Þröstur á flótta

Í dag varð ég var við tvo skelli á gluggarúður heima hjá mér. Fyrst á svefnherbergisglugga sem snýr í vestur, svo á stofugluggann sem snýr í suður. Örfáar sekúndur voru á milli skellanna og ég vissi strax að fugl hefði flogið á rúðurnar. Ekki er ósennilegt að hann hafi verið á harðaflótta undan smyrli.

Þegar ég leit út um stofugluggann sá ég skógarþröst liggja hreyfingarlausan fyrir neðan. Ég fór út og tók hann upp. Hann virtist steindauður....

skógarþröstur

... en svo tók ég eftir að annað augað var örlítið opið og ég sá ekki betur en það leyndist líf í því. Ég fór inn með þröstinn og gerði létt hjartahnoð á honum. Augað opnaðist aðeins meira en hitt var áfram harðlokað. Svo opnaðist goggurinn. Hann opnaðist og lokaðist á víxl, ótt og títt eins og fuglinn væri að reyna að ná andanum.

Ég fór með þröstinn inn á baðherbergi og lagði hann í vaskinn og horfði á hann í dálitla stund... horfði á líftóru hans hjarna við. Svo stóð hann stóð upp óstyrkum fótum...

skógarþr

... og ég strauk honum um kollinn og talaði blíðlega til hans.

Ég þurfti að skreppa frá í klukkutíma og skildi hann eftir í vaskinum. Ég lokaði hurðinni... vildi ekki að kötturinn kæmist í hann.

Þegar ég kom til baka var hann eldsprækur og ég var dálitla stund að ná honum. Ég hélt á honum í greip minni og fór fram í stofu og sýndi kettinum. Kisi mjálmaði og langaði í hann. Ég tók utan um hausinn á þrestinum... með þumli og vísifingri... og þrýsti fast saman. Það heyrðist smellur, svona eins og þegar maður sprengir plastbólu. Svo fleygði ég hræinu í matardallinn hjá kisu.

Ég og kisa erum bestu vinir.

P.s. Úr því þú hafðir fyrir því að lesa þennan pistil á enda, endilega kíktu þá á athugasemdirnar Joyful


E.t.v. bara tímabundið?

gay
mbl.is Fékk heilablóðfall og varð hommi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB í 60 Minutes

ESB er eins og sjálfstætt ríki að mörgu leiti. Með eigin gjaldmiðil, sameiginlega utanríkisstefnu, byggðastefnu, styrkjastefnu, (niðurgreiðslur þvers og kruss) eigin fána og þjóðsöng o.s.f.v.

esb

Í bandaríska fréttaskýringarþættinum 60 Minutes, er sláandi umfjöllun um ástandið innan ESB. ESB hlutinn byrjar eftir 3.11 mínútur, sjá hér


mbl.is Betra að hætta en setja málið á ís
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gengið í hús í Fjarðabyggð

Framkvæmdir hefjist nú þegar við gerð Norðfjarðarganga

15.4.2012

Frá bæjarstjóra Fjarðabyggðar

Í dag og næstu daga verður gengið í hvert hús í Fjarðabyggð til þess að safna undirskriftum íbúa til að skora á Alþingi og ríkisstjórn Íslands um að framkvæmdir hefjist nú þegar við gerð Norðfjarðarganga. Meðlimir félagasamtaka, bæjarfulltrúar, bæjarstjóri, stjórnendur fyrirtækja og stofnana í Fjarðabyggð verða meðal þeirra sem ganga á milli húsa í bæjarhverfunum sex til þess að safna undirskriftum. Íbúar eru hvattir til þess að taka vel á móti því fólki sem bankar uppá í dag og næstu daga og safnar undirskriftum. Þá er vakin athygli á fésbókarsíðu áhugahóps um gerð Norðfjarðarganga.

Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri.

Áskorunin er eftirfarandi:

Áskorun til Alþingis og ríkisstjórnar Íslands

APRÍL 2012

Verklegar framkvæmdir við Norðfjarðargöng áttu að hefjast árið 2009, var frestað til 2011 og í drögum að nýrri samgönguáætlun er gert ráð fyrir frekari frestun, eða allt til 2015. Þessar tafir eru með öllu óásættanlegar fyrir íbúa og atvinnulíf vegna þeirra hamlandi og skaðlegu áhrifa sem núverandi vegur hefur á framþróun samfélagsins í Fjarðabyggð og lífsgæði íbúa á Austurlandi. Það er óforsvaranlegt að eitt öflugasta sveitarfélag landsins sé klofið í herðar niður með þeim hætti sem fjallgarðurinn um Oddsskarð gerir.

Við, undirrituð, skorum hér með á ríkisstjórn Íslands og Alþingi að gera nú þegar þær ráðstafanir, sem nauðsynlegar eru til að framkvæmdir við gerð Norðfjarðarganga megi hefjast svo fljótt sem auðið er, en eigi síðar en fyrir lok þessa árs, 2012.

 

Framkvæmdir hefjist nú þegar við gerð Norðfjarðarganga

Af vef Fjarðabyggðar, HÉR


mbl.is Vilja Dýrafjarðargöng framar í röðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vöktunin eftir brunann

Talað var um að lífríkið á svæðinu yrði hugsanlega marga áratugi að jafna sig á þessum sinubruna, hinum mesta sem sögur fara af. Ákveðið var að vakta lífríkið í einhver ár og rannsaka hversu lengi það yrði að jafna sig.

Nú eru liðin 10 ár frá "Mýraeldum". Gaman væri að sjá niðurstöður vöktunarinnar. Mig grunar að lífríkið hafi verið fljótt að jafna sig. Náttúran hefur nefnilega sterka tilhneigingu til að leita jafnvægis.


mbl.is Mýramenn minntust sinubrunans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert nýtt - gerist í öllum árum

Hreindýr falla úr hor í öllum árum, burtséð frá árferði. Einungis sterk og heilbrigð dýr lifa af veturinn og horfelli er eðlilegur gangur meðal viltra dýra í náttúrunni.

Hreindýrum hefur fjölgað undanfarin ár og þau eru farin að leita víðar. Horfallin dýr verða því auðfundnari. Ég dreg í efa að horfellir sé hlutfallslega meiri nú en áður en að sjálfsögðu er rétt að rannsaka þetta á faglegum grunni. Það er full ástæða til þess.


mbl.is Hreindýr að drepast úr hor
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað hefði Þóra, Samfylkingarkona sagt?

Óskabarn Samfylkingarinnar, ungur jafnaðarmaður

þóra

Þóra á sér sterkt bakland meðal vinstrimanna og einnig meða fjölmiðlamanna. Hún nýtur þess ríkulega í DV, sem kynnir hana sérstaklega á hverjum degi með stöðugum "fréttum" um allt sem henni viðkemur. 

JHANNA~1Eins og flestir vita er sami aðal eigandi að DV og að Smugunni, málgagni VG. Það er því ekki út í hött, DVG nafnið, sem gárungarnir hafa gefið þeim ómerkilega sorpmiðli.

Mér hrýs hugur við þeirri tilhugsun að Þóra Arnórsdóttir gerist talsmaður Jóhönnu Sigurðardóttur á Bessastöðum.


mbl.is Brown skuldar þjóðinni afsökun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gæsum fjölgar við Kárahnjúka

Eitt af helstu trompum andstæðinga virkjana á Austurlandi, (Eyjabökkum og við Kárahnjúka) var m.a. að gæsastofninn á Íslandi yrði fyrir skakkaföllum vegna framkvæmdanna.

Reyndar áttu hreinsdýrin að verða fyrir áfalli líka, ásamt spóum, lóum og selum, frá Fljótsdal til Héraðsflóa. Að ógleymdum blessuðum þorskinum á Austfjarðamiðum, vegna breytinga á vatnsrennsli. (Jú, þið lásuð rétt, náttúruverndarsamtök sögðu alþjóð frá þessu í fullri alvöru)

Lífríkið við Eyjabakka og Kárahnjúka hefur nú verið vaktað í 12 ár og Náttúrustofa Austurlands birti nýlega skýrslu vegna vöktunarinnar. Þeirrar skýrslu verður trauðla getið í áróðursritum náttúruverndarsamtaka, því niðurstaðan er þver öfug við heimsendaspár þeirra.

logo

"Í ljós kom að heiðagæsavarpið hefur aukist um rúman helming frá árinu 2000 á vöktuðum hluta vatnasviðs Kárahnjúkavirkjunar. Gæsunum hefur á móti fækkað á Eyjabökkum. Ekki er ljóst hver ástæðan er en því er velt upp í skýrslunni að svæði hafi verið orðið of þétt setið fyrir nokkrum árum og hluti fuglanna þar flutt sig annað."

Eins og segir í Austurglugganum .


mbl.is Hjörleifur með efasemdir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

No Jobs

stay-alive-hope-cash-jobs-bacon-liquid-funny-pictures-1329308967
mbl.is Í mál við Apple út af verði rafbóka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kemur lögbrot lögreglunni ekki við?

Í lögum um fjöleignarhús nr. 26/1994, 74. gr., 2. liður:

"Bann við röskun á svefnfriði í húsinu a.m.k. frá miðnætti til kl. 7 að morgni og undanþágur frá því banni."

Lögreglunni hlýtur að vera skylt að sinna útköllum þegar lög eru brotin.


mbl.is Ekki hægt að sinna kvörtunum vegna partíhalds
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband