Allt snýr á haus í kollinum á Þór Saari

Það er meðvituð ákvörðun allra sem koma að stjórnsýslu í landinu að varpa meiri ábyrgð og skyldum á sveitarfélögin í landinu. Að færa t.d. rekstur og ákvarðanatöku í opinberri þjónustu heim í nærsamfélagið.

Að vísu gengur sveitarfélögum illa að fá fjármunina til baka, sem þau leggja til ríkisins, svo þau geti með sómasamlegum hætti staðið undir ábyrgð sinni og skuldbindingum. En það er önnur saga.

Allt hugsandi fólk hlýtur að fagna frumkvæði sveitarstjórnarmanna á norðausturlandi.

Ég held að það sé best að ég sleppi því bara að tjá mig frekar um Þór Saari GetLost


mbl.is Kallar sveitarstjórnarmenn „klíkubræður“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar

Þetta er nú meira dómadagsbullið að sveitarfélögin fái minna en þau leggja til ríkisins.  Bara lítið dæmi er Vegagerðin.  Höfuðborgarbúar leggja til 70% af fjámunum til Vegagerðar í landinu en fá um 2% til baka.  Svo vælir sveitavargurinn, ..dísesmar...

Óskar, 4.5.2012 kl. 10:44

2 Smámynd: Sindri Karl Sigurðsson

Óskar.

Hvað fer mikið af þeim peningum sem innheimtir eru í gegnum skatta á eldsneyti og eru eyrnamerktir samgöngum, til samgangna?

Hvar ætli mismunurinn sé? Úti á landi?

Sindri Karl Sigurðsson, 4.5.2012 kl. 10:59

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Hvernig á að þjóðin að "græða" fúlgur fjár á ferðamönnum ef vegirnir liggja ekki úti á landi?

Gunnar Th. Gunnarsson, 4.5.2012 kl. 11:16

4 Smámynd: Óskar

Gunnar ég held nú að þjóðin græði einmitt mest á þeim ferðamönnum sem fara sem minnst út á land.  Það er bara bakpokaliðið sem étur dósamat og þvælist um á puttanum sem fer út á land.  Ríku túristarnir eru hér í borginni :)

Óskar, 4.5.2012 kl. 11:21

5 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ég held stundum að borgarbúar telji að allir vegir eigi að liggja til Reykjavíkur og einstefna sé reglan.

Svo virðist sem Reykjavíkurhöfn sé að verða eina innflutningshöfn landsins, það væri slæmt fyrir efnahag borgarinnar væru engir vegir til að dreifa þeirra helsta tekjupósti, þjónustunni við landið, um byggðir þess. Auk þess færist útflutningur hröðum skrefum "suður",

Svo er rétt að geta þess að það er ekki hlutverk ríkisins að sjá um gatnakerfi Reykjavíkur eða annarra þéttbýlisstaða, nema hvað varðar svokallaða "þjóðvegi í þéttbýli".

Hvað varðar fyrirsögn þessarar færslu þá er ég henni sammála.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 4.5.2012 kl. 22:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband