Ritskoðun og eftirlitsiðnaður

sápaStundum er sagt að "Stóri bróðir" (stjórnvöld) fylgist með öllu og öllum. "Stóri bróðir" er skilgreindur sem sjálfstæð og ill vera sem lýtur eigin lögmálum. Ég skil vel hugmyndina en mér finnst skilgreiningin bera keim af móðursýki. Málið er einfalt, meirihluti fólks vill einhverskonar eftirlit en þegar öll "eftirlitin" eru komin saman í eitt mengi, þá verður það ógeðfelt og jafnvel ógnvænlegt.

 

Bókmenntatímaritið Literary Review veitir verðlaun (skammarverðlaun) fyrir vondar kynlífslýsingar í bókmenntum og "beinir með þeim athygli að grófum, smekklausum og oft kæruleysislegum óþarfa kynlífslýsingum í nútíma skáldsögum."

 "...kæruleysislegum óþarfa kynlífslýsingum í nútíma skáldsögum."! Errm

Þetta er auðvitað óbein ritskoðun og eftirlit. Afskiptasemi, myndu jafnvel sumir segja, þar sem persónulegur rétttrúnaður dómara Literary Review er notaður sem þrýstiafl til að koma í veg fyrir skrif af þessu tagi.


mbl.is Misþyrmt með sápustykki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband