Glæsilegar vatnsrennibrautir á Norðfirði

Á föstudaginn kemur þann 28. september kl. 16:00 verða glæsilegar vatnsrennibrautir við Sundlaug Norðfjarðar vígðar. Um er að ræða tvær stórar rennibrautir. Önnur er 5,4 metrar á hæð og 47 metrar að lengd en hin er 7,4 metrar á hæð og 68 metrar að lengd. Í tilefni dagsins verður frítt í sund á Norðfirði og opið allan daginn, rennibrautin opnar kl. 12:00.

Það er Samvinnufélag útgerðarmanna í Neskaupstað, SÚN, sem gefur rennibrautina af alkunnum myndarskap.Að vígslunni lokinni býður SÚN upp á grillaðar pylsur og frítt á á leikinn Fjarðabyggð - Grindavík sem fer fram á Norðfjarðarvelli kl. 17:15.

f13dbfca9226139

(Af fjardabyggd.is)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband