Ungmennafélagsandinn?

Þegar atkvæðagreiðsla á sér stað um það hvar helstu stórmót í íþróttum eiga að fara fram, þá er alltaf slatti af atkvæðum til sölu. Katar á mikla peninga og hefur greinilega beitt þeim óspart enda ekki ólíklegt að óvenju margir hafi verið falir vegna alþjóðlegu fjármálakreppunnar. 

qatar-airwaysKatar er talið ríkasta land í heimi, enda situr þetta litla land á mestu gasbirgðum sem fyrirfinnast í veröldinni, auk þess sem olía er þar í miklum mæli. Þarna er algjört einræði en farið er tiltölulega mildum höndum um þegnanna, í samanburði við flest nágrannalönd þeirra. Konur mega t.d. aka bifreiðum í Katar!

Sú fagra hugsjón sem sögð er höfð að leiðarljósi hjá Alþjóða knattspyrnusambandinu; að dreifa beri keppninni sanngjarnt um heimsbyggðina með það að markmiði að kynna íþróttina sem víðast, er góðra gjalda verð. En ég sé bara ekki hvaða gagn er verið að gera knattspyrnunni með því að halda keppnina í olíu og eyðimerkurríkinu Katar, þar sem búa rúmlega miljón manns.

Fyrirhugaðar fjárfestingar Katar- manna í loftkældum knattspyrnuhöllum, verða væntanlega galtóm minnismerki um fáránlegt bruðl mannskepnunnar. Ég hélt að svoleiðis hugsunarháttur væri á undanhaldi. Errm

Það þarf enginn að segja mér það að ákvörðun FIFA um að halda keppnina í Katar ári 2022, hafi verið byggð á ungmennafélagsandanum.Woundering


mbl.is Uppsveifla í Qatar vegna HM
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband