Færsluflokkur: Bloggar
9 ára drengur villtist í skógi í Heiðmörk.
Ótal margar sögur eru til af fólki erlendis sem villst hefur í skógum og jafnvel aldrei fundist aftur. Ég man hins vegar ekki eftir að það hafi gerst á Íslandi að fólk hafi villst í skógi, fyrr en nú.
Ég hef villst í þoku á heiðum uppi tvisvar sinnum en reyndar í stutta stund í bæði skiptin. Það var mjög óþægileg tilfinning og ég get vel ímyndað mér að það sé ekki betra að villast í skógi og örugglega hræðilegt fyrir 9 ára barn.
Ég held að það muni aldrei gerast að fólk villist svo kyrfilega í skógi á Íslandi, að það finnist ekki aftur, en maður þarf ekki að villast lengi og verða meint af, ef maður er illa búinn til útivistar. Kannski það þurfi að fara að kenna börnum á Íslandi að umgangast skóga. Lífsleikni í námskrá grunnskóla kemur þar sterk inn.
![]() |
Þrjú börn villtust í jólaskóginum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 19.12.2011 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Stundum er sagt að "Stóri bróðir" (stjórnvöld) fylgist með öllu og öllum. "Stóri bróðir" er skilgreindur sem sjálfstæð og ill vera sem lýtur eigin lögmálum. Ég skil vel hugmyndina en mér finnst skilgreiningin bera keim af móðursýki. Málið er einfalt, meirihluti fólks vill einhverskonar eftirlit en þegar öll "eftirlitin" eru komin saman í eitt mengi, þá verður það ógeðfelt og jafnvel ógnvænlegt.
Bókmenntatímaritið Literary Review veitir verðlaun (skammarverðlaun) fyrir vondar kynlífslýsingar í bókmenntum og "beinir með þeim athygli að grófum, smekklausum og oft kæruleysislegum óþarfa kynlífslýsingum í nútíma skáldsögum."
"...kæruleysislegum óþarfa kynlífslýsingum í nútíma skáldsögum."!
Þetta er auðvitað óbein ritskoðun og eftirlit. Afskiptasemi, myndu jafnvel sumir segja, þar sem persónulegur rétttrúnaður dómara Literary Review er notaður sem þrýstiafl til að koma í veg fyrir skrif af þessu tagi.
![]() |
Misþyrmt með sápustykki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 8.12.2011 (breytt kl. 10:07) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
"..að teymi fagfólks muni fara um götur borgarinnar alla daga og sjá til þess að þeir, sem ekki eiga í örugg hús að venda, komist í skjól.."
Á þá haugur af félagsfræðingum að vera á vappi alla daga um götur borgarinnar og pikka upp ógæfufólk?
Mestu og bestu fagmennirnir eru þeir sem fengið hafa sína menntun á þessu sviði "af götunni", þ.e. fólk sem hefur reynt þetta líf á eigin skinni. Yfirumsjón þarf auðvitað að vera af einhverjum "fræðingnum" en fótgönguliðið verði skipað af fyrrum útigangsmönnum og alkóhólistum í bata og aðstoðarmenn þeirra verði svo dæmdir afbrotamenn sem taka út sína refsingu með samfélagsþjónustu.
.... og málið er dautt
![]() |
Bæta hag útigangsfólks |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 7.12.2011 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mér sýnist að upptök skjálftanna séu nákvæmlega þar sem fyrirhuguð Vaðlaheiðargöng eiga að vera.
It´s a sign!
![]() |
Ekki fleiri skjálftar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 3.12.2011 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Það hljóta allir að sjá að ómögulegt er að hafa gæsluvarðhaldsfanga á Litla Hrauni og þurfa í sífellu að transporta með þá til Reykjavíkur í fylgd lögreglumanna. Að byggja fangelsi eingöngu fyrir gæsluvarðhaldsfanga væri brjáluð hugmynd, sérstaklega þegar bráðvantar almennt fangarými og peningar eru af skornum skammti.
Þess vegna á að halda sig við upphaflegu hugmyndina. þ.e. að byggja þetta fangelsi með 56 rýmum á Hólmsheiði. Það útilokar alls ekki frekar uppbyggingu, stækkun og nútímavæðingu fangelsisins á Litla Hrauni. Það er einnig brýnt verkefni en verður þó sennilega að bíða þar til ástandið skánar í efnahagsmálum landsins.
En það gerist ekki að gagni fyrr en núverandi stjórnvöld hrökklast frá völdum.
![]() |
Nóg komið af töfum í fangelsismálum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 3.12.2011 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Einn þeirra sem gerir athugasemd við þessa frétt grænlenska útvarpsins, KNR spyr hvort ekki sé hægt að nýta smáfiskinn sem togararnir henda, í hundana.
Auðvitað tíðkast sama brjálæðið á Grænlandi eins og annars staðar. Smáfiskur sem slæðist með er verðminni á hvert kíló og því er honum hent svo kvótinn sé verðmeiri.
Er virkilega ekki hægt að breyta þessu og nýta þennan fisk, þannig að allir geti gengið sáttir frá borði.... í orðsins fyllstu merkingu?
![]() |
Hundarnir ýlfra af hungri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 28.11.2011 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Reykjadalur ofan Hveragerðis er skemmtileg gönguleið. Árið 1987 gekk ég til rjúpna á þessu svæði en enga sá ég rjúpuna. Töluvert frost en stilla og heiðríkja var þennan dag og snjór yfir öllu. Á svæðinu eru margir ylvolgar lækjarsprænur sem getur verið hentugt fyrir veiðimenn með krókloppna gikksfingur.
Ég gekk niður Reykjadalinn til Hveragerðis, í þungum þönkum og nokkuð hröðum skrefum eftir að hafa leitað af mér allan grun um að rjúpa væri á svæðinu. Skyndilega birtist mér alsnakinn karlmaður á miðjum aldri, flatmagandi í lítilli laug í einum læknum. Mér varð svo hverft við að ég hægði ekki einu sinni á mér, heldur strunsaði fram hjá manninum, en hafði þó rænu á að sýna lágmarks kurteisi og kastaði því á hann kveðju og sagði "góðan daginn", um leið og ég gekk hjá. Ég heyrði hann svara í sömu mynt, á bjagaðri ensku en ekki fyrr en ég var kominn vel fram hjá, svo mikið var felmtrið sem sló mig.
Það var ekki fyrr en dágóðri stund síðar og nokkur hundruðum metrum neðar að ég áttaði mig á hversu brosleg viðbrögð mín voru. Það hefði nú varla verið hættulegt að taka manninn tali og forvitnast aðeins um hann. Ég var jú vopnaður en hann nakinn og varnarlaus.
Björgunarsveitir hafa þrisvar sinnum á örfáum mánuðum þurft að sækja slasað göngufólk á þetta svæði og í eitt skiptið var þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð til. Ég held að eitthvað þurfi að skoða hvað sé til ráða. Þetta er fullmikið af því góða.
![]() |
Aðstoða fótbrotinn mann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 27.11.2011 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ég átti leið til Norðfjarðar í gær og hafði myndavélina meðferðis. Stækka má myndirnar ef smellt er þrisvar á þær.
Myndirnar eru allar teknar um kl. 14. Vattarnesið er fyrir framan Skrúðinn. Fjallið upp af Vattarnesi heitir Reyðarfjall , en fjörðurinn dregur nafn sitt af því. Ég held að ég fari rétt með að Reyðarfjall sé elsta örnefni á Íslandi. Af hafi úr Suð-austri líkist fjallið hval (reyður)
Það er athyglisvert að þegar maður gúgglar "Reyðarfjall", koma eingöngu síður á ensku og þýsku, a.m.k. fyrsta kastið. Eflaust er þarna eitthvað á íslensku, en hr. Google flíkar því ekki mikið.
Þessi mynd er tekin af sama stað og hin fyrri (frá Oddsskarði). Séð inn Reyðarfjörð, Eskifjörður í forgrunni. Reyðarfjörður (þorpið) nýtur ekki sólar frá 11. nóvember til 7. febrúar. Það er þó eilítið mismunandi eftir hvar í þorpinu er og getur þar munað 2-3 dögum.
Álverið er þarna fyrir miðri mynd en staðsetning þess er afar góð, 5 km. frá Reyðarfirði og 10 km. frá Eskifirði.
Ég tók þessa mynd "blindandi" á ferð út um hliðarrúðuna á 80 km. hraða. Ágætlega heppnuð mynd af vetrarbirtunni.
![]() |
Frost og hálka víðast á landinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 26.11.2011 (breytt kl. 15:43) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nupo vill flytja inn kínverska ferðamenn í stórum stíl á N-Austurhorn landsins.
Friðunarfíklunum í VG hryllir við þeirri tilhugsun að allt verði morandi af Kínverjum við Mývatn og nágrenni. Þeim finnst Kínverjar ekki passa inn í íslenska náttúru.
Of mikið stílbrot.
![]() |
Kinnhestur frá Ögmundi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 25.11.2011 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 23
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 22
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Velkominn sannleikur um bókun 35
- Pawel og eðli ESB
- Perlur sem finnast uppteknar frá 2003 eftir mig, um inngönguna í ESB, þar sem ljóðmælandinn er hlynntur henni
- Ísrael - Sæmdarheiti - Þjóðar og Lands
- ,,Að frægja land og þjóð ?
- Lokafærslan - 20250607
- Ert þú til í að lána ókunnugum VISA-kortið þitt?
- Bókun 35- framsal á dómsvaldi
- Útlendingastefna í vindinum
- MODEL í MYND