Höfum haft tak á Júggunum

ivano_balic_366235Mikil handboltahefð er í löndum fyrrum Jógóslavíu og þar hafa Króatar verið fremstir í flokki. Leikmenn þeirra eru afar góðir tæknilega og það vekur athygli mína hversu hávaxið lið þeirra er.

Ég sagði stundum um Svíana, þegar þeir voru upp á sitt besta fyrir nokkrum árum, að þeir væru "leiðinlega góðir", með Faxa (Staffan Olsson, núverandi landsliðsþjálfara Svía) í broddi fylkingar. Króatar hefur mér hins vegar fundist "skemmtilega góðir", með  Ivano Balic fremstan í flokki.

Til marks um hæð Króata, þá er Balic 191 cm. en hann virkar hálfgerður stubbur við hlið félaga sinna. 9 af 16 leikmönnum liðsins eru 195 cm. eða meira, þar af eru 5 leikmenn 2 m. eða meira. Sá hæsti er Marko Kopljar, örvhent skytta
2,10 m, 96 kg. 23 ára, leikmaður Croatia Zagreb í Króatíu. Dálítið léttur reyndar miðað við hæð... hálfgerður vaðfugl. Vonandi nær hann sér ekki á flug Errm

Við tökum Króatana í dag með geðveikinni.


mbl.is Leikmenn Króatíu - kynning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Balic er svona Óli Stef þeirra Króata.Gífurlega skemmtilegur leikmaður sem getur unnið leiki upp á sitt einsdæmi og er oftast bestur þegar mikið liggur undir.En það verður skemmtilegt að horfa í dag og nú krossleggur maður bara fingur og vonar að strákarnir séu allir tilbúnir.

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 25.1.2010 kl. 12:25

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Gunnar Th. Gunnarsson, 25.1.2010 kl. 12:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband