Færsluflokkur: Bloggar

Flokkast 12-18 stiga frost ekki sem vorhret?

Er Helga Ívarsdóttir e.t.v. hjá Veðurstofu Reykjavíkur, sem ég hélt reyndar að væri ekki til, en ekki hjá Veðurstofu Íslands? Stundum virðast veðurfréttamenn halda að veðurfréttir og veðurspár séu eingöngu fyrir íbúa á SV-hluta landsins.

Myndin hér að neðan er frá Veðurstofu Íslands og sýnir spákort fyrir laugardagsmorgun á Austurlandi.

Untitled


mbl.is Ekkert hret í kortunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég heimsótti Auschwits

Ég kom til Auscwits sumarið 2007 og bloggaði um þá upplifun. Ég hef áður bent á þetta blogg mitt. Slatti af myndum fylgir, sjá HÉR

c_users_notandi_documents_102_239128


mbl.is „Þarna brenna foreldrar þínir“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ruglið í "réttlætinu"

Ég set hér inn athugasemd manns sem kallar sig Aðalstein, við bloggfærslu Barkar Hrólfssonar,  hér. Þetta er gott innlegg hjá Aðalsteini og skýrir málið ágætlega að mínu mati.

"Sæll Börkur.

Þessi málflutningur hjá þér byggist nú greinilega á mikilli vanþekkingu á málefninu. Málflutningur sem einkennir umræðuna allt of víða. Fyrir það fyrsta, kvótahafar fengu ekkert gefins. Það sem þeir fengu var heimild til að veiða minna en þeir höfðu áður verið að veiða. Þeir fengu skerðingu að gjöf. Kvótanum var úthlutað í hlutfalli við það sem menn höfðu verið að veiða, bara miklu minna. Menn tóku á sig skerðinguna gegn loforði um að þeir fengju að veiða áfram sína hlutdeild af heildarúthlutun.

Kvótahafar fengu úthlutaða varanlega aflahlutdeild, ekki eitt ár í einu, heldur hlutfall af úthlutun hvers árs. Hlutdeildin var síðan gerð framseljanleg með lögum. Það þýddi að hagræðing var möguleg. Þeir sem urðu fyrir mikilli skerðingu, jafnvel svo mikilli að rekstur útgerðanna borgaði sig ekki, gátu annað hvort bætt við sig kvóta, til að gera reksturinn arðbæran, eða selt. Þeir sem keyptu gátu gert rekstrarplön til framtíðar, stilltu af stærð skipakostsins miðað við aflaheimildir og stýrðu veiðunum þannig að kvótinn nýttist sem best. Þetta leiddi til þess að sú offjárfesting og sóun sem hafði verið í greininni vék fyrir hagkvæmnisjónarmiðum og góðum rekstri. Útgerðir fóru loks að skila hagnaði og við það hækkaði kvótinn í verði.

Sú verðhækkun leiddi til þess að tækifærissinnar, sem aldrei höfðu litið á veiðirétt sem vermæti, fóru allt í einu að tala um að þjóðin hefði gefið þessum kvótahöfum eitthvað sem þyrfti nú að taka til baka og úthluta til einhverra annarra. Burtséð frá því hvað það er arfavitlaust að setja aðalatvinnugrein þjóðarinnar í uppnám með upptöku kvóta, þá sjá allir hugsandi menn að í ljósi forsögunnar þá er þarna um að ræða framseljanleg atvinnuréttindi sem ekki verða tekin af mönnum nema bætur komi fyrir. Sigurður Lingdal hefur því fullkomlega rétt fyrir sér."


mbl.is „Aldrei heyrt annað eins rugl“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað segir Sóley sæta nú?

Þetta auðvitað dálítið brött fullyrðing:  „Allar fallegar stúlkur eru hægrisinnaðar“, en þær hugsa meira um lúkkið... finnst mér.

Og svo raka þær sig flestar undir höndunum Joyful

funny-picture-hooters-vs-feminists


mbl.is „Allar fallegar stúlkur eru hægrisinnaðar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Minning "Hansi" 1986-2012 - Skilaboð frá liðsmönnum Dalvík/Reynir

Hans Ágúst Guðmundsson Beck var fæddur og uppalinn á Kollaleiru í Reyðarfirði


Hræddir við Hells Angels?

42Það er ekki gefið upp hvers vegna heimili þeirra eru vöktuð af öryggisvörðum.

Ögmundur og Steingrímur hafa talað digurbarkalega um að uppræta skipulagða glæpastarfsemi. Eru vísbendingar um að þeir séu í hættu úr þeirri áttinni? FootinMouth


mbl.is Vakta heimilin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Brjóstaskoran bönnuð í skákkeppnum"

Ég sá á visir.is frétt þess efnis að Evrópska skáksambandið hefur innleitt nýjar reglur varðandi klæðaburð þátttakenda í skákkeppnum. Brjóstaskorur er ekki leyfðar og pils mega ekki vera of stutt. Errm

waiting game


mbl.is 19 ára stórmeistari sigraði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Konur sem hata karla"

Fyrirsögnin er fengin af http://konursemhatakarla.tumblr.com/  Fróðleg lesning og hér að neðan er eitt sýnishorn af síðunni.

111

"Hér er skjáskot af fésbókarvegg Femínistafélags Íslands þar sem þær pósta grein um prest sem vill berja nafngreindan lögfræðing. Þrátt fyrir það að femínistar hafa oft bent á að hatursorðræða sé undanfari ofbeldis, fellur þetta ekki í grýttan jarðveg hjá femínistum enda ofbeldi bara slæmt ef því er beint gegn konum."


Kindarleg viðbrögð Álfheiðar

álfhÁlfheiður Ingadóttir sagði sigri hrósandi frá því í sjónvarpsfréttum í gær að nafn hennar kæmi ekki fram í rannsókn lögreglunnar á mótmælunum við Alþingishúsið.

Það var augljóst að henni var létt og sumir túlkuðu grettuna í andliti hennar sem bros. Svo gargaði hún fram í ræðu Jóns Gunnarssonar á Alþingi í dag. Þá var grettan klárlega bara gretta.

Geir Jón er að skrifa skýrslu. Ég hlakka til að sjá hana.


mbl.is „Við unnum Jón“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er þá evran?

Fíll í kristalsbúð? FootinMouth

Hvað er evran að gera fyrir Grikki? Svarið er auðvitað "verra en ekkert". Grikkir eru bjargarlausir varðandi gjaldmiðil sinn, evruna. Að fella gengið er eina tækið sem þjóð í alvarlegum peningavandræðum hefur. Ef Grikkir gætu fellt sinn eikagjaldmiðil, myndi það milda áfall þeirra til muna og hugsanlega bjarga þeim. Evran er dauðadómur Grikkja.

Gengisfelling er neyðarráðstöfun en öflugt tæki fyrir smáþjóðir.


mbl.is Krónan er fíllinn í stofunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband