Færsluflokkur: Sakamál

Fuðuleg vinnubrögð

Vitstola maður skýtur úr byssu í allar áttir úr íbúð sinni. 

Tveir óvopnaðir lögreglumenn fá óbreyttan borgara (lásasmið) skömmu síðar til að opna íbúðina og verða fyrir skotárás.

Þeir leita skjóls hjá óbreyttum borgurum í íbúð fyrir ofan. 

Eftir um tveggja tíma umsátur og búið var að rýma stigaganginn og loka svæðinu í kringum húsið, ráðast vopnaðir sérsveitarmenn inn til mannsins og drepa hann.

Það er eitthvað verulega mikið að við þessa atburðarrás. 


mbl.is Lögreglan leitaði skjóls hjá fjölskyldu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Margar spurningar vakna

Þurfti að skjóta manninn?

Hann var einn í íbúðinni og augljóslega ekki að fara neitt. Búið var að rýma nærliggjandi íbúðir og haglabyssa er ekki hættuleg á löngu færi.

Lá á að lögreglan færi í návígi við manninn? 

Ég hélt að til væru einhver svæfingarmeðul (gas), hljóðsprengjur og fleira í þeim dúr sem lamar eða ruglar fólk tímabundið. 

Ég er ekki að fullyrða neitt.... en maður spyr sig. 


mbl.is Féll fyrir skotum lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er spark í punginn kynferðisbrot?

Mér finnst út í hött að beita dómstóla þrýstingi svo þeir dæmi eftir tilfinningu almennings. Dómarar eiga dæma samkvæmt lagabókstaf og engu öðru. Ef þessi dómur Hæstaréttar er rangur að mati almennings, en þó eftir laganna bókstaf, þá þarf að breyta lögunum. Mótmælin ættu því að fara fram við Alþingishúsið en ekki við dómsali.
mbl.is „Nauðgun er ekki kynlíf“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Árás á sjálfstæði dómstóla

Þessi skúringagjörningur er í meira lagi ógeðfelldur að mínu mati. Leikmenn vilja hreinsa út Hæstarétt og dæma öðruvísi en hinir löglærðu menn gera.

"Burt með hina löglærðu, látum dómstól götunnar sjá um þetta!" Whistling 


mbl.is „Skúrað út úr“ Hæstarétti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mjólkun í Kastljósi

Er ég að biðja um þöggun þó mér finnist Kastljósið og aðrir fjölmiðlar mjólka þetta Karls Vignis mál? Nei, alls ekki en mér finnst dálítið langt gengið að hafa alla Kastljóssþætti í heila viku undirlagða í þessu. Errm
mbl.is Kærður fyrir ófyrnd kynferðisbrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Peningaþvætti í gegnum flugeldasölu Landsbjargar

Líknarfélög og góðgerðarsamtök eru vinsælar "peningaþvottastöðvar" fyrir glæpamenn. Þetta er sorglegt mál og vonandi skaðast björgunarsveitirnar ekki vegna þessa.

Myndband/hljóðupptakan er hér:

 http://www.youtube.com/watch?feature=player_embedded&v=jLOfjm1fN1o


mbl.is Óskar eftir leyfi vegna umfjöllunar DV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kaupa ökuskírteini

dl-photoAtvinnurekandi hér á Austurlandi spurði mig fyrir nokkru síðan hvort ég væri eitthvað með Pólverja í ökunámi. Ég sagði honum að ég hefði haft fáeina. Þá sagði hann mér að hann hefði heyrt á tal Pólverja sem voru í vinnu hjá honum að þeir keyptu fölsuð ökuskírteini í Póllandi.

Miklu ódýrara fyrir þá og lítil fyrirhöfn.


mbl.is Keyptu vegabréfin í Póllandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef morðingi gengi laus?

Ef morð hefði verið framið og morðinginn gengi laus, þá hefði þetta verið leyft á grundvelli almannahagsmuna. Það sama á að sjálfsögðu að gilda þegar nauðgari gengur laus en í þessu tilfelli er væntanlega um "meintan" nauðgara að ræða.... hvort sem fólki líkar betur eða verr Errm
mbl.is Fá ekki gögn í nauðgunarrannsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bílastæði fyrir fatlaða

Ómar Ragnarsson skrifar góðan pistil á bloggsíðu sinni um fólk sem virðir ekki stæði fatlaðra. Getur verið að viðurlög við þessu umferðarlagabroti séu ekki nógu hörð?

Myndina hér að neðan tók ég í Bandaríkjunum í sumar. Allt að 200 dollara sekt ef þú leggur í stæði merkt fötluðum. Á genginu í byrjun júní eru þetta rúmlega 25.000 krónur. Ég held ég fari rétt með að sektin hér sé 5.000 krónur en lögreglan á Íslandi er hins vegar ekki á höttunum eftir lögbrotum af þessu tagi.

Loka Kleinuhringjabúðinni? Happy

016 (640x427)


Kemur lögbrot lögreglunni ekki við?

Í lögum um fjöleignarhús nr. 26/1994, 74. gr., 2. liður:

"Bann við röskun á svefnfriði í húsinu a.m.k. frá miðnætti til kl. 7 að morgni og undanþágur frá því banni."

Lögreglunni hlýtur að vera skylt að sinna útköllum þegar lög eru brotin.


mbl.is Ekki hægt að sinna kvörtunum vegna partíhalds
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband