Þriðja sinn á örfáum mánuðum

Reykjadalur ofan Hveragerðis er skemmtileg gönguleið. Árið 1987 gekk ég til rjúpna á þessu svæði en enga sá ég rjúpuna. Töluvert frost en stilla og heiðríkja var þennan dag og snjór yfir öllu. Á svæðinu eru margir ylvolgar lækjarsprænur sem getur verið hentugt fyrir veiðimenn með krókloppna gikksfingur.

Ég gekk niður Reykjadalinn til Hveragerðis, í þungum þönkum og nokkuð hröðum skrefum eftir að hafa leitað af mér allan grun um að rjúpa væri á svæðinu. Skyndilega birtist mér alsnakinn karlmaður á miðjum aldri, flatmagandi í lítilli laug í einum læknum. Mér varð svo hverft við að ég hægði ekki einu sinni á mér, heldur strunsaði fram hjá manninum, en hafði þó rænu á að sýna lágmarks kurteisi og kastaði því á hann kveðju og sagði "góðan daginn", um leið og ég gekk hjá. Ég heyrði hann svara í sömu mynt, á bjagaðri ensku en ekki fyrr en ég var kominn vel fram hjá, svo mikið var felmtrið sem sló mig.

Það var ekki fyrr en dágóðri stund síðar og nokkur hundruðum metrum neðar að ég áttaði mig á hversu brosleg viðbrögð mín voru. Það hefði nú varla verið hættulegt að taka manninn tali og forvitnast aðeins um hann. Ég var jú vopnaður en hann nakinn og varnarlaus. Joyful

reykjadalurkort

Björgunarsveitir hafa þrisvar sinnum á örfáum mánuðum þurft að sækja slasað göngufólk á þetta svæði og í eitt skiptið var þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð til. Ég held að eitthvað þurfi að skoða hvað sé til ráða. FootinMouth Þetta er fullmikið af því góða.


mbl.is Aðstoða fótbrotinn mann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Áfram með frumskógarlögmálið (bara fyrir erlenda ferðamenn).

Jonsi.

Jonsi (IP-tala skráð) 27.11.2011 kl. 19:31

2 identicon

Í þetta skiptið var nú kauði bara að hendast niður hlíðar á snjóbretti, þrátt fyrir að fólk í hópnum reyndi að vara hann við þeirri hættu enda mikið um stórgrýti, lækum og þess lags (auk þess liggur snjórinn á sumum stöðum yfir hluta af lækjum of fela þannig þá hættu).

Vanmat aðstæður og náttúru.

En björgunarsveitarfólkð talaði þó einmitt um að hafa þurft að fara oft á þessar slóðir. Þetta eru fagmenn með meiru allt fram í fingurgómana.

Arnar Björnsson (IP-tala skráð) 27.11.2011 kl. 21:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband