Drengjametið í leka

653-220Ef einhver hefði átt að fara fyrir Landsdóm, þá var það Björgvin G. Sigurðsson, bankamálaráðherra.

Hann hafði ekki einu sinni fyrir því að fá fund með Seðlabankastjóra allt árið 2008 og verkstjórinn  hans, Ingibjörg Sólrún, treysti honum ekki til að vera með í ráðum í aðdraganda hrunsins. Bæði vegna almenns vanhæfis, en einnig og ekki síður vegna þess hversu lausmáll hann er.

Össur Skarphéðinsson er sagður eiga íslandsmetið í lausmælgi en Björgvin G. ku eiga drengjametið.

Þetta landsdómshneyksli var pólitísk atlaga að Geir Haarde og Sjálfstæðisflokknum. Um það vitnar atkvæðagreiðsla Samfylkingarinnar á Alþingi um hverjir skildu kærðir og hverjir ekki.

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Ólína Þorvarðardóttir, Helgi Hjörvar og Skúli Helgason greiddu öll atkvæði með ákæru á hendur Geir Haarde en gegn ákæru á hendur Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur.

Skúli Helgason og Helgi Hjörvar greiddu atkvæði gegn ákæru á hendur Björgvini G. Sigurðssyni.

Ömurlegt, hreint út sagt!


mbl.is Menn hugsuðu ekki skýrt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband