Færsluflokkur: Menning og listir

Telst dildo með?

 Jordin Sparks sýnir meydómshringinn. Svona yfirlýsingar hafa heyrst áður hjá ungum og upprennandi listamönnum í RussellAmeríkunni. Það læðist að manni sá grunur að þetta sé partur af auglýsingarherferð.

Russel Brand er hrikalega góður grínari, ég sá hann í Jay Leno um daginn. Örugglega eitthvað með honum á youtube, fyrir þá sem ekki þekkja til kauða.


mbl.is Ekkert kynlíf fyrir hjónaband
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Cumshots

Kristopher Schau og hljómsveit hans Cumshots voru í miðjum tónleikum á Quart music festival í Schau1Noregi í júlí 2004,þegar ungt par birtist á sviðinu og hóf að eðla sig. Um þetta má lesa í Nettavisen, en ég rakst á þessa frétt af tilviljun þegar ég var að svipast eftir umsögn blaðsins af landsleiknum í dag.

Kristopher

 

 

 

 

 

 Parið virðist alls ófeimið við iðju sína.


Ekki leyft í öðrum löndum?

 Er það orðin sér- íslensk klisja að segja að hitt og þetta "yrði aldrei leyft í öðrum löndum". Eða heyrist þetta kannski í öðrum löndum líka? Joyful

Gömlu innréttingarnar eru til og æskilegt að setja þær upp aftur, en ætli það verði ekki heimtað að það sé gert fyrir opinbert fé? Götumyndin er friðuð segja þeir en svo er ekki að sjá, því á bak við Naustið er risinn steinkumbaldi sem í sjálfu sér er ekki ljótur nema bara á þessum stað. Arkitektúrinn á því húsi hefði alveg mátt vera meira í stíl við götumyndina, auk þess sem húsið er full hátt á þessum stað.


mbl.is Kínverjarnir farnir úr landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Árni stal senunni

Árni Johnsen stýrir brekkusöng í Herjólfsdal.Þeir segja að Árni hafi stolið senunni í Herjólfsdal. Sá þetta enginn fyrir? Joyful
mbl.is Stærsti kór Íslandssögunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vantar eina á Stríðsárasafnið

flugvel101104Stríðsárasafnið á Reyðarfirði, sem ég bloggaði um í gærkvöldi (Hér) væri mikill akkur í að eignast búk af einhverri herflugvél og þá kannski helst búk af flugbáti, en norskar og kanadískar flugsveitir voru staðsettar á Reyðarfirði.

Safnið á tvo herbíla og marga aðra merkilega muni tengda hernáminu.


mbl.is Fljúgandi virki í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hernámsdagurinn á Reyðarfirði

1. júlí 1940 öslaði 26 þús. tonna breskt herskip inn Reyðarfjörð og varpaði ankerum innst í firðinum við þorpið Búðareyri sem nú heitir Reyðarfjörður. 200 hermenn stigu á land en þeim átti eftir að fjölga verulega og urðu þegar mest var um 3000 og var þá þriðja stærsta herstöð bandamanna á Íslandi, á eftir Reykjavík og Akureyri. Seinna tóku Bandaríkjamenn við af Bretum en einnig voru hér bæði kanadískar og norskar flugsveitir. Árið 1940 bjuggu um 300 manns í plássinu svo það er auðvelt að sjá fyrir sér hve mikil breyting varð á lífsháttum fólks í þessu litla austfirska sjávarplássi við hernámið.

005

Í tilefni dagsins stóð Fjarðabyggð fyrir gönguferð frá Molanum, nýju verslunarmiðstöðinni á Reyðarfirði, upp með Búðarárgili og að Stríðsárasafninu í spítalakampinum sem var sett á laggirnar fyrir um áratug síðan. Í auglýsingu var fólk hvatt til þess að mæta í gönguna "klætt í stíl við tilefnið". Þar sem herklæðnaður er ekki til á hverju heimili þá voru það helst konurnar sem klæddu sig upp og voru auðvitað komnar í "ástandið" um leið Joyful Hörður Þórhallsson, fyrrv. sveitarstjóri á Reyðarfirði var sögumaður á leiðinni uppeftir, dressaður sem officer.

010 (2)

Á leiðinni upp Búðarárgil eru upplýsingaskilti um hernámið. Hér er Hörður að ausa úr sagnabrunni sínum fyrir göngufólk við eitt skiltið. Í bókinni "Sögu Reyðarfjarðar", eftir Guðmund Magnússon, fyrrv. skólastjóra og fræðslustjóra Austurlands, segir um þessa tíma:

"Þrátt fyrir þessa atburði óraði Reyðfirðinga örugglega ekki fyrir því, að í heimabyggð þeirra risi herstöð með mörgum sinnum fleiri hermönnum en íbúarnir voru þá, en annað kom á daginn. Hinn 1. júlí 1940 sigldi 26 þúsund tonna herflutningaskipið Andes inn á Reyðarfjörð og setti þar á land fjölmennt herlið, sennilega hátt í 200 hermenn, en þeim átti eftir að fjölga svo um munaði".

008

Uppi í brekkunni fyrir ofan skiltið sást glitta í breskan hermann í fullum herklæðum við loftvarnabyrgi, hið síðasta sem eftir er en þau voru  á nokkrum stöðum í bænum á þessum árum. Lítil steypt og hálf niðurgrafin og ekki þægilegt að hýrast í þeim. Í október árið 1942 glumdu loftvarnarflautur 9 sinnum og fólkið þyrptist í byrgin.

015

Á vegi okkar urðu nokkrir hermenn og þessi gaf börnunum tyggjó, en það var víst ekki óalgengt á þessum árum að hermennirnir gaukuðu einhverju lítilræði að börnunum og flest ef ekki allt var nýnæmi í þeirra augum.

020

Fleiri hermenn urðu á vegi okkar í gilinu. Öðru hvoru hváðu sprengingar við með tilheyrandi reykjarmekki í grennd við okkur og ég held að björgunarsveitin okkar hafi lagt þær reykbombur til. Mjög skemmtilegt.

016

017

Gönguleiðin upp með gilinu er virkilega falleg. Hér er göngufólk að virða fyrir sér Búðaránna. Á neðri myndinn er Kristinn Briem starfsmaður Vegagerðarinnar á Reyðarfirði að virða fyrir sér hylinn sem hann veiddi lækjarlonturnar úr, þegar hann var ungur drengur. Í miklum leysingum getur áin orðið foráttu gruggug og vatnsmikil eins og jökulfljót.

021

Hópurinn kemur að safninu.

024

Tveir herbílar eru við safnið. Hér er Jökull Geir sonur minn með Dúfu í fanginu, fjögurra mánaða Silki Terrier tíkina okkar.

036

Safnið hefur vaxið jafnt og þétt á þessum 10 árum og er orðið afar athyglisvert og ég hvet alla sem leggja leið sína til Reyðarfjarðar að kíkja á safnið. Spítalakampurinn var einn nokkurra staða í bænum sem setuliðið byggði og í honum er stríðsárasafnið.

Marga undraði og urðu jafnvel uggandi þegar fréttist að verið væri að byggja þennan kamp með fullkomnum skurðstofum þess tíma og rúmum fyrir mörg hundruð manns. Fjöldi lækna og hjúkrunarkvenna voru á staðnum og Reyðfirðingar vissu ekki hvaðan á sig stóð veðrið. Átti breski herinn von á átökum við þýska herinn á Austfjörðum? Nei, svo var ekki, heldur var þessi spítali hugsaður fyrir særða hermenn úr fyrirhugaðri innrás bandamanna í Noreg. Til þess kom þó aldrei að þessi aðstaða væri notuð fyrir særða hermenn.

025

Margar ljósmyndir eru á safninu frá stríðsárunum á Íslandi. Þessi er ef ég man rétt tekin á Suðurlandsbrautinni í Reykjavík. Algjör snilld þessi mynd, finnst mér.

040

041

Stélbogi og skrúfublöð úr þýsku Heinkel flugvélinni sem fórst á Valahjalla við Reyðarfjörð 22. maí 1941.

042

Sá skal fá að kenna á því! Höskuldur Ólafsson, einn af dátunum í tilefni dagsins.

045

046

059

Margar gerðir vopna má finna á safninu, stórra og smárra. Faðir minn var í lögreglunni í Reykjavík á árunum 1947-1964. Hann eignaðist nákvæmlega svona byssu þegar hann var í víkingasveit þess tíma. Hann gerðist bóndi í Kjósinni í nokkur ár þegar hann hætti í lögreglunni og notaði byssuna við heimaslátrun.

061

060

031

Það er eins gott að þekkja óvininn.

049

Fræg ummæli Churchills.

052

050

Boðið var uppá kaffi, kók og kex. Að sjálfsögðu var daman bak við borðið klædd í samræmi við tilefnið.

047

Óli Gunnars góður í hlutverki bresks hermanns.

058

057

Forsíða dagblaðs mánudaginn 8. desember 1941

063

022

Það fór að rigna hressilega en það spillti ekki gleðinni. Hér er Helga Jónsdóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar ásamt Eiði Ragnarssyni frá Reyðarfirði og Beu Meijer frá Eskifirði undir gafli í spítalakampinum.

 

 

 


Hver verður áherslan?

Þema tónleika Bjarkar og Sigur Rósar í Laugardalnum er náttúran, en hvar verður áherslupunkturinn? Verður dregin upp dökk mynd af íslenskum stjórnvöldum og náttúruraski á Íslandi mótmælt? Eða verður það bara náttúran almennt, sem vakin verður athygli á?

Eru þetta pólitískir áróðurstónleikar "Vinstri Elítunnar", eða bara húmanískur gjörningur listamanna, sem vilja láta gott af sér leiða? E.t.v. blanda af hvoru tveggju.

bjork


mbl.is Náttúra í beinni útsendingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dugar að skipta keppninni í tvennt?

Dima Bilan fagnar sigri í Belgrad í gærkvöldi.  Ef forkeppninni yrði skipt í tvennt? Láta A-Evrópuþjóðirnar bítast um 10 laus sæti og sömuleiðis V-Evrópuþjóðirnar. Jafnt yrði því á milli austurs og vesturs í lokakeppninni. Reyndar er hægt að eyðaleggja það líka ef t.d. Rússar eru með og öll austurblokkin gefur þeim 12 stig, en ég held samt að slík klíku samsæriskenning haldi ekki vatni. Fólk er einfaldlega að kjósa út frá menningarlegri forsendu, ekki pólitískri. Kannski er tónlistarleg hefð austurblokkarinnar of lík og hún ætti bara að halda sína eigin keppni og vestrið sína. Ég hef reyndar lengi verið þeirrar skoðunar.

Fjölbreytileikinn myndi samt minnka, sem væri slæmt. Vandamálið er auðvitað hvað A-Evrópuþjóðirnar eru andsk... margar. Það verður svoddan "eystri-slagsíða" með þær allar innanborðs. En Sir Terry Wogan er bara spældur af því UK lenti í neðsta sæti. Lagið þeirra er mér ekki minnisstætt.


mbl.is Söngvakeppnin gekk fram af Sir Terry
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óaðfinnanleg frammistaða

Regína Ósk og Friðrik Ómar sjást hér við æfingar í Serbíu á dögunum.  17 lög búin og lang flottasta lagið til þessa! Bara kalt mat, ég er ekkert hlutdrægur Happy Ef Evrópa fílar þetta ekki þá eigum við ekkert erindi í ESB.... og hana nú! LoL
mbl.is Örlögin í höndum Evrópu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lindargata 51 á sér tvífara í Fáskrúðsfirði

Mikilla franskra áhrifa gætir á Fáskrúðsfirði og þar eru allar götur merktar á frönsku, ásamt íslensku. Í sunnan og utanverðum firðinum var lítið þorp sem nú er komið í eyði, en það hét Hafnarnes. Þar var franskur spítali reistur snemma á síðustu öld. Réttara sagt þá var hann reistur á Fáskrúðsfirði 1904 og fluttur síðar í Hafnarnes.

264932017_bd3ab5684a

Franski spítalinn í Fáskrúðsfirði sem nú er að grotna niður. Í baksýn sjást Vattarnesskriður, en við þær losnuðu Austfirðingar sem samgönguleið eftir að Fáskrúðsfjarðargöng komust í gagnið árið 2006. Leiðin milli Reyðarfjarðar og suðurfjarða styttist um 33 km. Ein mesta og besta samgöngubót á Austurlandi sem hugsast gat. En við þurfum fleiri göt!

lindarg.sk

Franski spítalinn við Lindargötu 51 í Reykjavík, reistur 1902. Það leynir sér ekki samsvörunin í byggingastílnum. Fyrir framan þetta hús fengum við strákarnir í Skuggahverfinu því framgengt, eftir mikla eftirgangsmuni, uppsett handboltamark, sem við notuðum reyndar oftast fyrir fótboltamark og krítuðum teig í kringum það. Áður höfðum við notað veggi hússins sem mark og brutum ófáar rúðir í því... svona óvart. Þakrennuniðurfallið hægra megin var önnur stöngin og hornið á útskotinu var hin. Sláin var gluggasillan á miðhæðarglugganum. Eftir að við höfðum brotið kjallaragluggana ítrekað, þá voru settir plastgluggar í staðinn. Joyful


mbl.is Menntamálaráðherra friðar 7 hús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband