Um helmingur barna í grunnskólanum á Fáskrúðsfirði liggur nú í flensu og skólastjórinn sömuleiðis. Talið er víst að um svínaflensu sé að ræða. Flensan leggst misjafnlega á krakkana og sumir þeirra sem fóru heim um hádegisbil vegna slappleika, voru komnir með um 40 stiga hita tveimur tímum síðar.
9. og 10. bekkir grunnskóla Eskifjarðar og Reyðarfjarðar hafa staðið fyrir fjáröflun með kökubasar undanfarið til þess að taka þátt í Æsklýðsmóti Kirkjunnar sem fram á að fara í Vestmannaeyjum um næstu helgi. Allir skólar í Fjarðabyggð, samtals um 80 krakkar í þessum bekkjum, hafa nú hætt við ferðina vegna flensunnar. Um 600 krakkar af öllu landinu voru væntanleg til Vestmannaeyja um helgina, en hugsanlega verður mótinu frestað ef afföll verða mikil.
Bólusetning hafin í Svíþjóð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Heilbrigðismál | 12.10.2009 (breytt kl. 21:03) | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.5.): 1
- Sl. sólarhring: 11
- Sl. viku: 57
- Frá upphafi: 944680
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 50
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Banna EKKI gistirekstur í íbúðarhúsnæði
- Forsetakjör og málskotsskyldan
- Biblían er í mínu hjarta og huga besta bók sem til er. Hún er Orð Guðs.
- Þurfum friðarbylgju og lyfta Ástþóri með atkvæðamagni upp, þannig að heimurin taki eftir því
- Mogginn afhjúpar vinahygli.
- Lífið er töff og engum var lofað neinu öðru!
- Á maður að kolefnisjafna sig?
- Satoshi Omura, frá hinni virtu Kitasato stofnun Tókýó, hlaut Gairdner Global Health verðlaunin 2014 og 2015 Nóbelsverðlaunin í lífeðlisfræði eða læknisfræði, sem hann deildi með samstarfsaðila í uppgötvun og þróun lyfsins, William Campbell
- Þú gætir hugsað laxa-fóbískar hugsanir ef þú skoðar þetta
- Virkjum Bessastaði!
Athugasemdir
Mér sýnist þú vera að segja frétt, félagi því að ef þetta er svínaflensan gefur það til kynna hvað fleiri samfélög eiga í vændum á næstunni.
Ómar Ragnarsson, 12.10.2009 kl. 21:33
Já, ég var aðeins á undan 10 fréttunum á RUV í kvöld með þetta.
Þetta var umræðuefni í Grunnskóla Reyðarfjarðar í dag þar sem ég er forfallakennari þessa vikuna. Sonur minn sem er í 9. bekk var á leiðinni á æskulýðsmótið í Eyjum og varð að sjálfsögðu fyrir miklum vonbrigðum.
Krakkarnir höfðu lagt töluvert á sig til að safna fyrir ferðinni.
Gunnar Th. Gunnarsson, 12.10.2009 kl. 23:52
Það hefur reyndar ekki verið staðfest að um svínaflensu sé að ræða en sýni eru í rannsókn og mér skilst að niðurstaða liggi fyrir á miðv.d.-fimmtud.
Gunnar Th. Gunnarsson, 12.10.2009 kl. 23:53
og hvað var niðurstaðan ?
Rabbi (IP-tala skráð) 20.10.2009 kl. 17:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.