Smáfiski hent og hundarnnir svelta

Einn þeirra sem gerir athugasemd við þessa frétt grænlenska útvarpsins, KNR spyr hvort ekki sé hægt að nýta smáfiskinn sem togararnir henda, í hundana.

Auðvitað tíðkast sama brjálæðið á Grænlandi eins og annars staðar. Smáfiskur sem slæðist með er verðminni á hvert kíló og því er honum hent svo kvótinn sé verðmeiri.

Er virkilega ekki hægt að breyta þessu og nýta þennan fisk, þannig að allir geti gengið sáttir frá borði.... í orðsins fyllstu merkingu? FootinMouth


mbl.is Hundarnir ýlfra af hungri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aðalsteinn Agnarsson

Hér ýlfrar þjóðinn út af atvinnuleysi, enginn þingmaður

kemur með frumvarp, að leyfa frjálsar handfæraveiðar sem leysa

mannréttinda, byggða, fátæktar og atvinnuvanda Íslendinga.

Afléttum oki banka og líú, mörghundruðþúsund tonn vantar upp á,

að fiskimiðin skili þjóðinni þeim fiskafla sem eðlilegt er.

Aðalsteinn Agnarsson, 28.11.2011 kl. 16:40

2 identicon

En þetta að hafa kvótakerfi á frumbyggja er út í hött og ekkert nema yfirgangur, en hitt er annað mál, að með breyttum aðstæðum koma önnur veiðarfæri, en það tekur tíma að þróast. En það er rétt hjá Aðalsteini, að það er hart að þurfa að horfa upp á hundruð þúsindir tonna af nytjafisk drepast úr elli við strendur landsins, vegna heimsku landanns. En hver er sinnar gæfu smiður, bara að kjósa rétt í næstu kosningum.

V.Jóhannsson (IP-tala skráð) 29.11.2011 kl. 12:00

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Og hvaða stjórnmálaflokkur vill afnema kvótakerfið? Tilfærsla og pólitísk handstýring á nytjarétti kemur ekki í veg fyrir þetta.

Gunnar Th. Gunnarsson, 29.11.2011 kl. 13:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband