slagorð. Verkalýðsfélög eiga að berjast fyrir launakjörum og réttindum félagsmanna sinna. Ef forystumenn AFLs vilja koma pólitískum sjónarmiðum sínum á framfæri, þá eru aðrir vettvangar betur til þess fallnir en verkalýðsfélagið sem þeir eru kosnir til forystu fyrir. Ég efast um að allir þeir sem kusu Hjördísi Þóru Sigurþórsdóttur til formanns í AFLi á sínum tíma, hafi reiknað með að hún auglýsti markmið félagsins á þennan hátt.

Ég mun beina félagsgjöldum mínum til annars verkalýðsfélgs hér eftir.

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband