Færsluflokkur: Menning og listir
Ýmsir menningarviðburðir áttu sér stað á Austurlandi, á "Dögum myrkurs" dagana 28. október til 1. nóvember.
Framlag okkar Reyðfirðinga var kvöldvaka í Grunnskóla Reyðarfjarðar. Austfirskir rithöfundar lásu upp úr bókum sínum sem eru að koma út þessa dagana og Kór Reyðarfjarðarkirkju söng á milli upplestra.
Hér að neðan má sjá og heyra tvö laganna sem kórinn söng.
Menning og listir | 3.11.2015 (breytt kl. 01:52) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hræsnin í Kananum á sér lítil takmörk.
Mesti soraklámsframleiðandi heims. Mesti ofbeldismyndaframleiðandi heims... en fer svo á límingunum yfir þessari mynd.
Allt varð vitlaust þegar sást í hálfa túttu Janet Jackson í hálfleik á Superbowl.
Ef allir á facebokk pósta þessari fallegu mynd, þá yrði fb væntanlega lokað.... eða hvað?
Hvernig væri að við Íslendingar tækjum okkur saman og settum þessa mynd á fb-síðuna okkar kl. 12 á hádegi á laugardaginn? Ég er til, en það þýðir náttúrulega ekkert fyrir mig að gera það einn. Þá yrði bara lokað á mig... og málið er dautt.
Er þessi mynd of dónaleg? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menning og listir | 5.3.2015 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Það er ekki hægt annað en þykja vænt um Kenneth Mána Johnson, hlæja að honum, með honum og stundum tárast yfir brestum hans, greiningum og örlögum.
Sýningin í Borgarleikhúsinu er yndisleg skemmtun, tragic/cómísk og Björn Thors er snillingur. Ég veit þetta er yfirdrifið lýsingarorð en þetta er bara staðreynd
Það var margt eftirminnilegt í sýningunni en ég fer ekki nánar út í það. Ég vil þó segja ykkur frá uppklappinu í lokin þegar Björn Thors er að hneigja sig fyrir áhorfendum... í karakter Kenneths Mána. Svo stendur hann teinréttur á miðju sviðinu í blálokin og andlit Kenneths Mána rennur af leikaranum og Björn Thors í eigin persónu hneigir sig auðmjúklega fyrir dynjandi lófaklappi áhorfenda í fullum sal.
Umbreytingin á andlitinu, augnsvipurinn, glottið...það var magnað að verða vitni að þessu. Ég mæli með kvöldstund með Kenneth Mána.
Menning og listir | 23.10.2014 (breytt kl. 14:18) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Menning og listir | 30.9.2013 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Virkilega flott hjá þessum stelpum á myndbandinu.
Eyþór Ingi er flottur söngvari þó mér finnist nefhljómurinn mikill löstur á rödd hans. Þetta hefur þó skánað mikið frá því hann öðlaðist athygli í þættinum "Bandið hans Bubba". Ég sá Eyþór í "Rocky Horror" í Hofi á Akureyri í fyrra vetur og þar fór hann algjörlega á kostum í hlutverki Riff Raff sem sjá má HÉR
Evróvisjónlagið sungið í messum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menning og listir | 11.2.2013 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
- Meðal andanna - Birgitta Haukdal
- Til þín - Jógvan og Stefanía
- Lífið Snýst - Svavar Knútur og Hreindís Ylva
- Ég syng - Unnur Eggertsdóttir
Ekki endilega í þessari röð og endurspeglar í sjálfu sér ekki minn smekk. Ég er reyndar á því að Ég syng og Lífið snýst eigi mesta möguleika til vinsælda úti.
Skegg eða ekki skegg? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menning og listir | 2.2.2013 (breytt kl. 21:08) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Það var yfirleitt venja að ríkjandi stjórnvöld urðu mest fyrir barðinu á höfundum Áramótaskaupsins. Það breyttist eftir að hin hreina og tæra vinstri stjórn tók við fyrir tæpum 4 árum.
Hvað segir það okkur? Að það sé satt sem sagt er um leikhúsfólk?
V-grænir eru flestir ánægðir. Þeir hafa þá eitthvað til að gleðjast yfir.
Færri ánægðir með Skaupið nú | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menning og listir | 23.1.2013 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bróðursonur minn, Þórður Karl Einarsson, tekur kvikmyndir með fjarstýrðri þyrlu. Afraksturinn er stórkostlegur, eins og sjá má á myndbandinu hér að neðan.
Menning og listir | 13.9.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þorrablót Reyðfirðinga var haldið í 91. sinn á bóndadaginn, 20. janúar. Við hjónin nutum þess heiðurs að vera formenn nefndarinnar þetta árið, en ný nefnd er kosin árlega af fráfarandi nefnd.
Fjölgað var í nefndinni í fyrra, úr 14 manns í 20 og veitir ekki af, því vinna við undirbúning blótsins jókst mikið við hina miklu íbúafjölgun í þorpinu, eftir að álver Alcoa Fjarðaáls hóf starfsemi sína. Blótið var flutt úr Félagslundi, félagsheimili staðarins sem hafði hýst blótið í um 60 ár, í íþróttahúsið. Sú breyting kostar að setja þarf upp svið, ljósabúnað, hljóðkerfi, dansgólf og teppi, borð og stóla ásamt ýmsu fleiru, á hverju ári og setja svo allt í fyrra horf strax daginn eftir.
Þetta er gríðarleg vinna og einhver úr nefndinni reiknaði að gamni sínu út að miðaverðið hefði þurft að vera um 30 þúsund krónur, ef borga hefði átt laun fyrir vinnuframlag nefndarinnar sem var um 2.500 vinnustundir síðustu tvær vikur fyrir blót, en þá hafði þegar farið fram töluverð forvinna, m.a. við gerð grín-annálsins um þorpsbúana. (Stækka má myndirnar með því að smella þrisvar á þær)
Baksviðs, báðu megin, hafði nefdin aðstöðu fyrir sig og leikmunina í annálnum.
Jói Deddi veltir vöngum yfir hvernig koma megi gestum sem haganlegast fyrir í salnum, en uppselt var á blótið og aðsóknarmetið var slegið hressilega. Rúmlega 380 manns sátu blótið í ár en gamla metið var ríflega 330 manns, sett árið 2008. Mest varð aðsóknin í Félagslundi um 270 manns, en það var í raun alls ekki boðlegt vegna þrengsla. Hæfilegur fjöldi í því ágæta húsi var ekki nema um 230.
Þarna er salurinn að verða nokkurnveginn klár, nokkrum klukkustundum áður en blótið hófst. Síldarnót er hengd í loftið til skrauts.
Trogin komin á borðin og Vallý tékkar hvort allt sé ekki örugglega í orden.
Rétt fyrir opnun hússins, kl. 19.30. Hákarl og brennivín fyrir gesti um leið og þeir ganga inn.
Fyrsti bakkinn tilbúinn. Sunna og Óskar glaðbeitt og full af tilhlökkun.
Bjarni bíður eftir fyrsta gestinum.
Menning og listir | 25.1.2012 (breytt kl. 13:29) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þegar Harpan var vígð í haust sögðust margir hafa orðið fyrir vonbrigðum með lýsinguna í glerhjúpnum, en mikið var gert úr meintum glæsileika hennar áður en herlegheitin birtist almenningi.
Nú er glerlistarhönnuðurinn búinn að bæta um betur og búinn að setja upp einhverskonar diskóljósasýningu, sem truflar bílaumferð við húsið og gæti valdið slysahættu.
Miðað við myndbrotið sem fylgir þessari frétt, þá er hin nýja hönnun skelfilega hugmyndasnauð og minnir á útkomuna úr fikti unglings í Spectrum Sinclair heimilistölvunni frá árinu 1982. Hvað kostar þetta aukabull?
Harpa breytir um ham | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menning og listir | 13.12.2011 (breytt kl. 15:33) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 24
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 22
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Viðreisnarhjartað tifar
- Hver ER; LJÓSBERI jarðarbúana þegar að það kemur að heimsóknum gesta frá öðrum stjörnukerfum?
- Hægt með krónunni?
- Er Kína í stríði við Evrópu??
- Karlmannatíska : RALPH LAUREN Polo Holiday 2024
- Hérna eru gamlar TÆKNITEIKNINGNAR af HINU NÝJA GOSI sem að er nú NÝ HAFIÐ: 20.NÓVEMBER 2024 en beðið er eftir NÝJUSTU TÆKNITEIKNINGUNUM:
- Úr munni hestsins
- Erfiðið út í buskann
- "ÚLFUR Í SAUÐAGÆRU"??????
- Það gýs á tveimur stöðum af ólíkum ástæðum