Á hann sér einhverjar málsbætur?

ss"Skrímslið í Bolzano", fangavörður úr SS-sveitum, ... þarf að ræða það eitthvað frekar? Errm

Tja,... í mínum huga vakna nokkrar spurningar. Fangavörðurinn Michael Seifert, hefur verið rétt um tvítugt þegar þessir atburðir áttu sér stað. Grimmdarverkin voru hryllileg á báða bóga og hatrið og heiftin var hluti af eðlilegu uppeldi ungs fólks.

 Hver var bakgrunnur fangavarðarins unga? Hver var staða hans í SS-sveitunum? Hvenær var vitnisburðurinn gegn honum skráður fyrst? Er möguleiki að vitnin fari mannavillt eða að ákæruliðirnir séu uppsafn voðaverka sem fangar urðu vitni að og sameinuðu í einum manni sem náðist. Eina manninum sem gat náðst, vegna ungs aldurs.

Ég þekki ekki mál Michaels Seifert en ég efa í sjálfu sér ekki að hann hafi átt þátt í voðaverkum í Bolzano fangabúðunum. Mál hans virtist gleymt og grafið þegar skjöl um hann fundust af tilviljun árið 1994.

Nokkru áður en Seifert var dæmdur árið 2000, hafði annar tveggja yfirmanna búðanna verið sýknaður vegna skorts á sönnunum.


mbl.is „Skrímslið í Bolzano" lést á sjúkrahúsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar

Áttu við að það sé í lagi að nauðga og drepa ólétta konu og stinga augun úr fólki ef eitthvað er hægt að setja út á uppeldið ?

Óskar, 7.11.2010 kl. 16:53

2 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Skortur af sönnunum

Sigurður Haraldsson, 7.11.2010 kl. 18:01

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Nei, ég er ekki að segja það, Óskar

Gunnar Th. Gunnarsson, 7.11.2010 kl. 18:01

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

 Góðir lögfræðingar eru gulls ígildi og kosta samkvæmt því. Seifert hefur e.t.v. ekki átt nóg.

Gunnar Th. Gunnarsson, 7.11.2010 kl. 18:04

5 Smámynd: Bragi Sigurður Guðmundsson

Hann Seifert átti enga möguleika gegn gyðingunum sem eru með ómælda fjármuni og fjölda lögfræðinga.

Bragi Sigurður Guðmundsson, 7.11.2010 kl. 20:30

6 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Það gæti nefnilega verið, Bragi..... eða ekki

Gunnar Th. Gunnarsson, 7.11.2010 kl. 22:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband