Færsluflokkur: Heilbrigðismál
Eftir hverju er farið þegar fíkniefni eru flokkuð m.t.t. hættunnar af þeim? Er það dauðsfall per. neytanda? Það hlýtur að vera nokkuð flókið matsatriði að meta "hættuna". Sum fíkniefni geta t.d. valdið miklu tjóni án þess að um dauðsfall sé að ræða.
Áfengi og sígarettur eru vissulega hættuleg fíkniefni og fjölmörg dauðsföll má rekja til neyslu þeirra og sennilega fleiri en í raun er hægt að staðfesta, sérstaklega áfengið. Það er nefnilega ekki bara fólkið sem neytir áfengisins sem deyr, heldur veldur það oft og tíðum dauða annarra líka, með margvíslegum hætti.
Sumir segja að hófleg neysla áfengis sé jafnvel holl, en varla er sömu sögu að segja um hóflega neyslu LSD. Undirliggjandi geðsjúkdómar geta "triggerast" við tiltölulega litla neyslu sumra efna og þar held ég að LSD komi sterkt inn. Svo er auðvitað spurningin; hvað er hófleg neysla? Eru tvö rauðvínsglös eða tveir bjórar á dag, hófleg neysla? Er hálf "jóna" á dag, hófleg neysla?
Tóbak hættulegra en LSD | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | 29.10.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Mótmæltu meðferð á lækni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | 16.10.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um helmingur barna í grunnskólanum á Fáskrúðsfirði liggur nú í flensu og skólastjórinn sömuleiðis. Talið er víst að um svínaflensu sé að ræða. Flensan leggst misjafnlega á krakkana og sumir þeirra sem fóru heim um hádegisbil vegna slappleika, voru komnir með um 40 stiga hita tveimur tímum síðar.
9. og 10. bekkir grunnskóla Eskifjarðar og Reyðarfjarðar hafa staðið fyrir fjáröflun með kökubasar undanfarið til þess að taka þátt í Æsklýðsmóti Kirkjunnar sem fram á að fara í Vestmannaeyjum um næstu helgi. Allir skólar í Fjarðabyggð, samtals um 80 krakkar í þessum bekkjum, hafa nú hætt við ferðina vegna flensunnar. Um 600 krakkar af öllu landinu voru væntanleg til Vestmannaeyja um helgina, en hugsanlega verður mótinu frestað ef afföll verða mikil.
Bólusetning hafin í Svíþjóð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | 12.10.2009 (breytt kl. 21:03) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Aðstandendur þessa verkefnis hafa ekki þorað annað en að segja að þetta sjúkrahús verði aðeins fyrir útlendinga, vitandi hverjir eru við stjórnvölinn á Íslandi í dag. Vonandi þarf þetta verkefni ekki að koma inn á borð Álfheiðar Ingadóttur. Hún yrði sjálfsagt ekki lengi að finna upp á einhverju til þess tefja/skemma þetta.
Kínverski ríkis-þýðandinn... ætli hann hafi notað Google?
Einkasjúkrahús í Mosfellsbæ | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | 2.10.2009 (breytt kl. 14:16) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Nú eru bankarnir ríkisfyrirtæki og þá hrúgast fólk í veikindaleyfi sem aldrei fyrr. Ráðamenn í ríkisbönkunum þora ekki að ávíta fólk, hvað þá reka fyrir óeðlilega miklar fjarvistir vegna veikinda. Eflaust eru einhverjir vitleysingar sem hella sér yfir gjaldkerana og/eða annað starfsfólk á gólfinu, en ég hef aldrei orðið var við slíkt í bönkum
Og þessar tölur... að meirihluti bankastarfsmanna hafi 250 - 400 þús. á mánuði, dreg ég stórlega í efa, en eflaust eru einhverjir í hlutastörfum sem hafa 250 þús.
Bankamenn fá áfallahjálp | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | 25.6.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Þegar ég var í Garðyrkjuskóla Ríkisins í Hveragerði 1986-88, þá var okkur sagt að samkvæmt rannsóknum væru garðyrkjumenn í áhættuhópi varðandi krabbamein. Var þá vísað í þau efni sem garðyrkjumenn nota gjarnan við vinnu sína og þá helst skordýralyf. Rannsóknin sem þessi mbl frétt fjallar um nær yfir 45 ára tímabil og því kemur þessi frétt á óvart.
Bændur og garðyrkjumenn fá síst krabbamein | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | 24.6.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Eftir að lögreglan hafði vísað máli yfirlæknisins á Eskifirði frá, ákvað framvæmdastjóri HSA, Einar Rafn Haraldsson að halda málinu til streitu og sendi málið áfram til Héraðsdóms Austurlands en þar var málinu einnig vísað frá. Yfirlæknirinn, Hannes Sigmundsson, hefur mikinn stuðning íbúa Fjarðabyggðar og margir halda því fram að persónulegur illvilja Einars Rafns í garð yfirlæknisins ráði för. Bent hefur verið á að Einar, sem búsettur er á Egilsstöðum hafi róið að því öllum árum á sínum tíma að sjúkraflutningum í Fjarðabyggð yrði þjónað frá Egilsstöðum, en um 80 km. eru frá Egilsstöðum að sjúkrahúsinu á Norðfirði. Hannes barðist gegn þessum fyrirætlunum Einars Rafns af krafti og hafði betur.
Á myndinni er Einar Rafn Haraldsson og Helga Jónsdóttir, bæjarstýra Fjarðabyggðar að undirrita samning um sjúkraflutninga í Fjarðabyggð. Samkvæmt samningnum tók Slökkvilið Fjarðabyggðar að sér alla sjúkraflutninga í Fjarðabyggð fyrir HSA.
Vill lausn í máli yfirlæknis | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | 7.5.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Stundum eru lítaaðgerðir tómur hégómi, en auðvitað ekki alltaf.
Útlitið mikilvægara en nokkru sinni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | 23.3.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Ég óska Hannesi Sigmarssyni innilega til hamingju með þessar málalyktir. Heyrst hefur hér eystra að ástæða þessara ásakana á hendur honum hafi verið sprottnar af annarlegum ástæðum og þá vísað í einhvern hrepparíg milli Héraðs og Fjarðabyggðar.
Einar Rafn Haraldsson er forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands og sagt er að hann hafi staðið fyrir þessum ljótu ásökunum en hann hefur m.a. reynt að taka sjúkrabifreiðarnar frá Fjarðabyggð og hafa þær staðsettar á Egilsstöðum. Gegn því var barist með kjafti og klóm hér í neðra, enda algjörlega út í hött að staðsetja sjúkrabíla í 30-60 km. fjarlægð frá stærsta sveitarfélagi Austurlands.
Nú held ég að tími sé kominn til að skoða starfshætti Einars Rafns ofan í kjölinn. Að margra mati á að reka manninn úr starfi sínu og það er ótækt að hafa mann í þessari ábyrgðarmiklu stöðu, sem ekki nýtur trausts almennings.
Á myndinni hér til hliðar er Einar Rafn að undirrita samning um sjúkraflutninga í Fjarðabyggð við bæjarstýru Fjarðabyggðar, Helgu Jónsdóttir, 26. júli 2007.
Rannsókn á máli læknis hætt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | 13.3.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þetta pilluát er tilgangslaust ef maður borðar sæmilega fjölbreytta fæðu og á ekki í vandræðum með meltinguna. Það er helst að ég hafi trú á lýsi, þó ég gleymi reyndar alltaf að taka það. Ef ég ætti að bæta mataræðið hjá mér, þá myndi ég segja að ég mætti borða meiri fisk.
Ég er að hugsa um að setja þessa inn sem höfundarmynd af mér. Það þarf svo lítið til að gleðja suma sem kíkja hér reglulega
P.s. Þessi veit lengra en nef hans nær, enda er það helvíti stutt. Svo hefur hann líka húmor.
Fjölvítamínataka gagnslaus? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | 18.2.2009 (breytt 19.2.2009 kl. 07:52) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 24
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 22
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Hægt með krónunni?
- Er Kína í stríði við Evrópu??
- Karlmannatíska : RALPH LAUREN Polo Holiday 2024
- Hérna eru gamlar TÆKNITEIKNINGNAR af HINU NÝJA GOSI sem að er nú NÝ HAFIÐ: 20.NÓVEMBER 2024 en beðið er eftir NÝJUSTU TÆKNITEIKNINGUNUM:
- Úr munni hestsins
- Erfiðið út í buskann
- "ÚLFUR Í SAUÐAGÆRU"??????
- Það gýs á tveimur stöðum af ólíkum ástæðum
- Flokkur fólksins
- Að tapa sigrinum