Færsluflokkur: Bloggar
Væntanlega er það afar hagkvæmt að rækta tómata í risagróðurhúsi, svo framarlega sem markaðir taka við afurðunum. En smærri gróðurhúsabændur geta ekki keppt við svona risa og hvað verður þá um þá?
Þeir rækta bara auðvitað "eitthvað annað"
![]() |
Tómatar geta skapað 60 til 100 störf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 2.3.2011 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Þó atvinnuleysi og kreppa hafi vissulega haft áhrif í Fjarðabyggð eins og annarsstaðar, er það ekkert í líkingu við það sem er að gerast á höfuðborgarsvæðinu og á Reykjanesi.
Fólksfjölgun í sveitarfélaginu er á pari við þær spár og væntingar sem gerðar voru vegna tilkomu álversins og það þrátt fyrir að um 300 störf hafi tapast úr sjávarútveginum á sama tíma. Það er erfitt að hugsa þá hugsun til enda, hvernig ástandið væri hér ef Ómari Ragnarssyni og félögum hefði tekist að koma í veg fyrir uppbygginguna sem hér hefur átt sér stað.
Ef miðað er við sveitarfélög sem hafa 650 íbúa eða fleiri, þá trónir Fjarðabyggð á toppnum sem tekjuhæsta sveitarfélag landsins á hvern íbúa, með 537.150 krónur. Garðabær er í öðru sæti með 536.933 kr. Sjá HÉR á heimasíðu Fjarðabyggðar.
Hin svokölluðu "ruðningsáhrif", sem andstæðingar framkvæmdanna töluðu um með Steingrím J. Sigfússon í broddi fylkingar, urðu engin eins og fram hefur komið í viðamikilli skýrslu um efnahags og samfélagsleg áhrif álversins á svæðinu.
Þó má e.t.v. tala um "jákvæð ruðningsáhrif" álversins, því með komu þess þá ruddi það í burtu undirborgunum á vinnumarkaði, vegna þess að samkeppni um vinnuafl var ekkert.
Bloggar | 28.2.2011 (breytt kl. 12:35) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Dóttir mín er á ferðalagi í Nýja Sjálandi með tveimur vinkonum sínum. Þær eru sem betur fer á öruggum stað sem stendur, þ.e. í Taupo sem er á Norður-eyjunni miðri, í um 500 km fjarlæg frá Christchurch.
Þær fundu ekki fyrir skjálftanum, sem var eins gott því þær voru í djúpt í 1 km. löngum helli, þar sem þær þurftu m.a. að synda í ísköldu vatni til að komast leiðar sinnar. Skilaboðin frá okkur foreldrum hennar á facebook: "Ekki fleiri hellaferðir í bili" !!
Þær eiga flug eftir nokkra daga frá Christchurch til Ástralíu og vonandi verður í lagi með það. Stelpurnar hættu hins vegar við að dvelja í borginni í einhverja daga eins og planið var.
Þetta er mikil ævintýraferð hjá stelpunum, nýkomnar frá Cook eyju. Ég smelli hér mynd með af dótturinni í fallhlífarstökki á Nýja Sjálandi.
![]() |
Óttast að 200 séu fastir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 22.2.2011 (breytt kl. 09:44) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Árni Matthíasson, bloggstjórnandi hér á Mbl.blog.is sendi mér póst í dag:
Ágæti Gunnar.
Í færslunni "75% alls fjarmagns í heiminum, stjórnað af Gyðingum", http://gthg.blog.is/blog/gthg/entry/1143910/, heldur þú fram staðhæfingu úr lygaskjali sem dreift var á nítjándu öld og síðan tekið upp af þýskum nasistum, nútíma nasistum og öðrum gyðingahöturum. Í skilmálum bloggsins stendur eftirfarandi:
"Notandi samþykkir sérstaklega að miðla ekki háði, rógi, smánun, ógnun eða ráðast á mann eða hóp manna vegna þjóðernis, litarháttar, kynþáttar, trúarbragða eða kynhneigðar, í samræmi við ákvæði 233. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940."
Þessi staðhæfing þín er klassískt dæmi um gyðingahatur og að okkar mati á slíkt ekki heima á blog.is. Ég beini því þeim tilmælum til þín að fjarlægja þessa færslu nú þegar og bendi þér á að verðir þú aftur staðinn að því að útbreiða þjóðernisníð verður aðgangi þínum að blogginu lokað fyrir fullt og allt.
Með kveðju,
Árni Matthíasson,
Svar mitt til Árna var eftirfarandi:
Sæll Árni. Mig minnir reyndar að ég hafi lesið þetta í bók Jóhannesar Björns, Falið vald. Það getur þó verið misminni hjá mér.Var kvartað yfir þessari færslu?
Ég mun að sjálfsögðu fjarlægi þessa færslu, úr því blog.is lítur svona á málið. Það var ekki meiningin að ráðast á einn né neinn með þessum skrifum.Ég má væntanlega birta þessa ábendingu á blogginu, öðrum til viðvörunar?
M.b.k. Gunnar Th. Gunnarsson
Bloggar | 19.2.2011 (breytt kl. 16:28) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
"Símenntunarmiðstöð Vesturlands og Vinnumálastofnun hafa um skeið staðið fyrir svokölluðum frumkvöðlasmiðjum fyrir atvinnulausa sem ganga út á að leiðbeina fólki við að leita að nýjum viðskiptahugmyndum. Nú stendur hinsvegar yfir, á Akranesi, fyrsta frumkvöðlasmiðjan eingöngu ætluð erlendum atvinnuleitendum.
"Marcin Szafranowicz er nemandi í frumkvöðlasmiðjunni. Hann hefur búið í 9 ár á Íslandi og alltaf notað pólskt sjónvarp. Hann segir að margir Íslendingar séu ekki hrifnir af öllum loftnetunum sem fylgi því. Hann segist vilja þróa netsjónvarp. Marcin er ekki viss hvort hann hrindir hugmyndinni í framkvæmd en það sé mikils virði að fá að þróa hana í frumkvöðlasmiðjunni." (Undirstrikun mín) ( ruv.is )
Þetta er væntanleg dæmi um "eitthvað annað", sem á víst að blasa við öllum.
Mjög spennandi frumkvöðlastarf hefur verið unnið í Hrísey s.l. áratug í kræklingarækt. Nú hefur þetta framtak verið tekið til gjaldþrotaskipta.
Ef það á að styðja við frumkvöðlastarf með opinberu fé á annað borð, þá vil ég sjá því fjármagni veitt í starfsemi sem þegar er komin af stað og lofar í raun góðu. Mikil þróunarvinna hefur átt sér stað hjá Norðurskel ehf. en afurðin skilar sér ekki að fullu strax. Ef ég man rétt, er "uppskeran"einhver ár í ræktun og einnig þarf að þróa markaðssetningu og fl.
![]() |
Norðurskel gjaldþrota |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 10.2.2011 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það þarf örugglega ekki að brýna fyrir Guðmundi og lærisveinum hans, að EKKERT hefur unnist ennþá..... en héðan af, verða "bara" undanúrslit, vonbrigði. Nú er það úrslitaleikurinn og ekkert annað.
Það sem mér fannst aðdáunarverðast við þennan leik við Japani, var fyrst og fremst þrennt:
- Vinna "greiningarteymis" landsliðsins, á leik andstæðingsins.
- Framkvæmd liðsins á verkefni sínu í leiknum, í framhaldi af greiningunni.
- Og að lokum það, að Guðmundir eða leikmenn hans, minntust ekkert á hina hörmulegu dómgæslu í leiknum. Þess vegna ætla ég ekki að gera það heldur.
Liðið spilaði frábærlega sem heild. Vörnin var einstaklega hreyfanleg og góð og sóknin árangursrík. Allir á leikskýrslu, 16 að tölu utan markvarðanna skoruðu, nema að ég held Róbert Gunnarsson, en hann var hvíldur nánast allan leikinn. Það var mjög klókt af Guðmundi að hvíla Róbert, því mikið mun á honum mæða í milliriðlinum. Hann er klárlega fyrsti kostur á línunni, með frábært grip, góða nýtingu og öflugar blokkeringar. Sömuleiðis var léttir að krafta Ólafs Stefánssonar þurfti ekki við. Þetta er allt að spilast okkur í vil.
Guðjón Valur fór fremstur í flokki afar einbeittra, fljótra og baráttuglaðra leikmanna íslenska liðsins. Þórir Ólafsson, stóð honum ekki langt að baki, ásamt markvörðunum báðum. Sérlega ánægjulegt að sjá Hreiðar "Heavy",koma sterkan inn.
Arnór Atlason þarf ekkert að örvænta, þótt honum hafi ekki tekist að hitta "á fjölina sína" í mótinu til þessa. Við eigum hann bara inni, við vitum hvað hann getur. Vörn af því tagi sem Japanir spiluðu, hentar engan veginn leikmanni eins og Aroni Pálmasyni. Það er líka allt í lagi.... við eigum aðra leikmenn sem geta leyst stöðuna, s.s. Guðjón Val og Snorra Stein.
Og þótt Arnóri hafi ekki tekist að skora nema eitt mark í nokkrum skottilraunum í leiknum, þá gekk spilið ágætlega í gegnum hann, sem vinstri skyttu. Nýliðarnir stóðu sig vel, en voru óheppnir með skot sín í nokkrum dauðafærum. Það jákvæða við frammistöðu þeirra, var að þeir sköpuðu sér góð færi. Örlítið meiri reynsla og þá kemur sjálfsöryggið til að klára dæmið.
Það eru bjartir tímar hjá íslenska landsliðinu í handbolta.
Ég verð að hrósa umsjónarmanni HM á Stöð 2, Þorsteini Joð, fyrir afar áhugaverða umfjöllun um leiki heimsmeistaramótsins. Hann hefur valið skemmtilega og fróða einstaklinga, til að fjalla um þjóðaríþrótt mörlandans. Lofa skal það sem vel er gert. Myndefni sem þessir aðilar hafa valið, til þess að útskýra leik íslenska liðsins, er með því besta sem ég hef séð í sjónvarpi... og hef ég þó fylgst með þessu í 40 ár.
![]() |
Stórsigur á Japan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 18.1.2011 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
"Áskorun nær 50.000 Íslendinga um endurheimt orkuauðlindanna".
Eru virkilega til svona margt fólk á Íslandi sem lætur auðkýfinginn Björk Guðmundsdóttur teyma sig á asnaeyrunum? Stjórnarskráin segir nú þegar að orkuauðlindirnar skuli vera í eigu þjóðarinnar!
Hins vegar eru efasemdir fólks um lengd orkunýtingarsamnings eins og gerður var við Magma Energy, fullkomlega eðlilegar. Hvort ákvæði um einstök atriði í samningum ríkisins eigi erindi í stjórnarskrá, hef ég miklar efasemdir um. Eðlilegra er að sett séu lög um slíka samninga af Alþingi og ef þurfa þykir, þjóðaratkvæðagreiðslu, ef áhöld eru um vilja almennings um slíka samninga.
![]() |
Keðjusöngur við stjórnarráðshúsið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 16.1.2011 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (34)
Ég fór á Eskifjörð frá Reyðarfirði rétt upp úr kl. 18 í dag. Þetta átti að verða skot túr en ég var að koma inn úr dyrunum heima, þrem klukkutímum síðar. Að jafnaði er maður tæpan hálftíma að keyra þessa leið, fram og til baka.
Ekki er ófærðinni fyrir að fara, heldur er skyggnið nánast ekkert, 10 stiga frost og vindur 20-30 m. á sekúndu. Það er þó er farið að draga svolítið í skafla, innanbæjar á Eskifirði. Eina leiðin til að komast þokkalega öruggur áfram, er að vera í fyrsta gír og horfa á vegkantinn út um hliðarrúðuna. Það dugar þó ekki til á löngum köflum og þá er ekkert annað en að gera en að stoppa.
Asskoti var ég feginn þegar ég komst loksins heim.
![]() |
Vitlaust veður fyrir austan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 6.1.2011 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Ég sagði í bloggpistli fyrir nokkrum dögum að Gylfi og Lexi væru líklegir, og það kom á daginn.
Alexander er mjög vel að titlinum kominn, eftir mörg góð ár með landsliðinu. Hann gefur sig 100% fyrir handboltalandsliðið, og rúmlega það og virðist alltaf tilbúinn, bæði andlega og líkamlega. Hann spilaði kjálkabrotinn næstum heilan leik á evrópumótinu í Sviss 2006, en það virtist ekki skipta hann nokkru máli. Alexander er aðdáunarverður Íþróttamaður.
Ég held ég muni það rétt, að Lexi er fyrsti maðurinn sem ekki er infæddur mörlandi og hlýtur þennan titil. En hann hefur sýnt að meiri Íslendingur er ekki hægt að vera og raunar mættu margir innfæddir taka hann sér til fyrirmyndar.
Til hamingju, Lexi!
![]() |
Alexander íþróttamaður ársins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 5.1.2011 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Myndi það drepa þig, ef þú hægðir aðeins á þér?
Fínt slagorð, ekki satt?
Aldrei hafa orðið jafn fá banaslys í umferðinni á Íslandi og árið 2010, ef miðað er við fjölda bíla í umferðinni. Þegar síðast sást svona lág tala, var árið 1968!
Punktakerfið fyrir byrjendur í umferðinni er þar lykilatriði að mínu mati. Fyrirhugað er að hækka bílprófsaldur í 18 ár, en afar skiptar skoðanir eru um að það skili árangri, einnig meðal fagaðila í umferðarmálum. Sömuleiðis er talað um akstursbann 17-18 ára á nóttunni um helgar, nema í fylgd með fullorðnum. Einnig eru uppi hugmyndir um að akstursleyfi ungra ökumanna sé bundið við tiltekinn hestaflafjölda.
Ég held reyndar að sumar þessara hugmynda séu óraunhæfar. Er ekki rétt að kenna fólki að umgangast hlutina freka en að banna þá?
![]() |
Færri látast í umferðarslysum á Spáni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 3.1.2011 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 23
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 22
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Maður ætti að halda uppá upphaflegu heiðnu hátíðirnar og finna þær
- Breytt umræða í útlendingamálum
- Sögulegir tímar, söguleg stef: Höfum við ekkert lært?
- Almennur fyrningarfrestur kröfuréttinda er fjögur ár
- Alvarlegar aukaverkanir 5,3% ungbarna í klínískri rannsókn MenQuadfi við meningókokkum
- Þvert á aðrar reglur
- Herratíska : BRUNELLO CUCINELLI um hásumar
- SÍÐAN HVENÆR FÓRU BANKARNIR AÐ "STYRKJA" ALMENNING???????
- Fátt um svör
- "fínasta veður"?