Kjörið verkefni fyrir samfélagsþjónustu afbrotamanna

"..að teymi fagfólks muni fara um götur borgarinnar alla daga og sjá til þess að þeir, sem ekki eiga í örugg hús að venda, komist í skjól.."

Á þá haugur af félagsfræðingum að vera á vappi alla daga um götur borgarinnar og pikka upp ógæfufólk? Errm 

Mestu og bestu fagmennirnir eru þeir sem fengið hafa sína menntun á þessu sviði "af götunni", þ.e. fólk sem hefur reynt þetta líf á eigin skinni. Yfirumsjón þarf auðvitað að vera af einhverjum "fræðingnum" en fótgönguliðið verði skipað af fyrrum útigangsmönnum og alkóhólistum í bata og aðstoðarmenn þeirra verði svo dæmdir afbrotamenn sem taka út sína refsingu með samfélagsþjónustu.

.... og málið er dautt Cool


mbl.is Bæta hag útigangsfólks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Löggan veit vel hverjir eru á götunni og hvar þeir halda sig. Þessir ræflar geta ekki séð um sig sjálfir þegar það er frost viku eftir viku. Ég man hér í den að menn frusu undir árabátum og þótti ýmsu fólki þá að farið hefði fé betra. Núna viljum við ekki svona hugsunarhátt. Við verðum að sýna einhverja tilburði til að halda lífinu í rónunum okkar. Kannski er ekki vitlaust að afbrotamenn afpláni með aðstoð við þetta verkefni. Mér finnst að eitthvað þurfi að gera því þetta fólk er jú fólk ekki satt?

Halldóra Þórðardóttir (IP-tala skráð) 7.12.2011 kl. 18:38

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Takk fyrir þetta, Halldóra. Við erum öll manneskjur.

Gunnar Th. Gunnarsson, 7.12.2011 kl. 23:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband