Færsluflokkur: Bloggar

Það væri gott að fá sundurliðun

Svona tölur (táknmyndir á blaði) Joyful, segja okkur ósköp lítið. Þegar ég fæ reikning frá bílaverkstæði, þá stendur á reikningnum hvað er gert. Vörur og þjónusta er sundurliðuð á reikningnum.

lögfræðingarGreiðslur Efnahags- og viðskiptaráðuneytisins til 23gja lögfræðinga, nemur rúmlega einni miljón að meðaltali á mann. Er þarna um 23 álit að ræða í aðgreindum málum eða eru mörg álit um sama málið? Hvaða vinna liggur hugsanlega á bak við þessi álit? Hvað er lögfræðingur lengi að vinna fyrir eina miljón?

Væntanlega er þarna um "smámál" að ræða, því svo eru önnur mál og aðeins stærri reikningar, afgreiddir og undirritaðir af "ráðgjafafyrirtækjum". Þar voru reikningarnir að meðaltali 4,6 miljónir. Þetta eru s.s. hagfræðingarnir?.... eða hvað?

Það væri fróðlegt að vera fluga á vegg hjá svona verktökum sem henda reikningum í ríkið. Byggingaverktakar og aðrir slíkir, gera fyrirfram samkomulag um verð, verktíma o.fl., en oftast er þessu öðruvísi háttað hjá "hug-verkamönnum", s.s. lög og hagfræðingum.

Í Kommúnistaávarpinu eftir Marx og Engels, er á einum stað talað um þá fögru framtíðarsýn; að hver maður leggi fram vinnu eins og hann getur og beri úr býtum það sem hann þarf.

Ég fæ það stundum á tilfinninguna að hug- verkamennirnir vinni eins lítið og þeir geta fyrir miljónina. A.m.k. þykir þeim það ekki hár reikningur fyrir viðvik. Errm

Læt hér fylgja með nokkra bandaríska lögfræðingabrandara.

  • Why is it that many lawyers have broken noses?
    From chasing parked ambulances.
  • What do you call a lawyer with an I.Q. of 50?
    Your honor.
  • What do you call a lawyer whose gone bad?
    Senator.
  • What's the difference between a lawyer and a trampoline?
    You take off your shoes to jump on a trampoline!
  • How can you tell when a lawyer is lying?
    His lips are moving.
  • What's the difference between a dead dog and a dead lawyer in the road?
    There are skid marks in front of the dog.
  • How many lawyers does it take to roof a house?
    Depends on how thin you slice them.
  • What do lawyers do when they die ?
    Lie still

mbl.is Keyptu sérfræðiráðgjöf fyrir 54 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýjan þátt fyrir Silfur Egils

Fyrir nokkrum árum mátti ég helst ekki missa af þætti Egils Helgasonar, "Silfri Egils". Í dag er ég alveg hættur að nenna að horfa á hann, nema einstöku sinnum í endursýningu og þá nenni ég yfirleitt ekki að horfa á allan þáttinn.

Ég sendi Ingva Hrafni Jónssyni, sjónvarpsstjóra á ÍNN, tölvupóst um málið. Alveg eins gott að birta hann strax hér, því Wikileaks kemst sjálfsagt í málið hvort eð er. Undecided

Sæll herra sjónvarpsstjóri, Ingvi Hrafn Jónsson. Í ljósi skelfilegra slagsíðu í tilteknar áttir í Silfri Egils á RUV og minnkandi áhuga almennings á umræðunni þar, finnst mér tilvalið að sjónvarpsstöðin ÍNN hleypi af stokkunum vikulegum spjallþætti, svipaðrar gerðar og Silfur Egils. Auðvitað þó með þeirri augljósu breytingu að spjallstjórnandinn sé ferskur og leiði saman andstæð sjónarmið, en safni ekki í kringum sig þóknanlegum „álitsgjöfum“ úr háskólasamfélaginu. Margir þessara álitsgjafa presentera sig sem hlutlausa fræðimenn, en eru í raun ekkert annað en málpípa tiltekinna stjórnmálaflokka. Stundum er þetta pínlegt upp á að horfa.Ég sé fyrir mér bráðfjörugan þátt undir stjórn Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar.  Honum er vel treystandi til að leiða saman fjölbreytt sjónarmið og taka þátt í umræðum um þau.Kær kveðja frá Reyðarfirði,Gunnar Th. Gunnarsson

 


Ungmennafélagsandinn?

Þegar atkvæðagreiðsla á sér stað um það hvar helstu stórmót í íþróttum eiga að fara fram, þá er alltaf slatti af atkvæðum til sölu. Katar á mikla peninga og hefur greinilega beitt þeim óspart enda ekki ólíklegt að óvenju margir hafi verið falir vegna alþjóðlegu fjármálakreppunnar. 

qatar-airwaysKatar er talið ríkasta land í heimi, enda situr þetta litla land á mestu gasbirgðum sem fyrirfinnast í veröldinni, auk þess sem olía er þar í miklum mæli. Þarna er algjört einræði en farið er tiltölulega mildum höndum um þegnanna, í samanburði við flest nágrannalönd þeirra. Konur mega t.d. aka bifreiðum í Katar!

Sú fagra hugsjón sem sögð er höfð að leiðarljósi hjá Alþjóða knattspyrnusambandinu; að dreifa beri keppninni sanngjarnt um heimsbyggðina með það að markmiði að kynna íþróttina sem víðast, er góðra gjalda verð. En ég sé bara ekki hvaða gagn er verið að gera knattspyrnunni með því að halda keppnina í olíu og eyðimerkurríkinu Katar, þar sem búa rúmlega miljón manns.

Fyrirhugaðar fjárfestingar Katar- manna í loftkældum knattspyrnuhöllum, verða væntanlega galtóm minnismerki um fáránlegt bruðl mannskepnunnar. Ég hélt að svoleiðis hugsunarháttur væri á undanhaldi. Errm

Það þarf enginn að segja mér það að ákvörðun FIFA um að halda keppnina í Katar ári 2022, hafi verið byggð á ungmennafélagsandanum.Woundering


mbl.is Uppsveifla í Qatar vegna HM
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vantar Birnu Þórðar og Ástþór

ástþórbirnaÉg hefði gjarnan viljað sjá Birnu Þórðardóttur, trotskýista (fyrrv.?) Errm og Ástþór Magnússon, friðarhöfðingja, meðal 25 menninganna. Þá hefði kannski orðið smá "blús fyrir Birnu". Joyful

Maður fær ekki allt sem maður biður um.


mbl.is 25 kjörin á stjórnlagaþing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rafmagn er hættulegt

Einhverntíma sagði mér rafvirki að ekki þyrfti alltaf mikinn straum til að drepa mann. Vildi hann meina að hvert hjarta hefði sína "tíðni" og sú tíðni truflaðist með hjartastoppi við ákveðinn straum, sem þess vegna gæti verið tiltölulega lítill.

Flestir hafa fengið í sig 220 v straum, en dæmi eru um að menn hafi hnigið niður örendir eftir augnabliks stuð. Líkurnar á að það gerist eru hins vegar afskaplega litlar; ég reikna með að það sé einn á móti einhverjum þúsundum eða tugþúsundum.

fábjánarÞegar lögreglan lendir í líkamlegum átökum við glæpamenn, þá hefur hún yfirleitt ekki hugmynd hvaða vopnum þeir kunna að búa yfir. Við viljum ekki að lögreglumenn slasist og við viljum að glæpa og ofbeldismenn séu handsamaðir án "óþarfa" meiðsla.

Rafstuðsbyssu er sjálfsagt hægt að nota á rangan hátt, en mér sýnist það samt borðleggjandi að notkun hennar sé réttlætanleg í mörgum tilfellum. Ég held að það sé skárra fyrir krimmann að fá eitt stuð heldur en að vera laminn með kylfu með ófyrirsjáanlegum afleiðingum..... fyrir utan óheppnu krimmana sem hafa vitlausa tíðni á hjartanu. Errm


mbl.is Lést eftir skot frá rafstuðbyssu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Helmingurinn lygi og hitt ósatt

músÞað er erfitt að vitna í Wikipedia sem heimild en þó er þetta fjársjóður upplýsinga. Staðreyndavillur eru svo fáar enn sem komið er (hvað sem síðar verður), að hægt er að vera nokkuð öruggur.

Jafnvel þó mann vanti upplýsingar um umdeilanleg efni og er ekki sáttur við "túlkun Wikipedíu", þá eru yfirleitt krækjur sem vísa í ítarlegar umfjallanir um efnið.


mbl.is Þrjátíu þúsund íslenskar Wikipedia-greinar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Foringjaefni félagshyggjufólks

Lilja Mósesdóttir er vinstri manneskja... eins og ég var eitt sinn. Í dag er ég hægri maður, sem vel að merkja þýðir ekki að mér sé sama um minn minnsta bróður, eða að ég vilji ekki lögbundið öryggisnet fyrir alla borgara, óháð stétt og stöðu.

Það eru svo margir sem halda að hægrimennska snúist um kalt peningamat. Það er fjarri lagi. Hægrimennska snýst um réttlæti, rétt eins og allar aðrar stjórnmálastefnur, en setur auk þess á oddinn að allir hafi jafna möguleika til að virkja hugmyndaflug sitt til atvinnusköpunar og að sá sem sáir, uppsker sjálfur.

liljaEflaust eru til nokkrir hægrimenn sem vilja nánast óheft frelsi, en þeir eru í miklum minnihluta og fá í raun engu ráðið um stjórn mála. Þeir eru hins vegar ágætt aðhald í stjórnmálaumræðunni, rétt eins og t.d. sumir sósíalistar sem vilja þjóðnýta og ríkisvæða stærstu og arðbærustu fyrirtækin.... og jafnvel þau smærri líka.

Það er gott að öll sjónarmið fái að koma fram.

Lilja Mósesdóttir er einmitt á þeirri skoðun, en nú uppgötvar hún að slíkt er ekki í boði hjá VG. Það er eðlilegt að Lilja sé slegin yfir uppgötvun sinni og að hún þurfi tíma til að átta sig á stöðu mála.

Loksins kemur fram á sjónarsviðið stjórnmálamaður með félagslegar áherslur, sem hægt er að rökræða við og komast að niðurstöðu, þar sem sjónarmið beggja fá notið sín. Ummæli Lilju varðandi tillögur stjórnarandstöðunnar um efnahagsvandan og skuldamál heimilanna, sýnir það.

Lilja Mósesdóttir er ótvírætt foringjaefni félagshyggjufólks í dag. Ég hlakka til að sjá hana taka þátt í stjórnarmyndunarviðræðum í framtíðinni. Ég er viss um að eitthvað gott kemur út úr því.


mbl.is Líkjast kommúnistaflokkunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Víða sótt um

helgaJHelga Jónsdóttir, fyrrv. bæjarstjóri í Fjarðabyggð var skipuð ráðuneytisstjóri í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu. Helga, eins og fleiri "atvinnuleysingjar", hefur haft nokkur járn í eldinum og sótti um á nokkrum stöðum.

Ég var eiginlega búinn að ráða hana sem ráðuneytisstjóra í velferðarráðuneyti Guðbjarts Hannessonar, en þar lá umsókn hennar einnig, eins og lesa má á bloggi mínu frá 29. sept. sl. (sjá hér)

Ég óska Helgu velfarnaðar í nýju starfi. Ég er sannfærður um að hún mun standa sig vel.


mbl.is Helga Jónsdóttir skipuð ráðuneytisstjóri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hægðastífla

Það væri auðvitað hægt að hlæja að þessu ef þetta væri ekki fokdýrt fyrir þjóðfélagið, núna á síðustu og verstu.... Auk þess sem samgöngurnar við Vestmannaeyjar eru eiginlega verri en á byrjunarreit. Stundum er sagt að verkfræðingar "pissi upp í vindinn", en hönnuðir Landeyjarhafnar hljóta að teljast hreinlega hafa gert í brækurnar. FootinMouth

Jæja, hér er vonandi eitthvað sem þið getið hlegið að. Einhverra hluta vegna finnst mér þessi eiga ágætlega við fréttina.... Joyful

------------------------------------------

hægðatregðaHaraldur fór til læknis um daginn og sagði lækninum að hann hefði ekki haft hægðir í nokkra daga og það væri farið að valda honum verulegum óþægindum.

Þegar læknirinn hafði skoðað og hlustað Harald rækilega, sagði hann: "Sjáum nú til, þú býrð fyrir utan bæinn, er það ekki?" Haraldur kinkar kolli.

"Ok, þú ekur innanbæjar á 50 km. hraða og svo ekurðu á 90 km. hraða þegar þú kemur út fyrir bæjarmörkin og ekur 10 kílómetra, ekki satt?" Aftur kinkar Haraldur kolli.

"Svo beygirðu út af þjóðveginum á mjóan malarveg og þessa þriggja kílómetra leið að húsinu þínu, ekurðu á u.þ.b. 60 km. hraða. Er það ekki rétt?" Enn á ný kinkar Haraldur kolli.

Læknirinn fer þá ofan í gamla leðurtösku, dregur upp litla flösku og segir við Harald: "Ég ætla að gefa þér þessa öflugu laxerolíu. Þú drekkur hana núna, en svo verður þú að fara beinustu leið heim. Þú mátt hvergi stoppa eða aka hægar en venjulega". Og Haraldur gerði eins og læknirinn sagði honum.

aðdáunFáeinum dögum síðar, hittir Haraldur lækninn á förnum vegi, heilsar honum og segir glaðlega við hann og með aðdáunarsvip: "Þú hefðir átt að verða verkfræðingur eða stærðfræðingur. Það var alveg lygilegt hvað þú gast reiknað þetta nákvæmlega út.... þetta með laxerolíuna."

Læknirinn svaraði hæversklega, "Það gleður mig að þér skuli líða betur. Svo þú hefur náð á salernið?"

"Nei", útskýrði Haraldur, ennþá með aðdáunarsvipinn: "Þú varst þrem metrum of stuttur".


mbl.is Betra útlit fyrir Landeyjahöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vefurinn er ekki enn nægjanlega spunninn

köngulóÞegar könguló spinnur vef sinn, þarf hann að vera nægjanlega sterkur til að halda bráðinni. Svo þegar bráðin er föst í vefnum, á hún eftir að reyra hana snyrtilega í spennutreyju vefþráðanna, svo hún geti sogið makindalega alla næringu úr feng sínum.

Köngulóin veit að ekki þýðir að vinna flausturslega við vef sinn, heldur gefur sér tíma og vandar til verksins.


mbl.is ESB hafnar hugmyndum Ögmundar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband