Færsluflokkur: Bloggar

Vetrarmyndir frá Evrópu

Kuldi, kuldi, kuldi.... neyðarástand. Þetta er örugglega "global warming" að kenna.... eða ESB. Errm Myndin hér að neðan er af vefsíðu The Telegrapgh og fleiri slíkar má sjá hér

"Severe cold snap keeps Europe in its icy grip, bringing record low temperatures"

carnival-620_2129973i


mbl.is Víða neyðarástand á Ítalíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótímabært viðtal

Þetta var mögnuð frásögn hjá Eiríki en ég set þó spurningu við tímasetninguna, aðeins viku eftir harmleikinn. Mennirnir týndust í hafi og þó lík þeirra hefðu fundist, væri tæplega búið að jarðsetja þá.

Ég hef efasemdir um réttmæti þess að taka sjónvarpsviðtal við Eirík á þessum tímapunkti. Mér fannst hann bera þess merki að vera enn í áfalli og ættingjar hinna látnu eru í viðkvæmu sorgarferli.


mbl.is „Ég ætla ekki að gefast upp“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vangavelta sálfræðingsins er slæmt fordæmi

Smá hrekkir eru skemmtilegir, líka fyrir þolandann en "fræðingarnir" vilja voða-væða alla skapaða hluti. Skilaboð sálfræðingsins eru þau að þetta grín geti verið skelfileg upplifun fyrir börn og unglinga. Þegar búið er að troða því inn hjá þeim, sjá þau lífið í brengluðu ljósi og þeir sem veikir eru fyrir, verða enn veikari.

Sálfræðingurinn er að uppfæra saklaust grín í voðaverknað. Slæm skilaboð.

 


mbl.is Slæmt fordæmi fyrir þá yngri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gamalt blogg um þennan atburð

Ég bloggaði um þennan atburð sumarið 2007. Myndir fylgja færslunni, sjá hér
mbl.is 70 ár frá björgun breskra hermanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Drekasvæðið verður sett í salt

Ef Norðmenn hafa fundið mikið magn olíu í Barentshafi, þá geyma þeir sér Drekasvæðið til mögru áranna. Drekasvæðið verður "síðasti séns" fyrir Norðmenn, því mun dýrara, dýpra og erfiðara er að vinna olíu af hafsbotni þar en í Barentshafi, sem er afar grunnt og með sléttum sandbotni.

Ef Norðmenn bíða með Drekasvæðið eru miklar líkur á því að við verðum að gera það líka. Án þeirra verður þetta erfiðara fyrir okkur Íslendinga.


mbl.is Fundu mikið af olíu í Barentshafi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott að þeir hafi vinnu

Plöntuteljararnir geta sennileg þakkað hlýnandi lofslagi, að þeir hafi eitthvað við að vera. Guð blessi "Global warming". Joyful

tré


mbl.is Örar breytingar vegna hlýnunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Billboard, 15. mars, 1960

Samkvæmt Billboard, bandaríska vinsældalistanum, var "Theme from a summer place" með Percy Faith og hljómsveit hans, vinsælasta lagið daginn sem ég kom í þennan heim.

Á þessari síðu; http://www.joshhosler.biz/ geta lesendur fundið hvaða lag var vinsælast á fæðingardegi sínum.


Myndir frá Fáskrúðsfirði

Myndirnar stækka dálítið ef smellt er þrisvar á þær

012 (640x427)

3

4

5

6


Gleðilegt ár!

reyðarfjörður

Falleg mynd frá Pálínu Árnadóttur á Reyðarfirði, tekin 2010. Greina má svart strik fyrir miðri mynd, sem liggur inn í fjallið sunnan fjarðar, Fáskrúðsfjarðargöng.

Ég óska lesendum bloggsíðunnar gleðilegs árs og farsældar.


"Einkaaðilar í rúmlega níutíu útköll í nótt"

ÞESSI pistill er á sannleikurinn.com :

"Einkaaðilar og íþróttafélög sem selja flugelda á höfuðborgarsvæðinu hafa í alla nótt aðstoðað ökumenn þar sem færð er nú afleit. Í tilkynningu frá flugeldasölu KR segir að yfir 90 aðstoðarbeiðnir hafi borist og að í mörgum tilvikum hafi nokkrir bílar verið á bak við hverja tilkynningu.

Voru foreldrar barna og unglinga sem æfa hjá félaginu kölluð út til að sinna hjálparbeiðnum og koma bílum af stað aftur í sjálboðastarfi en íþróttafélögin neyðast til að nota ágóðan af flugeldasölunni til að borga knattspyrnumönnum í efstu deild karla laun.

Örn Árnason, leikari og skemmtikraftur, leiddi 50 einkaaðila í flugeldasölu í gegnum verkefni næturinnar og voru þeir enn að í morgun.
Einkaaðilar og íþróttafélög beina því til ökumanna á höfuðborgarsvæðinu að vera ekki á ferðinni á vanbúnum bílum því ágóði þeirra af flugeldasölunni dugir ekki til að svara kostnaði, þar sem björgunarsveitir landsins hirða stóran hluta flugeldasölunnar."

Hehe... helvíti góðir LoL

Hugsandi fólk verslar við björgunarsveitirnar! Wizard


mbl.is „Fólk kann að meta okkar framlag“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband