Færsluflokkur: Bloggar

durex - extra large

durex
mbl.is Til í tuskið 110 ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Talar niður væntingar

óliÞetta er rétt "taktík" hjá Guðmundi þjálfara... að tala niður væntingarnar vegna HM í Svíþjóð. Það virðist ekki henta skapgerð Íslendinga að vera með miklar yfirlýsingar fyrir leiki.

Ég held reyndar að þetta lið sé búið að "toppa". Burðarásar liðsins eru komnir nokkuð á aldur og í svona keppni þarf fleiri en 2-3 leikmenn sem geta tekið af skarið þegar á þarf að halda.

Arnór Atla, Snorri Steinn og Aron Pálmason þurfa að eiga toppmót, ásamt "gömlu" mönnunum, Óla Stef, Guðjóni Val, Lexa og Sverre.

Ég er ekki endilega að sjá það fara að gerast. Errm


mbl.is Landsliðsþjálfarinn varar fólk við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðilegt ár!

Ég óska öllum vinum nær og fjær, gleðilegs árs og þakka fyrir liðið.

árið


Engin jólakort. Gleðileg jól

Við fjölskyldan ákváðum að senda engin jólakort þetta árið, heldur gefa andvirði kostnaðarins til Rauðakrossdeildarinnar í Fjarðabyggð. Hér var farin sú leið að láta fólk EKKI bíða í biðröðum eftir mat, heldur fá þeir sem þurfa, debetkort sem hægt er að versla mat fyrir.

Ég óska öllum gleðilegra jóla og megið þið hafa það sem notalegast yfir hátíðirnar.

christmas


Magnaðar myndir

The big picture  er vefsíða með fréttamyndum af helstu atburðum líðandi árs. Vel þess virði að skoða.

eyjafj

Eyjafjallajökull. Hægt er að stækka myndina með nokkrum músasmellum.

nautaat

Nautabananum var vart hugað líf en þó tókst að bjarka honum á skurðarborðinu


Ráðist á Lilju, ekki skoðun hennar

Ég var að læra nýtt orðasamband/hugtak; "bunker mentalíted". Cool

Á wikipedi segir um orðasambandið:

"A bunker mentality is a slang phrase for a phenomenon that occurs when a group or individual stops taking new, pertinent information into account, and begins viewing outsiders as enemies, due to an isolation resulting from being under attack. Political campaigns and figures are often accused of having this mentality, particularly when a leader, administration or party has become unpopular or is in some sort of trouble.[1]"

Kannski er ég hlutdrægur.... en mér finnst endilega að vinstrimenn á Alþingi ráðist oftar á persónur manna en skoðanir þeirra. Ég get vottað það, að sjálfur fæ ég oft persónulegar árásir hér á blogginu, frá vinstrimönnum. Mér finnst það gott.


mbl.is Ekki níð um nokkurn mann segir Ólína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lýðurinn fær það sem hann vill

stjórninretardsSamkvæmt þessu, þá hefur "lýðurinn" hvergi meiri völd í veröldinni en hér (fyrir utan Noreg).

Er ekki sagt að hver þjóð á skilið þá ríkisstjórn sem hún hefur? Mér finnst samt örlaganornirnar dálítið óvægnar við íslensku þjóðina, að demba þessari ríkisstjórn yfir okkur. Spurning hvað þessi refsing muni standa lengi yfir. Frown

"Norræna velferðarstjórnin" kallar hún sig, ríkisstjórnin okkar. Vinna og atvinnutækifæri eru frekar aftarlega í forgangsröðinni en velferðin fremst. Er ekki eitthvað öfugsnúið við þetta? Woundering

lýðræði


mbl.is Lýðræðið mest á Norðurlöndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver hefði trúað þessu?

Það er hægt að taka heils hugar undir orð Ragnheiðar Elínar Árnadóttur, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, að þetta sé "..eina jákvæða skattabreytingin ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar hefði staðið að og ástæðan væri ef til vill sú, að þingið hefði tekið völdin af ríkisstjórninni og knúið fram þessar breytingar."

Nokkrir framsóknarmenn og þingmaður Hreyfingarinnar, sjá ekki hag af netþjónabúum á Íslandi, með þessum breytingum á skattaumhverfi þeirra.

Það þykir mér stórmerkilegt að heyra. Það er s.s. ekki hagur í því að selja orkuna og skapa verðmæti úr henni? Woundering Það er ekki hagur í því að skapa störf fyrir "mannauðinn"okkar, sem við montum okkur af á tyllidögum? Það er s.s. ekki hagur af því, við aðstæður sem nú ríkja, að að verkefnum fyrir sölu og þjónustuaðila fjölgi?

Hver hefði trúað þessu? Errm


mbl.is Netþjónabú boðin velkomin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Röng notkun á Facebook

Manni skilst að allskyns viðbætur sem boðið er upp á í Facebook, geti verið hættulegar tölvunni. Ég er búinn að losa mig við flestar viðbætur og er ekki frá því að það sé bara léttara yfir tölvunni fyrir vikið. Woundering

Eina viðbót fékk ég mér þó um daginn sem ég held að sé örugglega í lagi, en hún er sú að geta tengt "Íslendingabók" við vinalistann, til að sjá skyldleikann. Mjög sniðugt. Ég t.d. eignaðist "nýja frænku" úr facebook-vinahópnum, þegar ég "keyrði" þetta saman.

fésbók


mbl.is Heimskort Facebook
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Karlaheimurinn í dag

 

Þetta er karlaheimurinn í dag...

 

Lítill drengur kom til mömmu sinnar og spurði hana af hverju konur gifta sig alltaf í hvítu.  Mamman sagði það bara  vera svo flott.

Strákur var ekki ánægður með svarið og spurði pabba sinn að því sama.

Pabbinn sagði að öll heimilistæki kæmu í hvítu.!!!

Samkvæmt............ nýustu upplýsingum frá lækni á slysadeildinni er pabbinn komin úr
öndunarvél og allur að koma til


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband