Færsluflokkur: Íþróttir
- Ísland
- Pólland
- Frakkland
- Króatía
- Danmörk
- Spánn
Þið getið farið með þetta í veðbankann
Ísland og Frakkland mætast klukkan 13 á laugardag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | 29.1.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Ef Ísland ætlar sér gull á EM þá þurfa þeir að vinna Pólverja, því þeir taka Króatana í undanúrslitunum. Ég hefði valið Frakka í undanúrslitin á móti okkur, frekar en Pólverjana. Þó Frakkar séu ógnar sterkir þá er ekki sami sprengikraftur í þeim og oft áður.
Eftir að hafa horft á leik Dana og Króata áðan, þá er ekki nokkur spurning í mínum huga að við erum betri en bæði þau lið. Leikur okkar gegn Noregi var samt ekkert sérstakur, en það dugði. Við þurfum að eiga betri leiki í undanúrslitum og þá sérstaklega varnarlega og þá kemur vonandi betri markvarsla í kjölfarið.
Ps. Það verður auðvitað að minnast á stórleik Arnórs Atlasonar í leiknum. Hann var stórkostlegur. Að skora 10 mörk utan af velli, auk a.m.k. fjögurra stoðsendinga gegn sterkum Norðmönnum, er frábært afrek.
EM: Ísland mætir Frakklandi í undanúrslitum á laugardag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | 28.1.2010 (breytt kl. 22:02) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mér hefur alltaf fundist dreifð markaskorun hjá sigurliði, bera vott um styrk þess. Að ekki sé verið að stóla á eina eða tvær markavélar. Vissulega er alltaf gaman að því þegar einhver hrekkur í gang og er óstöðvandi og skorar 10-15 mörk í öllum regnbogans litum, en slíkir leikir taka sinn toll hjá viðkomandi leikmanni og hætt er við að hann verði framlár í lok móts með slíkum atgangi.
Sex leikmenn íslenska liðsins hafa skorað 133 mörk og dreifast þessi mörk nánast jafnt á leikmennina. Rúmlega tuttugu mörk til viðbótar dreifast síðan á hina leikmennina. Þetta er frábærlega jafnt skor og jákvætt.
Ég fór á EM í Sviss 2006, með þremur félögum mínum. Uppistaðan í liðinu þá er enn til staðar. Við spiluðum einmitt við Noreg í þeirri keppni. Þá höfðum við þegar unnið Rússa í fyrsta skipti á stórmóti og nú átti að taka Norðmennina. Í stuttu máli þá töpuðum við og einhver Norsarinn skoraði 16 mörk í leiknum
Ólafur og Snorri markahæstir í íslenska liðinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | 27.1.2010 (breytt kl. 12:57) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
"With his Danish team GOG filing for bankruptcy today, Icelandic coach Gudmundur Gudmundsson might have to look for employment, but if the Icelandic team continues to play like this, he will probably have to fight bidders off with a stick."
Segir Adolf Ingi Erlingsson í fréttapistli um Rússaleikinn á heimasíðu EHF . (Flott hjá Dolla ) Myndin er af Aroni í leiknum á sömu síðu. Spurning um smá "Silver" í hausinn
Þessi leikur var ágæt upphitun fyrir "Nojaraleikinn" og það var gott að geta dreift álaginu á leikmenn. Máttarstólpar liðsins fengu kærkomna hvíld og nýir menn fengu að spreyta sig með frábærum árangri. Allt er á réttri leið í undanúrslitin. Pólverjar tryggðu sér inn í þau í kvöld, í fyrsta skipti í sögu þjóðarinnar. Við þurfum að vinna þá, ef við ætlum okkur evrópumeistaratitilinn. En fyrst er það auðvitað Noregur og þeir eru sýnd veiði en ekki gefin.
Á téðri heimasíðu má finna statistík um leikmenn liðanna úr leiknum. Það vekur athygli að aðeins þrír leikmanna okkar fengu brottvísun í leiknum, allir tvisvar sinnum hver, samtals 12 mínútur. Rússar fuku einnig útaf í 12 mínútur.
Átta marka sigur á Rússum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | 26.1.2010 (breytt 27.1.2010 kl. 00:41) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Guðjón Valur skoraði ekki í dag og átti aðeins eitt skot á markið. Þrátt fyrir það er ekki hægt að segja að hann hafi átt slæman dag.... en samt.
Ég er ekki alveg að fatta hvers vegna Gummi þjálfari gefur ekki Sturla séns í stöðu Guðjóns. Ekki veitir af að dreifa álaginu og allir vita hversu Guðjón er mikilvægur liðinu. Þegar hann er í ham þá halda honum engin bönd.
Á töflunni hér að neðan má sjá statistík yfit leikmenn íslenska og króatíska liðsins.
Reyndar sýnist mér að það vanti þarna nokkrar vörslur hjá Bjögga í töflunni.
TP í aftasta dákinum er "time played", þ.e. mínútur spilaðar og eins og sést þá spilaði Guðjón Valur í 60 mínútur. Það er athyglisvert að Balic skoraði ekkert í seinni hálfleik.
Guðjón Valur: Stig sem gæti reynst mjög dýrmætt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | 25.1.2010 (breytt 26.1.2010 kl. 00:11) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Úr því sem komið var, þá var frábært að fá stig úr leiknum. Reyndar held ég því fram að tékknesku dómararnir hafi fært Króötum stig á silfurfati á lokamínútum leiksins með því að reka Íslendinga útaf fyrir litlar sakir og vítaköst að auki. Og svo fengu Króatar að hanga alltof lengi á boltanum síðustu mínútuna.
En hvað um það, í sjálfu sér ágæt úrslit og framhaldið er í okkar höndum. Við þurfum ekki að stóla á aðra í baráttunni að komast í undanúrslit.
Liðið í heild var að spila frábærlega en er ekki kominn tími á Sturlu Ásgeirsson? Mér finnst hann frábær leikmaður og við þurfum allar hendur á dekk.
Jafntefli gegn Króötum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | 25.1.2010 (breytt kl. 17:20) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mikil handboltahefð er í löndum fyrrum Jógóslavíu og þar hafa Króatar verið fremstir í flokki. Leikmenn þeirra eru afar góðir tæknilega og það vekur athygli mína hversu hávaxið lið þeirra er.
Ég sagði stundum um Svíana, þegar þeir voru upp á sitt besta fyrir nokkrum árum, að þeir væru "leiðinlega góðir", með Faxa (Staffan Olsson, núverandi landsliðsþjálfara Svía) í broddi fylkingar. Króatar hefur mér hins vegar fundist "skemmtilega góðir", með Ivano Balic fremstan í flokki.
Til marks um hæð Króata, þá er Balic 191 cm. en hann virkar hálfgerður stubbur við hlið félaga sinna. 9 af 16 leikmönnum liðsins eru 195 cm. eða meira, þar af eru 5 leikmenn 2 m. eða meira. Sá hæsti er Marko Kopljar, örvhent skytta
2,10 m, 96 kg. 23 ára, leikmaður Croatia Zagreb í Króatíu. Dálítið léttur reyndar miðað við hæð... hálfgerður vaðfugl. Vonandi nær hann sér ekki á flug
Við tökum Króatana í dag með geðveikinni.
Leikmenn Króatíu - kynning | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | 25.1.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fjögur bestu liðin á EM að þessu sinni eru Króatar, Frakkar, Íslendingar og síðast en ekki síst, Pólverjar.
Ég sá leik Frakka og Þjóðverja í dag og við erum klárlega með betra lið en þýskararnir. Frakkarnir eru ívið slakari en þeir hafa verið undanfarin ár og eru alls ekki ósigrandi.
Við megum tapa fyrir Króötum án þess að glata möguleikunum á sæti í undanúrslitum, en ég hef trú á að við vinnum þá og einnig Rússa og Norðmenn. Ég tel okkur eiga betra lið en síðast töldu liðin.
En við vinnum ekki þessi lið nema hafa geðveikina að leiðarljósi.
Létt yfir leikmönnum landsliðsins á æfingunni í Vín | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | 24.1.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mikhael Knudsen ætti nú ekki að segja mikið. Hann er frægur fyrir sín bolabrögð á línunni og margir andstæðinga hans hafa kvartað yfir honum.
Að margra mati hefur hann alltof lengi komist upp með lúmskan fautaskap sinn, bæði í sókn og vörn.
Wilbæk: Mér að kenna hvað dómararnir voru slæmir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | 24.1.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Við erum nánast öruggir áfram í milliriðil. Ef við vinnum Dani, þá er það mjög gott, upp á möguleikana á að komast í fjórðungs úrslit.
Ef við komumst þangað... þá eru 50% líkur á því að við verðum Evrópumeistarar.
..... Sem minnir mig á ....
enginn vinnur skák með því að gefa hana.....
Við lifum þetta af | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | 23.1.2010 (breytt kl. 05:00) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.1.): 5
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 30
- Frá upphafi: 946107
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Bæn dagsins...
- Framsækið verðmætamat hinna réttsýnu
- "VALKYRJURNAR" HAFA ENGAN TÍMA TIL AÐ VINNA Í "ÞINGMÁLASKRÁNNI"...
- Eldsvoðinn á Sævarhöfða: Brýnt að bæta aðstæður hjólhýsabúa
- Hálf saga um andóf gegn her
- Af hverju eiga Danir að ráða yfir Grænlandi??
- Jólatré í Belgíu
- Fleiri með eða á móti?
- Ef enginn vinnur neina heimavinnu ...
- Dugmikill þingmaður - ef "danglað" er í þá