Færsluflokkur: Tölvur og tækni

Apple New iPad eða Samsung Galaxy?

Ég er að spá í spjaldtölvu. Fólk virðist skiptast í lið í þessum efnum sem öðrum. Það væri gaman að heyra frá ykkur um þetta eldheita efni.

funny_ipad_1


mbl.is Eplið var á hvolfi fyrir notandann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sky Map

Ég keypti mér snjallsíma um daginn, Samsung Nexus S.

Kostagripur sýnist mér en verð þó að viðurkenna að ég hef voðalega lítið vit á þessum undratækjum. En nú er ég búinn að niðurhala fyrsta appinu en það er Sky Map frá google. Stórsniðugt apparat fyrir þá sem vilja vita hvað stjörnurnar á næturhimninum heita. Appið tengist GPS staðsetningarforriti símans.

Ég gúgglaði "star app" vegna þess að í pásunni á kóræfingu stóðum við úti 3 félagarnir og góndum á stjörnubjartan himininn og sáum óvenju bjarta stjörnu á vesturhimninum. Raunar voru tvær stjörnur nálægt hvorri annarri sem voru óvenju bjartar, en önnur þó sýnu bjartari.

Þessar stjörnur voru Venus og Júpiter. Mars er einnig nokkuð björt og er mjög nálægt tunglinu um þessar mundir.

Við voru ekki vissir hvaða stjörnur þetta væru og ég sagðist ætla að gúggla það og koma með svarið á næstu æfingu. Gúgglið rak mig á fjörur appsins.

Myndbandið hér að neðan kynnir fyrirbærið.


mbl.is Sólgos gæti truflað fjarskipti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slökkva ljósin og draga fyrir

iphone-youtube

Það er ekki þorandi orðið að gera neitt Woundering

Ég sá þetta í "status" á fésbókinni í dag:

 "VARÚÐ....Það eru tölvuhakkarar á facebook. Þeir setja klám myndbönd í þínu nafni á vegginn hjá öllum vinum þínum, án þess að þú vitir það. ÞÚ GETUR EKKI SÉÐ ÞAÐ en aðrir geta gert það. Ef þú hefur fengið svona myndband frá mér, er það ekki ég sem sendi þér þetta! Settu þetta á vegginn þinn svo ÞÚ getur varað aðra við því að lenda í þessu.."

Slökkva ljósin, draga fyrir og sængina upp fyrir haus Errm


mbl.is Íslenskur sérfræðingur fann gloppu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kogeto Dot 360° Panoramic iPhone Lens

Ég er á póstlista hjá bandarískri ljósmyndavöruversluninni Calumet og rakst á þessa linsu hjá þeim fyrir iphone, 360 gráður (panaorama)

28_DA8001_None_3

Þetta er algjör snilld og HÉR má sjá nokkur sýnishorn af upptökum. Ýtið á play og setjið bendilinn yfir myndina og vinstri-smellið og dragið til að vild. Linsan kostar aðeins 9.600 kr. í Calumet. Ljósmyndavörur eru u.þ.b. helmingi ódýrari í USA en hér


Netið í ýmsum myndum

tölvur1

Netfíkn er áþreifanlegt vandamál í dag, ekki síst meðal unga fólksins. Mörgum foreldrum reynist erfitt að ná börnum sínum frá tölvunni.

g00gle

Skólanám frá grunnskóla og upp úr, byggist m.a. á að geta notað netið til að afla upplýsinga. Allt er hægt að finna á netinu og leitarvélarnar eru hraðvirkar.

what-did-you-mean

Stundum koma skondin svör Joyful

friend-request

Ýmsir aðilar taka netið í þjónustu sína

Q6umM

Stundum er betra að flýta sér hægt LoL Smellið á myndina þrisvar fyrir stækkun

internet-caffé

Þeir sem ekki þola að vera net-lausir nema stutta stund í einu, geta farið á Netcafé

070906-SteveJobsGrabstein

Kannski sjáum við svona legsteina í framtíðinni Errm


mbl.is Netfíklar sveltu barn sitt í hel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óbrjótandi LCD skjáir


mbl.is Skjáir í stað tengsla við fólk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ó, þið tölvur!

Það er hvorki hægt að lifa með ykkur né án ykkar Errm

410d1239881314-new-ui-windows-7-might-offical-rc-funny_computer_engineer_help_wanted_sign

Þeir sem geta ekki reiknað út dæmið í flipanum, eiga ekkert erindi með að hringja


mbl.is Rannsaka „svartan skjá dauðans“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

OK or cancel to continue

willitwork98

window12

underconstruction


mbl.is Windows 7 kostar um 20.000
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

2000 vandinn o.fl. vandamál

image22Þegar umræðan um hinn svokallaða 2000 vanda árið 1999 stóð sem hæst, fékk ég ljósritaðan snepil inn um lúguna hjá mér. Snepillin var frá tölvufyrirtæki sem var að auglýsa lítið forrit sem átti að hlaða í tölvuna og þar með yrði 2000 vandinn úr sögunni.

Á sama tíma var hið opinbera að eyða tugum eða hundruðum miljóna króna í að uppfæra tölvur ríkisins gegn þessu ægilega vágesti. Forritið kostaði að mig minnir 15.000 kr. Eitthvað fannst mér nú gruggugt við þetta.  Alið var á ótta almennings að flug yrði hættulegt fyrstu dagana á árinu 2000, bankakerfið myndi hrynja, peningar og greiðslur týnast, raforkukerfið hrynja og ég veit ekki hvað og hvað.

Ekki man ég eftir einni einustu frétt um einhverja katastrófu í sambandi við þetta og ég dreg það stórlega í efa að allir hafi lagt í kostnað vegna þessa, a.m.k. gerði ég það ekki Errm. Ekkert hafði breyst í bókhaldsforriti mínu 1. janúar árið 2000, hvorki til hins betra eða verra Joyful 

En tölvufyrirtækin blómstruðu á þessum tíma.

funnyerror_1Um svipað leyti komu fram dómsdagsspár um það að brátt myndi inernetið heyra sögunni til, því aukningin væri svo mikil í notkun þess, að það myndi hrynja eins og spilaborg og við því væri ekkert að gera. Mörg tölvutímarit, bæði innlend og erlend... og ég kíkti í þau mörg á þessum árum, voru stútfull af umfjöllun um þetta óleysanlega vandamál. Vissulega sáust líka greinar með heldur bjartsýnni framtíðarsýn á vandamálið. Umferðin um internetið hefur mörgþúsundfaldast síðan þetta var.

Dómsdagsspár koma og fara og mörg fyrirtæki þrífast vel á þeim. Gríðarlegur fjöldi tölvufræðinga hefur haft atvinnu af ofangreinu "vandamálum"

Í dag er það loftslagsvandinn og gríðarlegur fjöldi vísindamanna hefur atvinnu af því í dag að reikna allt til andskotans í loftslagsmálum og langflestir þeirra þyggja laun sín frá opinberum aðilum. 

Það væri kannski sniðugt hjá þeim að hafa aðra menntun í bakhöndinni,

ef ske kynni...... Errm

payn071226_CMYK


mbl.is Biðst afsökunar á //
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Intel inside

140

No_Intel_Inside

itell

amd_vs_intel1

week+12iStock_000000752070XSmall

tampaxpicture


mbl.is Afkoma Intel umfram væntingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband