Má þetta?

gnelsonÉg held að ráðherra íþróttamála, sætu hnátunni og flokkssystkinum hennar í VG, hugnist ekki þessi íþrótt. Reyndar hélt ég að hún væri bönnuð þessi tegund bardagaíþróttar, "hér á landi á", eins og skáldið sagði.

Spurning hvort veimiltíturnar í VG notfæri sér það ekki og komi í veg fyrir þennan stórmerka íþróttaviðburð í Laugardalshöll? Errm

álfheiðurÉg sé fyrir mér sterkan kandidat í Álfheið Ingadóttur, sem forystugeit í vandlætingarkór VG.


mbl.is Gunnar mætir Russell í Höllinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorkell Hólm Eyjólfsson

Þetta er nú bara léleg fréttamennska eins og svo oft áður á mbl.is
,,3. Michael Russell will fight Gunnar Nelson in Brazilian Ju-Jitsu."
Gunnar mun semsagt keppa í BJJ en ekki MMA en BJJ er fullkomlega löglegt hér á landi enda afbrigði af Júdó sem er ein vinsælasta íþrótt landsins.

Þorkell Hólm Eyjólfsson, 25.10.2010 kl. 12:44

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Takk fyrir þetta, Þorkell.

Gunnar Th. Gunnarsson, 25.10.2010 kl. 13:47

3 Smámynd: Halli Nelson

MMA er reyndar ekki bannað hér á landi heldur atvinnu hnefaleikar. En við höfum ekkert látið reyna á MMA og það stendur ekki til. Myndi ekki gera slíkt án samráðs við löggjafann eða að undangengnu lögfræðiáliti. Þetta er hins vegar ekki MMA eins og bent hefur verið á og því enginn hætta á að neinn reyni að stoppa þetta að ég tel. Þetta er no gi glíma. En hvað veit maður svo sem þegar forræðishyggjuslektið fer af stað

Halli Nelson, 25.10.2010 kl. 15:12

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Takk fyrir þetta, Halli. Athyglisvert.

Ertu bróðir Gunnars?

Gunnar Th. Gunnarsson, 25.10.2010 kl. 15:23

5 Smámynd: Halli Nelson

Nei ég er pabbi hans.

Halli Nelson, 28.10.2010 kl. 09:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband