Dugar að skipta keppninni í tvennt?

Dima Bilan fagnar sigri í Belgrad í gærkvöldi.  Ef forkeppninni yrði skipt í tvennt? Láta A-Evrópuþjóðirnar bítast um 10 laus sæti og sömuleiðis V-Evrópuþjóðirnar. Jafnt yrði því á milli austurs og vesturs í lokakeppninni. Reyndar er hægt að eyðaleggja það líka ef t.d. Rússar eru með og öll austurblokkin gefur þeim 12 stig, en ég held samt að slík klíku samsæriskenning haldi ekki vatni. Fólk er einfaldlega að kjósa út frá menningarlegri forsendu, ekki pólitískri. Kannski er tónlistarleg hefð austurblokkarinnar of lík og hún ætti bara að halda sína eigin keppni og vestrið sína. Ég hef reyndar lengi verið þeirrar skoðunar.

Fjölbreytileikinn myndi samt minnka, sem væri slæmt. Vandamálið er auðvitað hvað A-Evrópuþjóðirnar eru andsk... margar. Það verður svoddan "eystri-slagsíða" með þær allar innanborðs. En Sir Terry Wogan er bara spældur af því UK lenti í neðsta sæti. Lagið þeirra er mér ekki minnisstætt.


mbl.is Söngvakeppnin gekk fram af Sir Terry
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Snorri Bergz

Sko, Gunnar. Þegar Rússar eru 35-45% íbúa t.d. Lettlands og kjósa eins og mofo, hvaða þjóð heldurðu að fái flest atkvæðin?

Þarf að skipta þessu í 2 keppnir; West Eurovision og Mafia Eurovision (bæta Ítölunum við þar :) )

Snorri Bergz, 25.5.2008 kl. 17:14

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Út með Ísrael og Tyrkland. Hef aldrei skilið af hverju þessar Asíuþjóðir eru með.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 26.5.2008 kl. 00:04

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Já, merkilegt að Ísraelar skuli troða sér inn í allar kepnnir í Evrópu, t.a.m. fótbolta. Það mætti halda að gyðingar hefðu einhver völd í heiminum

Gunnar Th. Gunnarsson, 26.5.2008 kl. 00:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband