Renndu menn blint í sjóinn á Bakkafjöru?

Einhver þarf að taka skömmina fyrir Landeyjarhöfn. Hver á það að vera? Errm Sótt er um að eyða miljón á dag.... aukalega, til þess að "reyna" að halda höfninni opinni.

Það er greinilegt að eitthvað hefur verið skakkt reiknað, eða ekki reiknað... með.      Til eru mörg dæmi um hönnunarfeila og oft eru þeir ansi skondnir eins og ég sýni á nokkrum myndum hér að neðan.

 En það er ekkert fyndið við klúðrið við Landeyjarhöfn. Hvorki fyrir fólkið sem stólar á þessa samgönguæð né hálftómann vegasjóð.  Klúður af þessari stærðargráðu hlýtur að komast í sögubækur, jafnvel á heimsvísu.

Renndu menn blint í sjóinn á Bakkafjöru? Var þetta tilraunaverkeni? Lágu hönnuðir undir pólitískum þrýstingi?

arc2

Architecture-Fail

arc3

a-crazy-buildings-architecture-2

Svo er hér að lokum "Funky unconventional" (verður ekki flokkað sem slys Joyful)


mbl.is 350 milljónir í Landeyjahöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Sæll. Hér koma nokkur atriði sem ekki var hlustað á heimamenn, Héðinsfjarðargöng, Víkurskarð, Vatnsskarð niður að Húnaveri, að koma að Ólafsfjarðargöngum. Á þessu má ráða að fólk er fífl og arkitektar eru ekki í tengingu við raunveruleikann ný komnir úr úr skóla og hafa ekki vit á því sem þeir eru að gera!

Sigurður Haraldsson, 16.10.2010 kl. 00:23

2 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Já náttúran fer sínu fram og vinnur að því að mynda granda út í Vestmannaeyjar. Sandurinn er ekki að fara, hann er að koma eins og einhver sagði. Alveg stórundarlegt að þetta skuli ekki fattast fyrr en eftirá.

Emil Hannes Valgeirsson, 16.10.2010 kl. 01:33

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þarna var alveg "gríðarleg" pólitík á ferðinni og mikil harka.  Alveg frá árinu 2007 hef ég gagnrýnt þessa framkvæmd mjög mikið en fylgjendur hennar hafa ekki tekið neitt mark á nokkru sem hefur verið skrifað og yfirleitt var mér bent á það að ég væri nú ekki neinn sérfræðingur svo voru ýmsar glósur látnar fylgja með.  Við sjáum hverju "sérfræðingarnir" komu til leiðar.  Ég held að því fyrr sem það verður viðurkennt að þarna var um ALGJÖRT FLOPP að ræða og menn hætti að halda þessari vitleysu gangandi, þeim mun betra og þá verður hægt að setja peninga sem annars hefði verið hent í sandinn í Landeyjahöfn settir í nýja og betri ferju, sem gengi milli Þorlákshafnar og Eyja.

Jóhann Elíasson, 16.10.2010 kl. 07:59

4 identicon

Mér sýnist menn hafa rennt blint í sjóinn að tvennu leyti.

1: Að reikna með því að þetta myndi hreinsa sig sjálft.

2: Að reikna alfarið með Herjólfi, sen er nokkuð djúpristur.

Það er ekkert nýtt að það þurfi að hreinsa innskiglingar, og þess þurfti lengi vel við í Heymaey (ca 1923-1973?), og svo á mörgum stöðum á landinu.

Svo er höfnin ekkert lokuð, - bara of grunn fyrir Herjólf sjálfan. Væri gaman að vita dýptina núna.

Og svo er....flóð og fjara.......

Jón Logi (IP-tala skráð) 16.10.2010 kl. 08:15

5 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Þessi höfn er og verður sandfang!

Sigurður Haraldsson, 16.10.2010 kl. 08:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband