Stenst sakfelling vegna 17. gr. stjórnarskrár, nánari skoðun?

Landsdómur virtist grípa tæknilegt atriði (formsatriði) fegins hendi til að réttlæta hina pólitísku herferð gegn Geir Haarde og Sjálfstæðisflokknum. Segir svo í dómsorðum að brotið hafi verið alvarleg; "Stórfellt gáleysi", en samt er brotið refsilaust og málsvarnarlaun greidd úr ríkissjóði. FootinMouth

Dæmt er samkv. 17 grein stjórnarskrárinnar, sem segir:

"Ráðherrafundi skal halda um nýmæli í lögum og um mikilvæg stjórnarmálefni. Svo skal og ráðherrafund halda, ef einhver ráðherra óskar að bera þar upp mál. Fundunum stjórnar sá ráðherra, er forseti lýðveldisins hefur kvatt til forsætis, og nefnist hann forsætisráðherra"

Ef á að halda sig við tæknileg atriði, þá má benda á að í 17. greininni er hvergi sagt beinum orðum að forsætisráðherra eigi að boða til ráðherrafunda en tekið sérstaklega fram að hvaða ráðherra sem er getur boðað til fundar.

Einungis er talað um í greininni að "ráðherrafundi skuli halda..."

Fundarstjórar bera ekki ábyrgð á því hvort boðað sé til funda. Þeir stjórna fundunum.


Taka undir ályktun frá sjálfum sér?

saveHverjir á þessu "Náttúruverndarþingi" taka undir ályktun 13 náttúruverndarfélaga? Er það ekki sama fólkið og samdi þær ályktanir? FootinMouth
mbl.is Réttilega færð úr nýtingu í bið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjánaleg regla

Hver nákvæmlega kvartar yfir því að ökunemar hafi ekki uppfyllt skilyrði til að öðlast ökuleyfi og hversu algengt er það?

Ég fæ ómögulega séð að slíkt sé umkvörtunarefni sé svaravert. Er þetta "ónæði" fyrir einhvern blýantanagarann? Það þarf og hefur þurft að sækja um prófheimild að loknu ökunámi og það á að nægja. Nýja reglan skapar óþarfa fyrirhöfn fyrir nýja ökunema. Þeir eiga að geta hringt í næsta ökukennara og hafið nám.

 Ef um útlending er að ræða, uppfræðir ökukennarinn nemann um búsetuskilyrði og ef um ungling er að ræða, kannar ökukennarinn hvort viðkomandi uppfyllir aldursskilyrði. Ef vafi leikur á að nemi uppfylli kröfur um andlegt og líkamlegt atgervi, eru fagmenn látnir meta það.

Síðuhöfundur er ökukennari.


mbl.is Námsheimild einsdæmi á Íslandi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engar upplýsingar á þýsku

Þegar ég var þarna minnist ég þess að ýmsar upplýsingar í Auschwitz, á skiltum o.þ.h., voru á mörgum tungumálum en ekki á þýsku. Samt eru Þjóðverjar fjölmennastir þeirra sem heimsækja þetta fyrrum Helvíti á Jörð.

wall

"The Wall of Death" Við þennan vegg er talið að um 7.000 manns hafi verið skotnir. Vinstra megin á myndinni eru staurar sem menn voru látnir hanga í við óbærilegar kvalir, bundnir með hendur fyrir aftan bak.


mbl.is Heimsótti Auschwitz
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stóra bílastæðamálið

Mér skilst að það sé þekkt erlendis að ráðist sé á fólk í bílastæðahúsum og þá sérstaklega konur. Glæpamennirnir liggja í leyni þar sem umferð er minnst, í útjöðrum bílastæðahúsanna.

Ef við gefum okkur að um helmingur bílstjóra sé kvenkyns, þá er dálítið erfitt að fullnægja kröfum þeirra allra að fá stæði á besta stað. Ef árásir í bílastæðahúsum á Íslandi verða sérstakt vandamál, þá er þetta varla besta lausnin.


mbl.is „Óheppilegar“ merkingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef bæði báðu til Guðs....?

... bað þá Agnes meira? Suðaði hún? "Veldu mig! Veldu mig! Veldu mig!"

19


mbl.is Agnes næsti biskup Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Drengjametið í leka

653-220Ef einhver hefði átt að fara fyrir Landsdóm, þá var það Björgvin G. Sigurðsson, bankamálaráðherra.

Hann hafði ekki einu sinni fyrir því að fá fund með Seðlabankastjóra allt árið 2008 og verkstjórinn  hans, Ingibjörg Sólrún, treysti honum ekki til að vera með í ráðum í aðdraganda hrunsins. Bæði vegna almenns vanhæfis, en einnig og ekki síður vegna þess hversu lausmáll hann er.

Össur Skarphéðinsson er sagður eiga íslandsmetið í lausmælgi en Björgvin G. ku eiga drengjametið.

Þetta landsdómshneyksli var pólitísk atlaga að Geir Haarde og Sjálfstæðisflokknum. Um það vitnar atkvæðagreiðsla Samfylkingarinnar á Alþingi um hverjir skildu kærðir og hverjir ekki.

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Ólína Þorvarðardóttir, Helgi Hjörvar og Skúli Helgason greiddu öll atkvæði með ákæru á hendur Geir Haarde en gegn ákæru á hendur Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur.

Skúli Helgason og Helgi Hjörvar greiddu atkvæði gegn ákæru á hendur Björgvini G. Sigurðssyni.

Ömurlegt, hreint út sagt!


mbl.is Menn hugsuðu ekki skýrt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lausmælgi Björgvins G. var ástæða fárra formlegra ríkisstjórnarfunda

Þessum ákærulið sem Geir var dæmdur fyrir, var bætt við á síðustu stundu, en kemur upphaflegu ákærunum ekkert við, þ.e. að hrunið hafi verið Geir Haarde að kenna.

653-220Ég held að tilgangurinn með fáum opinberum ríkisstjórnarfundum hafi verið að halda Björgvini G. Sigurðssyni frá, því af fenginni reynslu af þeim manni var útilokað að halda trúnaði með hann við borðið. Þetta var gert með vitund og vilja Ingibjargar og Össurar.

Landsdómur segir að ríkisstjórnarfundir hefðu átt að marka pólitíska stefnu varðandi aðgerðir í aðdraganda bankahrunsins. Pólitísk stefna var fyrir hendi, bara án aðkomu Björgvins G., en hann hafði/hefur bara ekkert vit á þessum málum og aðkoma hans hefði ekki haft nokkurt vægi. Auk þess, eins og áður segir, var hann hættulegur við þessar aðstæður vegna lausmælgi sinnar.


mbl.is Mjög mikið áfall fyrir Alþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Erfitt að ræða ástandið í hriplekri ríkisstjórn

Aðilum innan Samfylkingarinnar var ekki treystandi fyrir upplýsingum um ástandið. Meira að segja Ingibjörg Sólrún vissi það og henni var fullkunnugt um stöðuna. Sennilega Össuri líka. Opinská umræða á ríkisstjórnarfundi, með Björgvin G. Sigurðsson við borðið, hefði verið ábyrgðarlaust tal og ávísun á trúnaðarbrot.

Fyrirsagnir fjölmiðla á fyrri hluta árs 2008, í þá veru að bankakerfið væri í mikilli krísu, hefði þýtt áhlaup á bankana. Engin "reiknaði" með að þeir væru að falla og menn héldu í vonina, en við slíkar fyrirsagnir hefði þeir farið lóðbeint á hausinn.

Spurningin er e.t.v. .... svona eftir á; "hefði það verið verra?"


mbl.is Bar að taka málið upp í ríkisstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

30 daga veðurmynd frá Reyðarfirði - myndband

Ég byrjaði að taka mynd út um stofugluggann hjá mér 19. mars og hef tekið eina til tvær myndir á dag síðan. (Flesta daga tvær og  í nokkur skipti þrjár). Ljósmyndin er tekin í morgun, 19. apríl, sumardaginn fyrsta.

1. sumardagur

Það skiptast á skyn og skúrir á Reyðarfirði sem annars staðar. Eins og sést á þessu myndbandi, hefur vorið látið bíða svolítið eftir sér á Austurlandi í ár.


mbl.is Vetur og sumar frusu saman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband