Til hamingju!

Ég óska Hannesi Sigmarssyni innilega til hamingju með þessar málalyktir. Heyrst hefur hér eystra að ástæða þessara ásakana á hendur honum hafi verið sprottnar af annarlegum ástæðum og þá vísað í einhvern hrepparíg milli Héraðs og Fjarðabyggðar.

Einar Rafn Haraldsson er forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands og sagt er að hann hafi staðið fyrir þessum ljótu ásökunum en hann hefur m.a. reynt að taka sjúkrabifreiðarnar frá Fjarðabyggð og hafa þær staðsettar á Egilsstöðum. Gegn því var barist með kjafti og klóm hér í neðra, enda algjörlega út í hött að staðsetja sjúkrabíla í 30-60 km. fjarlægð frá stærsta sveitarfélagi Austurlands.

5bbcc3b469e541

Nú held ég að tími sé kominn til að skoða starfshætti Einars Rafns ofan í kjölinn. Að margra mati á að reka manninn úr starfi sínu og það er ótækt að hafa mann í þessari ábyrgðarmiklu stöðu, sem ekki nýtur trausts almennings.

Á myndinni hér til hliðar er Einar Rafn að undirrita samning um sjúkraflutninga í Fjarðabyggð við bæjarstýru Fjarðabyggðar, Helgu Jónsdóttir, 26. júli 2007.


mbl.is Rannsókn á máli læknis hætt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Offari

Ég er glaður að heyra þessa frétt. Ég veit reyndar ekkert um það hvað læknirinn átti að hafa unnið til saka en hitt veit ég að hann reyndist bæði mér og Dóttir minni vel í þeim veikindum sem við lentum í.

Offari, 13.3.2009 kl. 16:25

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég var líka mjög glaður. Nú á tímum þegar allir virðast spilltir, þá fannst mér þetta leiðinleg frétt þegar ég heyrði hana fyrst og vissi ekki hverju ég átti að trúa. Fljótlega heyrði ég að fáir trúð þessu upp á Hannes hérna niðurfrá, enda er hann einhvern veginn ekki týpan í svona nokk .

Gunnar Th. Gunnarsson, 13.3.2009 kl. 16:38

3 identicon

Hvernig eru týpur í svona ?

Daus (IP-tala skráð) 16.3.2009 kl. 17:08

4 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

Ég skrifaði undir stuðningsyfirlýsingu við Hannes. Þeir eru óþolandi hrepparígar hvort sem það er uppsprettan í þessu máli eður ei.

Guðmundur St Ragnarsson, 3.5.2009 kl. 15:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband