Færsluflokkur: Bloggar
Það er meðvituð ákvörðun allra sem koma að stjórnsýslu í landinu að varpa meiri ábyrgð og skyldum á sveitarfélögin í landinu. Að færa t.d. rekstur og ákvarðanatöku í opinberri þjónustu heim í nærsamfélagið.
Að vísu gengur sveitarfélögum illa að fá fjármunina til baka, sem þau leggja til ríkisins, svo þau geti með sómasamlegum hætti staðið undir ábyrgð sinni og skuldbindingum. En það er önnur saga.
Allt hugsandi fólk hlýtur að fagna frumkvæði sveitarstjórnarmanna á norðausturlandi.
Ég held að það sé best að ég sleppi því bara að tjá mig frekar um Þór Saari
![]() |
Kallar sveitarstjórnarmenn klíkubræður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 4.5.2012 (breytt kl. 10:43) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
"Kanínu drekkt í Ölfusá" er stórfrétt í öllum helstu vefmiðlum landsins.
Svo virðist sem flestir líti á þetta sem hrottalegt níðingsverk en ég tek ekki þátt í því. Ég myndi reyndar ekki nota þessa aðferð sjálfur ef ég þyrfti að lóga dýri. Ég færi með það til dýralæknis og léti svæfa það og borgaði fyrir það 5-10 þúsund krónur.
En það eru ekki allir sem hafa efni á því og ekki eiga allir byssu eða hafa geð í sér til að nota þær við að lóga dýri. Ef hins vegar er verið að gera sér að leik að drepa dýr, þá lýsir það sjúku hugarfari.
Fyrir okkur mennina er tilhugsunin um að drukkna eða að vera drekkt, óhugnanleg en drukknunin sjálf ku víst vera ósköp þægileg..... segja þeir sem prófað hafa. Hin skelfilega tilhugsun um drukknun er ekki fyrir hendi hjá dýrum. Þau bara drukkna... vita ekki hvaðan á sig stendur veðrið og það tekur örskamma stund. Um leið og vatnið fyllir lungun, missa þau meðvitund.
![]() |
Kanínu drekkt í poka í Ölfusá |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 2.5.2012 (breytt kl. 08:50) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Eina spurningin sem vaknar hjá mér við ný framboð er : Frá hvorum, Ólafi eða Þóru, tekur hún atkvæði?
Myndin hér að neðan fór eins og eldur um sinu á facebook á dögunum. "Sitjandi forseti" (e. Sitting President)
![]() |
Þar sem er vilji er vegur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 1.5.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Landsdómur virtist grípa tæknilegt atriði (formsatriði) fegins hendi til að réttlæta hina pólitísku herferð gegn Geir Haarde og Sjálfstæðisflokknum. Segir svo í dómsorðum að brotið hafi verið alvarleg; "Stórfellt gáleysi", en samt er brotið refsilaust og málsvarnarlaun greidd úr ríkissjóði.
Dæmt er samkv. 17 grein stjórnarskrárinnar, sem segir:
"Ráðherrafundi skal halda um nýmæli í lögum og um mikilvæg stjórnarmálefni. Svo skal og ráðherrafund halda, ef einhver ráðherra óskar að bera þar upp mál. Fundunum stjórnar sá ráðherra, er forseti lýðveldisins hefur kvatt til forsætis, og nefnist hann forsætisráðherra"
Ef á að halda sig við tæknileg atriði, þá má benda á að í 17. greininni er hvergi sagt beinum orðum að forsætisráðherra eigi að boða til ráðherrafunda en tekið sérstaklega fram að hvaða ráðherra sem er getur boðað til fundar.
Einungis er talað um í greininni að "ráðherrafundi skuli halda..."
Fundarstjórar bera ekki ábyrgð á því hvort boðað sé til funda. Þeir stjórna fundunum.
Bloggar | 30.4.2012 (breytt kl. 15:07) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hver nákvæmlega kvartar yfir því að ökunemar hafi ekki uppfyllt skilyrði til að öðlast ökuleyfi og hversu algengt er það?
Ég fæ ómögulega séð að slíkt sé umkvörtunarefni sé svaravert. Er þetta "ónæði" fyrir einhvern blýantanagarann? Það þarf og hefur þurft að sækja um prófheimild að loknu ökunámi og það á að nægja. Nýja reglan skapar óþarfa fyrirhöfn fyrir nýja ökunema. Þeir eiga að geta hringt í næsta ökukennara og hafið nám.
Ef um útlending er að ræða, uppfræðir ökukennarinn nemann um búsetuskilyrði og ef um ungling er að ræða, kannar ökukennarinn hvort viðkomandi uppfyllir aldursskilyrði. Ef vafi leikur á að nemi uppfylli kröfur um andlegt og líkamlegt atgervi, eru fagmenn látnir meta það.
Síðuhöfundur er ökukennari.
![]() |
Námsheimild einsdæmi á Íslandi? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 28.4.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þegar ég var þarna minnist ég þess að ýmsar upplýsingar í Auschwitz, á skiltum o.þ.h., voru á mörgum tungumálum en ekki á þýsku. Samt eru Þjóðverjar fjölmennastir þeirra sem heimsækja þetta fyrrum Helvíti á Jörð.
"The Wall of Death" Við þennan vegg er talið að um 7.000 manns hafi verið skotnir. Vinstra megin á myndinni eru staurar sem menn voru látnir hanga í við óbærilegar kvalir, bundnir með hendur fyrir aftan bak.
![]() |
Heimsótti Auschwitz |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 27.4.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mér skilst að það sé þekkt erlendis að ráðist sé á fólk í bílastæðahúsum og þá sérstaklega konur. Glæpamennirnir liggja í leyni þar sem umferð er minnst, í útjöðrum bílastæðahúsanna.
Ef við gefum okkur að um helmingur bílstjóra sé kvenkyns, þá er dálítið erfitt að fullnægja kröfum þeirra allra að fá stæði á besta stað. Ef árásir í bílastæðahúsum á Íslandi verða sérstakt vandamál, þá er þetta varla besta lausnin.
![]() |
Óheppilegar merkingar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 27.4.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Ég byrjaði að taka mynd út um stofugluggann hjá mér 19. mars og hef tekið eina til tvær myndir á dag síðan. (Flesta daga tvær og í nokkur skipti þrjár). Ljósmyndin er tekin í morgun, 19. apríl, sumardaginn fyrsta.
Það skiptast á skyn og skúrir á Reyðarfirði sem annars staðar. Eins og sést á þessu myndbandi, hefur vorið látið bíða svolítið eftir sér á Austurlandi í ár.
![]() |
Vetur og sumar frusu saman |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 19.4.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Í dag varð ég var við tvo skelli á gluggarúður heima hjá mér. Fyrst á svefnherbergisglugga sem snýr í vestur, svo á stofugluggann sem snýr í suður. Örfáar sekúndur voru á milli skellanna og ég vissi strax að fugl hefði flogið á rúðurnar. Ekki er ósennilegt að hann hafi verið á harðaflótta undan smyrli.
Þegar ég leit út um stofugluggann sá ég skógarþröst liggja hreyfingarlausan fyrir neðan. Ég fór út og tók hann upp. Hann virtist steindauður....
... en svo tók ég eftir að annað augað var örlítið opið og ég sá ekki betur en það leyndist líf í því. Ég fór inn með þröstinn og gerði létt hjartahnoð á honum. Augað opnaðist aðeins meira en hitt var áfram harðlokað. Svo opnaðist goggurinn. Hann opnaðist og lokaðist á víxl, ótt og títt eins og fuglinn væri að reyna að ná andanum.
Ég fór með þröstinn inn á baðherbergi og lagði hann í vaskinn og horfði á hann í dálitla stund... horfði á líftóru hans hjarna við. Svo stóð hann stóð upp óstyrkum fótum...
... og ég strauk honum um kollinn og talaði blíðlega til hans.
Ég þurfti að skreppa frá í klukkutíma og skildi hann eftir í vaskinum. Ég lokaði hurðinni... vildi ekki að kötturinn kæmist í hann.
Þegar ég kom til baka var hann eldsprækur og ég var dálitla stund að ná honum. Ég hélt á honum í greip minni og fór fram í stofu og sýndi kettinum. Kisi mjálmaði og langaði í hann. Ég tók utan um hausinn á þrestinum... með þumli og vísifingri... og þrýsti fast saman. Það heyrðist smellur, svona eins og þegar maður sprengir plastbólu. Svo fleygði ég hræinu í matardallinn hjá kisu.
Ég og kisa erum bestu vinir.
P.s. Úr því þú hafðir fyrir því að lesa þennan pistil á enda, endilega kíktu þá á athugasemdirnar
Bloggar | 18.4.2012 (breytt kl. 12:40) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Óskabarn Samfylkingarinnar, ungur jafnaðarmaður
Þóra á sér sterkt bakland meðal vinstrimanna og einnig meða fjölmiðlamanna. Hún nýtur þess ríkulega í DV, sem kynnir hana sérstaklega á hverjum degi með stöðugum "fréttum" um allt sem henni viðkemur.
Eins og flestir vita er sami aðal eigandi að DV og að Smugunni, málgagni VG. Það er því ekki út í hött, DVG nafnið, sem gárungarnir hafa gefið þeim ómerkilega sorpmiðli.
Mér hrýs hugur við þeirri tilhugsun að Þóra Arnórsdóttir gerist talsmaður Jóhönnu Sigurðardóttur á Bessastöðum.
![]() |
Brown skuldar þjóðinni afsökun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 13.4.2012 (breytt kl. 17:05) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 5
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 34
- Frá upphafi: 947077
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 32
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Starfsleyfin
- Vildu ekki fá Markús
- Umbreyting á lífi mans gerir hann að nýrri veru.
- Undarleg rök þingmanna
- 24 sinnum fleiri skaðatilkynningar en vegna allra annarra bóluefna samanlagt
- Trump, Musk og skuldafjallið
- Vitvél í stað utanríkisráðuneytis
- Sterkur vilji til að afmá tákn þjóðríkisins, þjóðfánann.
- Bókun 35, hvers vegna nú?
- Bæn dagsins...