Paolo Nutini hjá Jay Leno

Ég bloggaði um það um daginn að ég hefði heillast af þessum pilti hjá Jay Leno og við leit á youtube hefði ég fundið nokkrar útgáfur af þessu lagi, Last Request en enga eins innlifaða og hjá Leno. Jæja, hér er Leno útgáfan, algjör snilld þó hljómagangurinn í sellóinu sem er mjög smekklegur, hljómi á köflum kunnuglega enda sjálfsagt margnotaður.

Ég plataði konuna mína þegar ég sýndi henni þetta og sagði að söngvarinn sem væri höfundur lagsins, væri bæði vangefinn og hálf lamaður öðru megin. Ég vissi að það myndi svínvirka, en ég viðurkenni að ég fékk smá samviskubit þegar ég sá glitta í tár hjá henni Blush. Ég er ennþá aumur í öxlinni eftir að hún barði mig í hana þegar ég sagði henni að ég væri bara að plata. LoL 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Gunni,ég held að þessi útþynnta kópía af söngstíl Ray Charls heppnist aðeins með því að kreista á sér vinstra eistað.

viðar (IP-tala skráð) 1.10.2007 kl. 21:35

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Mér datt reyndar ekki Ray Caharles í hug en vissulega má heyra örlitla samsvörun  

Gunnar Th. Gunnarsson, 1.10.2007 kl. 22:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband