Lindargata 51 á sér tvífara í Fáskrúðsfirði

Mikilla franskra áhrifa gætir á Fáskrúðsfirði og þar eru allar götur merktar á frönsku, ásamt íslensku. Í sunnan og utanverðum firðinum var lítið þorp sem nú er komið í eyði, en það hét Hafnarnes. Þar var franskur spítali reistur snemma á síðustu öld. Réttara sagt þá var hann reistur á Fáskrúðsfirði 1904 og fluttur síðar í Hafnarnes.

264932017_bd3ab5684a

Franski spítalinn í Fáskrúðsfirði sem nú er að grotna niður. Í baksýn sjást Vattarnesskriður, en við þær losnuðu Austfirðingar sem samgönguleið eftir að Fáskrúðsfjarðargöng komust í gagnið árið 2006. Leiðin milli Reyðarfjarðar og suðurfjarða styttist um 33 km. Ein mesta og besta samgöngubót á Austurlandi sem hugsast gat. En við þurfum fleiri göt!

lindarg.sk

Franski spítalinn við Lindargötu 51 í Reykjavík, reistur 1902. Það leynir sér ekki samsvörunin í byggingastílnum. Fyrir framan þetta hús fengum við strákarnir í Skuggahverfinu því framgengt, eftir mikla eftirgangsmuni, uppsett handboltamark, sem við notuðum reyndar oftast fyrir fótboltamark og krítuðum teig í kringum það. Áður höfðum við notað veggi hússins sem mark og brutum ófáar rúðir í því... svona óvart. Þakrennuniðurfallið hægra megin var önnur stöngin og hornið á útskotinu var hin. Sláin var gluggasillan á miðhæðarglugganum. Eftir að við höfðum brotið kjallaragluggana ítrekað, þá voru settir plastgluggar í staðinn. Joyful


mbl.is Menntamálaráðherra friðar 7 hús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband