Sungið á Reyðarfirði - myndband

Halldór Gunnar kom til Reyðarfjarðar með upptökutækin sín fyrir nokkrum vikum. Jóhannes Kr. Kristjánsson var einnig að sjálfsögðu mættur ásamt tökumanni sínum til að dokumentera.

Ég tók þetta upp áður en ég skellti mér í sönghópinn. Á þessum myndbút er Halldór að kenna viðlagið og að því búnu var undirspil sett í gang og tekið upp í nokkur skipti. Í heildina tók þetta innan við klukkutíma. Reglulega gaman að þessu.


mbl.is „Með gæsahúð á hnjánum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útlánsvextir hækka en innlánsvextir lækka

Ég er með skammtímalán hjá Íslandsbanka og vextirnir af því hækkuðu í dag úr 9,17% í 9,25%. Þetta er auðvitað í takti við stýrivaxtahækkun Seðlabankans.

Venjan hefur verið sú að þegar svona vaxtahækkanir verða, þá hækki innlánsvextir einnig. Þessu er öfugt farið hjá Íslandsbanka.

Fyrir u.þ.b. 2 árum ákvað ég að setja vildarpunkta sem ég fæ fyrir kreditkortaveltu inn á verðtryggðan sparireikning. Reikningurinn er bundinn í 3 ár. Vextirnir snemma á síðasta ári voru 2,25%. Svo kom stýrivaxtahækkun en þá lækkuðu vextirnir í 2,05%. Snemma á þessu ári kom önnur stýrivaxtahækkun og þá lækkuðu vextirnir á þessum bundna reikningi í 1,8%. Í dag kom enn ein stýrivaxtahækkunin og viti menn, vextirnir á reikningi sem ég get ekki einu sinni hætt með og tekið út peningana, lækka niður í 1,7%. Ég er varnarlaus gegn þessu ofbeldi.

Við heyrum um ofurhagnað bankanna korteri eftir hrun.

Annað sem mér finnst fáránlega ósanngjarnt, en það er fjármagnstekjuskattur af verðbótum innlánsreikninga. Mér finnst sanngjarnt að borga skatta af tekjum, vaxtatekjum sem öðrum, en verðbætur eru ekki tekjur. Þær eru bætur á fjármagn vegna tjóns af verðbólgu.

20% skattur af vöxtum finnst mér of mikið en 20% skattur af verðbótum er glæpur. Sennilega flokkast þetta undir "Hvítflibbaglæp". Errm

 


mbl.is Stýrivextir hækka um 0,5 prósentur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá ætti svefnpokinn að koma sér vel

Nýja Wenger-fatalínan er nýkomin í verslanir og rýkur út Joyful

wenger fatalínan


mbl.is Wenger: Nú sef ég betur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hreindýr í Lóni - myndband

Ég keyrði suður til Reykjavíkur í dag (þriðjudag) og sá þessi hreindýr við bæinn Hlíð í Lóni og þreif upp myndavélina. Þarna má glögglega sjá að hreindýrin eru ekki "girðingavæn" og tjón bænda getur orðið tilfinnanlegt vegna ágangs þeirra.

8. maí

Þegar ég hafði ekið í um 5 mínútur frá hreindýrunum, fór að kafsnjóa.

052

Eftir nokkurra mínútna akstur úr fannferginu í Lóni. Suðursveitin skartaði sínu fegursta, Þórbergssetur í forgrunni Öræfajökuls. Svona breytist veðrið hratt á Íslandi.


Bölsýnismaðurinn og bjartsýnismaðurinn

Bjartsýnn og lífsglaður maður hafði ákaflega gaman af skotveiði. Hann ákvað að eignast hund í skotveiðina og sá í dagblaði auglýsingu; "Fullþjálfaður veiðihundur til sölu".

Hann setur sig í samband við eigandann og fær í framhaldinu að skoða hundinn. Eigandi hundsins segir honum að að þetta sé frábær hundur og að hann geti gengið á vatni. Bjartsýni og lífsglaði veiðimaðurinn þurfti ekki að heyra meira og keypti hundinn.

Í framhaldinu býður hann kunningja sínum í stokkandaveiði með sér, en sá var bölsýnismaður af Guðs náð og fann aldrei neitt jákvætt við nokkurn skapaðan hlut. Hann ákveður að segja ekkert um hæfileika hundsins, heldur vildi hann sjá viðbrögð hans.

Næsta morgun bíða þeir við seftjörn austur í Flóa. Andahópur kemur fljúgandi og þeir ná tveimur og bjartsýnismaðurinn sendir hundinn af stað. Hundurinn stekkur út í vatnið, skokkar yfir það og kemur til baka með endurnar. Svona gekk þetta fram eftir morgni. Í hvert sinn sem önd lenti í vatninu skokkaði hundurinn á yfirborðinu og náði í hana.

Bölsýnismaðurinn fylgdist vandlega með þessu en sagði ekki aukatekið orð. Á leiðinni heim spurði bjartsýnismaðurinn:

"Tókstu eftir einhverju óvenjulegu í sambandi við nýja hundinn minn?"

"Já, auðvitað", svaraði bölsýnismaðurinn. "Hann kann ekki að synda".


Allt snýr á haus í kollinum á Þór Saari

Það er meðvituð ákvörðun allra sem koma að stjórnsýslu í landinu að varpa meiri ábyrgð og skyldum á sveitarfélögin í landinu. Að færa t.d. rekstur og ákvarðanatöku í opinberri þjónustu heim í nærsamfélagið.

Að vísu gengur sveitarfélögum illa að fá fjármunina til baka, sem þau leggja til ríkisins, svo þau geti með sómasamlegum hætti staðið undir ábyrgð sinni og skuldbindingum. En það er önnur saga.

Allt hugsandi fólk hlýtur að fagna frumkvæði sveitarstjórnarmanna á norðausturlandi.

Ég held að það sé best að ég sleppi því bara að tjá mig frekar um Þór Saari GetLost


mbl.is Kallar sveitarstjórnarmenn „klíkubræður“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eitt í dag og annað á morgun

Stutt er síðan lesa mátti fréttir þess efnis að Graænlandsjökull bráðnaði mun hraðar en fyrri spár gerðu ráð fyrir. Nú kemur frétt um hið gagnstæða. Errm

Er ekkert að marka þessa menn? FootinMouth

mushroom


mbl.is Grænlandsjökull bráðnar hægar en talið var
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stóra kanínumálið

"Kanínu drekkt í Ölfusá" er stórfrétt í öllum helstu vefmiðlum landsins.

Svo virðist sem flestir líti á þetta sem hrottalegt níðingsverk en ég tek ekki þátt í því. Ég myndi reyndar ekki nota þessa aðferð sjálfur ef ég þyrfti að lóga dýri. Ég færi með það til dýralæknis og léti svæfa það og borgaði fyrir það 5-10 þúsund krónur.

En það eru ekki allir sem hafa efni á því og ekki eiga allir byssu eða hafa geð í sér til að nota þær við að lóga dýri. Ef hins vegar er verið að gera sér að leik að drepa dýr, þá lýsir það sjúku hugarfari.

Fyrir okkur mennina er tilhugsunin um að drukkna eða að vera drekkt, óhugnanleg en drukknunin sjálf ku víst vera ósköp þægileg..... segja þeir sem prófað hafa. Hin skelfilega tilhugsun um drukknun er ekki fyrir hendi hjá dýrum. Þau bara drukkna... vita ekki hvaðan á sig stendur veðrið og það tekur örskamma stund. Um leið og vatnið fyllir lungun, missa þau meðvitund.


mbl.is Kanínu drekkt í poka í Ölfusá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Sitjandi forseti" (e. Sitting President)

Eina spurningin sem vaknar hjá mér við ný framboð er : Frá hvorum, Ólafi eða Þóru, tekur hún atkvæði?

Myndin hér að neðan fór eins og eldur um sinu á facebook á dögunum.                        "Sitjandi forseti" (e. Sitting President)

sitjandi forseti


mbl.is „Þar sem er vilji er vegur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kínverjar borða allt sem hefur vængi, nema flugvélar

ChinesefoodMaður sem ég þekki fór í hópferð til Kína. Áður en lagt var af stað sagði leiðsögumaður fólkinu að hópnum yrði boðið í mat á nokkrum stöðum og var öllum ráðlagt að vera ekkert að spyrja hvað væri á boðstólum. Maturinn væri bæði hollur og góður og enginn þurfti að hafa áhyggjur þess vegna. Málið væri hins vegar að Kínverjar borðuðu allt og sumt af því væri e.t.v. ekki fyrir viðkvæma að vita um.

Leiðsögumaðurinn sagði, "Kínverjar borða allt sem hefur vængi, nema flugvélar og þeir borða allt sem hefur fætur, nema stóla."

"Hvað með borð"? spurði þá einhver úr hópnum.

"Jú, þeir borða borð", svaraði leiðsögumaðurinn, "því þau eru yfirleitt úr bambus og þeir borða bambus."


mbl.is Kínverjar vilja kaupa minkakjöt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband