Færsluflokkur: Bloggar

Hvenær er sú hugmynd, kommúnistum fjarri?

Það er ömurlegt að verða vitni að því, daga eftir dag, viku eftir viku, hvernig "föðurlandsvinirnir" í V-grænum, (og fáeinir úr Samfylkingunni) gera allt sem í þeirra valdi stendur til að tefja framkvæmdirnar í Helguvík. Sömu aðferðum munu þessir stjórnmálamenn beita af fullum þunga, um leið og einhver frekari skriður kemst á málin á Bakka við Húsavík.

Þegar þessi afturhaldsöfl hafa lokið sér af, mun orðspor Íslands sem viðskiptalands hafa beðið slíka hnekki, að mörg ár mun taka að vinna traustið til baka. En það mun auðvitað ekki gerast nema kjósendur víki þessum stjórnmálamönnum frá í næstu kosningum.

Ég held að bókstafur laganna sé andanum æðri. Það yrði óásættanleg áhætta fyrir ríkið að fara í málaferli vegna riftunar samninga. En svo kom rúsínan í pylsuendanum hjá Steingrími, en það var auðvitað eignarnámsleiðin.

Hvenær er sú hugmynd kommúnistum fjarri? Errm


mbl.is Lögmæti Magmasölu túlkunaratriði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Varð aldrei samur eftir Fischer

 Hér er lausleg þýðing mín úr fréttabréfi  "The Internet Chess Club" sem ég er áskrifandi að:

blarsen

Einn sterkasti stórmeistari síns tíma, danska goðsögnin Bent Larsen, andaðist í Buenos Aires, Argentínu, eftir stutt veikindi. Hann var 75 ára gamall.

Hinn sexfaldi danski meistari komst fjórum sinnum í áskorendaeinvígi um heimsmeistaratitilinn (1965, 1968, 1971 og 1977). Hann vann þrjú svæðamót sem voru undankeppnir fyrir áskorendaeinvígi og ótal mörg alþjóðleg stórmót. Larsen vann 5 stórmót í röð; Havana 1967, Winnipeg 1967, Palma de Mallorca 1967, Sousse 1967 og Monte Carlo 1968. Engum skákmanni í heiminum, sem ekki er ríkjandi heimsmeistari hefur auðnast slíkur árangur. Árið 1967 fékk hann "Chess Oscar", eða "Skák Óskarinn", þegar hann var veittur í fyrsta sinn.

Larsen var fyrsti vestræni skákmeistarinn sem eitthvað hafði í sovésku skákvélina að gera, eftir seinni heimsstyrjöldina. Á árunum fram að "Bobby Fischer 1972", var Larsen álitinn líklegri kandidat en Fischer sem næsti heimsmeistari í skák. Enda mótmælti Larsen því að vera settur á 2. borð og Fischer á 1. borð, þegar FIDE skipulagði skákmót þar sem sterkustu skákmenn Sovétríkjanna öttu kappi við heimsúrvalið árið 1970. Mótmæli Larsens báru árangur og Fischer var færður niður um borð fyrir Larsen. Í sjaldgæfri auðmýkt lét Fischer sér þetta lynda og gaf Larsen eftir tækifæri til að tefla við ríkjandi heimsmeistara, Boris Spassky.

Það má þó e.t.v. segja að þrátt fyrir frábæran feril Larsens sem skákmanns, með mörgum sigrum og dýrðardögum, beri 6-0 ósigur hans gegn Fischer í áskorandaeinvíginu 1971, hæst og verði minnst lengst í skáksögunni.

Larsen varð fyrir miklu sálfræðilegu höggi við þá útreið sem hann fékk í einvíginu við Fischer og margir segja að ósigurinn hafi markað upphafið á því að hann missti metnaðinn og áhugan til að reyna að verða heimsmeistari.... og reyndar heyrðist oft sagt að Larsen hafi aldrei orðið sami skákmaðurinn á ný, eftir þessi viðskipti sín við Fischer.

Larsen hefur búið í Argentínu frá því laust eftir 1960, með þarlendri eiginkonu sinni. Ein af mörgum arfleifðum Larsens til skáklistarinnar er hið frábæra safn 50 skáka sem hann gaf út í bók sinni: "Larsen´s Selected Games of Chess 1948-69". (Bókin er einnig þekkt undir nafninu "Larsen: Master of Counter-Attack") - svo sannarlega frábær bók og ómissandi í hvert bókasafn.


Magnað samband

Bent Larsen er tengdur íslenskri skáksögu órjúfanlegum böndum. Merkilegt hvað kappleikir þeirra Friðriks höfðu mögnuð áhrif á þjóðina.... Og þó ekki Errm

Ef við ættum í dag kornungan stórmeistara á fljúgandi uppleið, sem væri að fara tefla einvígi við Magnus Carlsen í Laugardalshöll, þá er ég hræddur um að gríðarleg stemning myndaðist í þjóðfélaginu. Ekki síst við þær aðstæður sem uppi eru eftir þær hremmingar sem dunið hafa á okkur undanfarin misseri.

larsen

Myndir af heimasíðu Skáksambands Íslands


mbl.is Eftirsjá að gömlum félaga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Menn og dýr

 Sumir eiga ekki að koma nálægt dýrum. Sumir eru eiginlega bara "dýra óvinir"

Ég held að þannig fólki sé ekki treystandi fyrir nokkru lífi. Ég myndi að minnsta kosti ekki láta svoleiðis manneskju passa barnið mitt. Errm

Í fyrrakvöld var ég í ökutíma með nemanda mínum. Það var komið myrkur og ég ákvað að gott væri að æfa hann í akstri á malarvegi í myrkrinu. Ég lét því nemandann aka sem leið liggur á suðurströnd Reyðarfjarðar í átt að Vattarnesi. Um eða yfir 20 kílómetrar er að fyrsta bæ á suðurströndinni, sem er Þernunes. Mitt í þessu 20 km. óbyggða svæði, sjáum við glitta í tvö augu á vegbrúninni. Við vorum á tiltölulega hægri ferð og fyrst hélt ég að þetta væri refur eða minkur, en svo sá ég að þetta var skelfingu lostinn kettlingur.

Ég lét ökunemann stöðva og steig út og rýndi í myrkrið fyrir aftan bílinn. Þá heyrði ég ámáttlegt mjálm sem samstundis bræddi hjarta mitt. Blush Þegar ég gekk í átt að mjálminu, fór sjónin að venjast myrkrinu, sem þó var ekki alveg að fullu skollið á. Ég sá hreyfingu út í móanum í nokkurra metra fjarlægð frá veginum.

Ég gekk í áttina að mjálmandi kettlingnum, en þá skyndilega breyttist tónninn í honum úr yndislega "hjálp, ég er svo lítil" mjálminu í illilegt vein eins og það gerist verst hjá köttum. "Nú, já!", hugsaði ég með mér, "þetta er villiköttur", og sneri dauðskelkaður við. En þá kom blíðlega mjálmið aftur.... og ég sneri við.

Það tók mig 20-30 mínútur að ná kettlingnum. Ég talaði blíðlega til hans og sagði "kisi minn" í hverri setningu. Eftir nokkrar mínútur hætti illilega veinið og ég komst mjög nálægt honum. Ég rétti út höndina og hann læddist varlega nær og þefaði af puttunum. Ég var samt eiginlega ekki alveg viss hvort þetta væri villiköttur eða ekki og hafði því varan á mér. Ég prófaði að strjúka puttanum yfir kollinn en þá stökk hann í burt en kom strax aftur. Honum þótti þetta greinilega gott.

Kettlingurinn virtist mjög hræddur og vissi ekki hvort mér væri treystandi. Ég fékk þó að klappa honum meira og meira en þegar ég reyndi að lyfta honum upp, þá setti hann strax út klærnar og vildi losna. Ég lyfti honum smávegis upp í nokkur skipti og setti hann svo niður. Svo lengdi ég tíman sem ég hélt á honum og strauk létt um hálsinn í leiðinni. Feldurinn var silkimjúkur og ég var orðinn sannfærður um að þetta væri heimilisköttur. Einhver hefur haft fyrir því að keyra marga kílómetra út fyrir bæinn og fleygt svo greyinu út í móa til að deyja úr vosbúð og hungri.

Skyndilega fann ég að hann treysti mér fullkomlega. Það var skemmtilegt augnablik. Ég gekk með hann í fanginu að bílnum og lét nemandan halda á kettinum og svo keyrði ég heim. Ökutíminn fékk snubbóttan endi en neminn var alveg sáttur við það þó honum liggi á að fá prófið. Hann var hugfanginn af þessu verkefni eins og ég en treysti sér þó ekki til þess að taka kettlingin að sér þegar ég spurði, því fyrir væri einn köttur á heimilinu og það væri nóg.

Kettlingurinn var skelfilega umkomulaus og hræddur og að auki horaður í meira lagi.  

008Á mínu heimili er rúmlega tveggja ára gömul silki terrier tík, eða "ástralskur rottuhundur", eins og þessi tegund hét í upphafi. Það þóttu fínu frúnum í London hins vegar ekki nógu fínt nafn, snemma á síðustu öld, en þá var þessi hundategund vinsæl meðal hefðarkvenna. "Silki terrier" þótti frekar við hæfi. Joyful 

Tíkin okkar er óttaleg dekurrófa og er frek eftir því en veit þó alveg sín mörk á heimilinu. Hún æsist skelfilega upp ef hún sér önnur dýr, sérstaklega hunda og þá helst stóra hunda. Þá rífur hún ógurlegan kjaft.... en bara ef hún er í taumi og ríghaldið er í hann. Sömuleiðis æsist hún upp ef hún sér dýr í sjónvarpinu og þá geta orðið hvimleið læti í henni.

Eftir rúmlega hálfan sólarhring var óhætt að sleppa þeim lausum saman, en í byrjun trylltist tíkin og ætlaði að murka lífið úr kettlingnum á augabragði. Undecided

001002

 

 

 

 

 

Nú eru þau orðin nokkuð sátt en þó finnur maður á tíkinni að hún er stundum ráðvillt og veit ekki almennilega hvað er í gangi. Mér finnst hún þó ekki kæra sig um þennan "gest" til langframa, heldur sættir sig við hann eftir fortölur okkar. Þó hefur hún lúmskt gaman af kettlingnum en hugmyndir þeirra um að "koma að leika" eru ill samræmanlegar. Errm

003

Þarna stillir hún "Dúva" okkar sér upp með "gestinum".

007

Ég hef lítinn frið fengið hérna í sófanum með fartölvuna í kjöltunni, til að skrifa þetta blogg. Kisu, (sem er læða) finnst voða gott að kúra í hálsakotinu á milli þessi sem hún er að borða og leika sér. Svo ef ég stend upp frá tölvunni og sný til baka, hefur hún legið marflöt yfir lyklaborðinu og fílar ylinn. Joyful

004

Þetta er gott eintak, kassavön, kelin, blíð og skemmtileg, sennilega um 8-9 vikna gömul. Hún var greinilega kvekkt í byrjun en er alveg búin að jafna sig, enda fengið gott atlæti.

En nú vantar hana nýtt heimili. Er ekki einhver þarna úti sem vill eignast fallegan og góðan kettling? Endilega hafið samband í síma 844 9133, ef þið eruð sannir dýravinir. Þið hin megið bara sleppa því.


mbl.is „Heimskur heimskari á ferð"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við skiljum.... kæru vinir

Kæru Færeyingar,

þið þurfið ekkert að skammast ykkar fyrir þetta, það eru líka til svona brenglaðir einstaklingar á Íslandi. Þið eruð okkar bestu vinir, það vitum við Íslendingar.

Bestu kveðjur frá Reyðarfirði, Íslandi.


mbl.is Segir Færeyinga skammast sín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

OR og stöðugleikinn

Hækkun OR um daginn mun skapa mikinn óróleika í kjaraviðræðum á næstunni. Þessi fáránlega mikla hækkun mun setja allt úr skorðum. Áhrifin af hækkuninni fara að sjálfsögðu inn í vísitöluna og bitna á öllum landsmönnum.

Trúðurinn verður okkur dýr. Undecided


mbl.is Óttast verðhækkanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ein kona

Heldur er það rýrt, hlutfall kvenna á umsækjendalistanum. Aðeins 1 kona en 21 karl.

Hverjum geta feministar um kennt? Errm

fem-russ


mbl.is 22 sóttu um embætti fiskistofustjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En hvað ef....?

Ef evrópskur þjóðarleiðtogi, að ég tali nú ekki um bandarískur, léti það út úr sér í múslimsku ríki, að þegnarnir ættu að snúa sér til Kristinnar trúar, er ég hræddur um að viðbrögðin yrðu ansi blóðug. Þessu yrði mótmælt heiftúðlega og með hótunum um líflát kristinna manna hvar sem til þeirra næðist.

Mótmæli myndu brjótast út á strætum og torgum og fána og bókabrennur yrði algeng sjón í fréttamyndum frá Mið-Austurlöndum og víðar. Hryðjuverk yrðu framin.

Svona yfirlýsing myndi kosta fjölda mannslífa.

Calling%20Us%20Violent


mbl.is Gaddafi: Evrópubúar ættu að skipta um trú
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á rangri hillu eins og Megas

Trúðurinn fellir tár yfir örlögum sínum.

Megas er að mínu áliti merkasta dægurlagaskáld 20. aldarinnar á Íslandi. Textar hans bera af eins og gull af eiri og túlkun hans sjálfs á lögum sínum og ljóðum er einstök. Ekki verður Megasi þó hrósað fyrir ómþýða rödd sína.´

Fyrir um áratug síðan eða svo, fréttist af því að von væri á skáldsögu með sögulegu ívafi eftir Megas. Ég beið afar spenntur eftir bókinni. Áður en ég fékk bókina í hendur las ég ritdóma í blöðum um hana. Bókin var rifin niður.

Ég byrjaði að lesa þetta bókmenntaverk Megasar en ég gafst upp eftir nokkra tugi blaðsíðna. Ofhlaðið orðskrúði og greinilega reynt að vera sem mergjaðastur í orðavali. Klámfengið án erótíkur. Mér vitanlega hefur Megas ekki reynt fyrir sér aftur á þessu sviði.

Leikskólinn Lyngholt hér á Reyðarfirði hefur gert eftirfarandi að einkunarorðum sínum:

"Allir geta eitthvað, engin getur allt".

Það er mikið til í því.

Jón Gnarr er ekki stjórnmálamaður, hann er listamaður og grínisti. Eitt augnablik þá datt honum í hug að hann gæti orðið góður stjórnmálamaður. Megasi datt líka í hug að hann gæti orðið rithöfundur. Það var á misskilningi byggt Errm


mbl.is Sýni auðmýkt en fæ töffaragang á móti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Má ekkert segja?

Það hefði e.t.v. mátt orða þetta eitthvað öðruvísi, en innihald orða Björgvins er samt alveg rétt. Það á að vera hluti af hjálparstarfi Stígamóta að fjalla um þessa hluti, þ.e. að auðvitað ber hver og einn ábyrgð á sjálfum sér.

Hvort sem fólki líkar það betur eða ver þá eru skilaboð fólgin í því hvernig konur haga sér og klæða sig. Ef við ímyndum okkur unga stúlku, nærbuxnalausa í stuttu pilsi, sem er ófeimin við að sýna dýrð sína á skemmtistað og fer svo með ókunnugum mönnum í samkvæmi. Errm

Ef konunni er nauðgað í samkvæminu, þá er það að sjálfsögðu ekki henni að kenna..... en hún hefði getað "presenterað" sig öðruvísi fyrir umheiminum. Forvörnin í þessum málum getur alveg snúist um að kenna konum að koma sér ekki í hættulegar aðstæður.

nauðgun


mbl.is Björgvin hættir sem yfirmaður kynferðisbrotadeildar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband