Færsluflokkur: Bloggar
Til hamingju Valsmenn!!!
Hlakka til að koma á heimaleik næsta sumar.
![]() |
Valur Íslandsmeistari í fyrsta skipti í 20 ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 29.9.2007 (breytt kl. 17:31) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég var sjúkrabörumaður á lokaleik Fjarðabyggðar þetta keppnistímabilið og andstæðngurinn var lið Grindavíkur. Mínir menn sigruðu 1-0 og miðað við þau úrslit þá dugði Fjölnismönnum sigur gegn ÍBV en þeir töpuðu hins vegar 4-3 í Eyjum og enduðu í þriðja sæti. Þróttarar sem unnu fallliðið Reyni frá Sandgerði 4-0, hefðu orðið Íslandsmeistarar með 7-0 sigri, á hagstæðari markatölu en Grindvíkingar.
Grindvíkingar fagna þrátt fyrir tap í kvöld. Eins og sjá má þá var orðið ansi skuggsýnt í leikslok en leikurinn hófst kl. 17.15 sem var a.m.k. hálftíma of seint.
Bloggar | 28.9.2007 (breytt 29.9.2007 kl. 00:11) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það er auðvitað ágætt að vakin sé athygli á íslenskri tungu í dægurlagatextagerð en að Bubbi Morthens fari fyrir slíkri herferð er sprenghlægilegt.
Auglýsing hans í sjónvarpinu þar sem hann sýnir alla "nýjustu" fingratakta bandarískra rappara er svo hallærisleg að einn þriðji væri yfirdrifið. Kallinn á sextugsaldri að taka upp á þessu núna! Bubbi hefur víða komið við, bæði á tónlistarferli sínum og í textagerð. Sumir segja að hann endurnýji sig en ég segi að þetta flakk hans minni frekar á ungling að leita að sjálfum sér, ungling sem er að reyna að finna fjölina sína. Textar hans eru svo skelfilegir margir hverjir, að maður veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta og það sem hann hefur látið frá sér tónlistarlega er sumt svo aumt að það er eginlega sorglegt, þó vissulega eigi hann nokkrar ágætar perlur.
![]() |
Bubbi býður þrjár milljónir fyrir íslenskuna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 28.9.2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Kristinn H. Gunnarsson er kominn á endastöð í pólitík. Hann á að vísu eftir að reyna fyrir sér í Samfylkingunni og Sjálfstæðisflokknum en VG er auðvitað bara Alþýðubandalagið sáluga, upphaflega heimalandið, með nýja kennitölu. En þessir flokkar munu ekki leggja rauðan dregil fyrir framan hann til inngöngu í flokka sína líkt og Frjálslyndir gerðu og þar áður Framsóknarmenn.
Frjálslyndir eru margir hverjir nýgræðingar í pólitík og hafa nú þegar brennt sig á því að taka Kristni opnum örmum. Jens Guð sem innanbúðar er hjá flokknum segir eftirfarandi:
"Sigurjóni og fleirum til mikillar undrunar notaði Kristinn stöðu sína strax til að beita sér gegn Sigurjóni og fleirum. Með ókurteisi og hótunum. Bara svo að eitt lítið dæmi sé nefnt þá barðist Kristinn á hæl og hnakka gegn því að Sigurjón og Jón Magnússon fengju aðgang að heimasíðu flokksins. Og Kristinn hefur staðið óhagganlegur gegn því að Sigurjón yrði framkvæmdarstjóri".
![]() |
Ekki niðurstaða að mínu skapi" segir Sigurjón Þórðarson |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 28.9.2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég bloggaði um það um daginn að ég hefði heillast af þessum pilti hjá Jay Leno og við leit á youtube hefði ég fundið nokkrar útgáfur af þessu lagi, Last Request en enga eins innlifaða og hjá Leno. Jæja, hér er Leno útgáfan, algjör snilld þó hljómagangurinn í sellóinu sem er mjög smekklegur, hljómi á köflum kunnuglega enda sjálfsagt margnotaður.
Ég plataði konuna mína þegar ég sýndi henni þetta og sagði að söngvarinn sem væri höfundur lagsins, væri bæði vangefinn og hálf lamaður öðru megin. Ég vissi að það myndi svínvirka, en ég viðurkenni að ég fékk smá samviskubit þegar ég sá glitta í tár hjá henni . Ég er ennþá aumur í öxlinni eftir að hún barði mig í hana þegar ég sagði henni að ég væri bara að plata.
Bloggar | 27.9.2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)

![]() |
Brasilía lék Bandaríkin grátt á HM kvenna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 27.9.2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Umrædd fyrirsögn er úr frétt Mbl.is, en einhverra hluta vegna er ekki hægt að blogga við fréttina sem er HÉR . Hann var handtekinn á flugvellinum í Delhi á Indlandi þar sem hann var eftirlýstur af bandarískum yfirvöldum fyrir peningaþvætti.
Samkvæmt því sem ég las á blogsíðu Jens Guð þá heitir maðurinn Gunnar Möller Wathne, sonur Þórunnar Wathne og Jakobs Þóris Möller, lögfræðings og fulltrúa Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna í Genf. HÉR má sjá auglýsingu DEA (U.S. Drug Enforcement Administration) Einhvern vegin tengir maður Wathne nafnið við "Ég veit ekki aura minna tal" a.m.k. miðað við umfjallanir glamúrtímarita hér á landi, en krimma-genið getur sprottið upp í ólíklegustu fjölskyldum greinilega. Kannski eitthvað fyrir Kára Stefánsson að rannsaka.
Bloggar | 27.9.2007 (breytt kl. 11:24) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Á föstudaginn kemur þann 28. september kl. 16:00 verða glæsilegar vatnsrennibrautir við Sundlaug Norðfjarðar vígðar. Um er að ræða tvær stórar rennibrautir. Önnur er 5,4 metrar á hæð og 47 metrar að lengd en hin er 7,4 metrar á hæð og 68 metrar að lengd. Í tilefni dagsins verður frítt í sund á Norðfirði og opið allan daginn, rennibrautin opnar kl. 12:00.
Það er Samvinnufélag útgerðarmanna í Neskaupstað, SÚN, sem gefur rennibrautina af alkunnum myndarskap.Að vígslunni lokinni býður SÚN upp á grillaðar pylsur og frítt á á leikinn Fjarðabyggð - Grindavík sem fer fram á Norðfjarðarvelli kl. 17:15.
(Af fjardabyggd.is)
Bloggar | 26.9.2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
![]() |
Lítil spilling á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 26.9.2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þessa grjóthleðslu sá ég í Kópavogi um daginn. Snyrtileg og falleg lausn, viðhaldsfrí og umhirða s.s. sláttur í erfiðri brekku er úr sögunni. Góð fjárfesting.
Svipuð brekka við eystri enda Fjarðabyggðarhallarinnar á Reyðarfirði. Kjörið að leysa vandamálið með sama hætti.
Bloggar | 25.9.2007 (breytt 26.9.2007 kl. 01:00) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.9.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 29
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 25
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Vinsamlegast útskýrið
- Margir konur eru dregnar inn í þetta, með sektarboðorði
- Jafnvel herveldi eins og Rússland á sín takmörk. Sé ekki samið um frið tímanlega fer allt til fjandans enn meira
- Þjóðríkin úreld
- Hin ómerkilega ESB gulrót
- ESB ríkið Slóvakía vill að lög þeirra gangi framar ESB í mikilvægustu málum. Hvers vegna ætti EES ríkið Ísland að samþykkja almennan forgang ESB reglna?
- Lækning sem er 1000x hættulegri en sjúkdómurinn
- Viðreisn gætir eigin hagsmuna
- Karlmannatíska : BARBOUR haust og vetur 2025 - 26
- Drónaárásir sem kveikja ótta
Nýjustu albúmin
Af mbl.is
Íþróttir
- Rúnar um KR: Skelfileg tilhugsun fyrir mig
- Útskýrir af hverju hann lét fjölmiðlamenn heyra það
- Rúnar: Hef leyft syni mínum að svara fyrir sig
- Vigdís í stóru hlutverki
- Vænleg staða Evrópu fyrir lokadaginn
- Landsliðsmennirnir stóðu sig vel
- Stórleikur Viktors í nítján marka sigri
- Orri óstöðvandi í toppslagnum
- Njarðvík lyfti fyrsta bikar tímabilsins
- Mark í uppbótartíma í dramatísku jafntefli