Færsluflokkur: Bloggar
Veraldleg verk mannanna, eins og byggingar, hafa ekkert með trú að gera.
"Guð býr í garðslöngunni, amma"segir í texta Megasar í lagi frá árinu 1972. Guð býr allsstaðar og hvergi, eins og sumstaðar endranær.
Miðaldakirkjan er menningartengd tilraun til að gera söguna athyglisverða fyrir almenning, innlenda sem erlenda. Einkaaðilar hafa sýnt því áhuga að kosta þetta verkefni að stórum hluta. Þetta er fjárfesting sem mun skila sér til baka, svo ekki verður hægt að segja að það sé sóun á fé að leggja fjármagn í verkefnið.
Hún er undarleg sú árátta sumra, að segja öðrum hvað sé viturleg fjárfesting og hvað ekki. Stórundarleg, verð ég að segja.
![]() |
Guð ekki í nýrri miðaldakirkju |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 20.11.2011 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mig minnir að í einhverjum fréttamiðlinum hafi komið fram að Amal Tamimi væri fyrsti innflytjandinn til að setjast á Alþingi Íslendinga, en það er ekki rétt. Paul Nikolov, fyrrv. ritstjóri áróðurssnepils Vinstri grænna, The Reykjavík Grapevine , varð fyrstur til þess.
Ný skoðanakönnun hér til hægri, endilega takið þátt.
![]() |
Ræðir við Ögmund um innflytjendamál |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 15.11.2011 (breytt kl. 10:21) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Óvenjuleg hlýindi hafa verið á Austurlandi undanfarnar vikur. Í litlu garðholunni við heimili mitt hafa sumarblómin gengið í endurnýjun lífdaga.
Nýblómstruð morgunfrú, 13. nóvember
Skrautnálin, vinstra megin er enn að bæta við sig. Hægra megin eru nýsprottin laufblöð sumarblómategundar sem ég man ekki hvað heitir. (Garðyrkjufræðingurinn sjálfur )
Sólin hefur kvatt Reyðarfjörð þetta árið. Þessi mynd er tekin í hádegisstað, rétt fyrir klukkan eitt. Hádegisfjall er hægra megin á myndinni.
Sólin mun aftur gægjast yfir fjallsbrúnina 8. febrúar á næsta ári.
![]() |
Vegir eru víðast hvar auðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 13.11.2011 (breytt kl. 13:08) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég fæ eiginlega bara gæsahúð og fyllist þjóðarstolti, þegar ég hugsa til þessa frábæra fólks sem er í björgunarsveitum landsins.
Ég hvet alla til að kaupa "Neyðarkallinn" af björgunarsveitunum.
![]() |
Eitt stærsta verkefni síðari ára |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 12.11.2011 (breytt kl. 23:18) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um miðjan dag í dag, þann 11.11.11, var búið að stífla Fagradal með þessum myndarlega skýjabakka. Þess skal getið að þetta er ekki manngerð stífla.
Myndirnar stækka ef smellt er tvisvar á þær.
Bloggar | 11.11.2011 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Er það ekki stórhættulegt að leyfa útlendingum að byggja hótel á Íslandi?
Æ... nei, þetta er víst í Reykjavík, það er í lagi. Það er víst landsbyggðin sem þarf að vernda fyrir útlendingum.
![]() |
Telja hótel handan við hornið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 10.11.2011 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hvaða máli skiptir það hvort kaupandi Grímsstaða sé kínverskur? Ef kaupandinn er þýskur, franskur eða ítalskur, þá þyrfti hann engin sérstök leyfi frá Ögmundi.
Ögmundur er hræddur um að kínverjinn byggi loftkastala. Ef kapitalisti telur sig geta grætt á því að byggja loftkastala, þá gerir hann það. Þeir sem eiga ekki þá peninga sem fara í þann byggingakostnað, þurfa varla að hafa áhyggjur af því.
Stundum er sagt að það sé sama hvaðan gott komi en sumir virðast logandi hræddir ef það kemur frá Kína. Ég fæ ómögulega skilið hvers vegna. En ef þetta góða kemur frá einhverju Evrópusambandslandi, þá er allt í gúddí.
Ég botna ekkert í þessu.
![]() |
Hættulegt að lokast frá umheiminum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 9.11.2011 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Elísabet Jökulsdóttir að spara sig fyrir kynlíf helgarinnar.
I can´t get the picture out of my head!
![]() |
Sparar kynlífið fyrir helgina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 6.11.2011 (breytt kl. 17:01) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Mér finnst það merkilegt að leyfa fólki að tjalda á Austurvelli. Hver er ábyrgur ef eitthvað gerist... einhver skaðast?
Hvað ef drukkinn bílstjóri keyrir yfir tjöldin? Þarna er engin lögbundin aðstaða, snyrting eða annað. Er verið að skapa fordæmi?
Kannski er þetta bara allt í lagi.... hef þó efasemdir
![]() |
Nýjar tjaldbúðir að rísa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 5.11.2011 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Sóley Tómasdóttir hefur sennilega orðið bálreið að lesa um það í viðtengdri frétt að í veröldinni allri, er jafnréttið mest á Íslandi.
Í málgagni Vinstri grænna, vefritinu Smugunni, ritar Sóley reglulega pistla sína. Nýlega reit hún einn undir yfirskriftinni "Nýsköpunarþing karla" , en svo uppnefnir hún Nýsköpunarþing sem haldið var fyrir skömmu en að því stóðu Rannís, Íslandsstofa, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Nýsköpunarsjóður.
Og hvað skyldi hún hafa gagnrýnt við nýsköpunarþingið? Ekki orð um þingið sjálft, heldur að meðal fyrirlesara var engin kona og á boðskortinu sem hún fékk, var ljóð eftir karlmann (Þórarinn Eldjárn). Svo nefnir hún að fundarstjóri var kona og lætur fylgja með eftirfarandi:
"Þetta minnir mig á sögu sem ég heyrði af undirbúningi á blaðamannafundi stjórnmálaflokks (ekki Vinstri grænna) fyrir ekkert svo löngu síðan. Formaðurinn lagði línurnar um efni og uppröðun og bætti svo við undir lokin: Mundu svo að hafa konu og hafa blóm."
Í lok pistils síns segir Sóley:
"Hið veglega boðskort, sem skreytt var með ljóði Þórarins Eldjárns um mikilvægi þess að yrkja og virkja, hefði betur verið skreytt með þessu ljóði eftir Ingibjörgu Haraldsdóttur:"
Þegar allt hefur verið sagt
þegar vandamál heimsins eru
vegin metin og útkljáð
þegar augu hafa mæst
og hendur verið þrýstar
í alvöru augnabliksins
-kemur alltaf einhver kona
að taka af borðinu
sópa gólfið og opna gluggana
til að hleypa vindlareyknum út.
Ég fékk hugmyndina að fyrirsögninni úr þessu ljóði.
![]() |
Mest jafnrétti á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 2.11.2011 (breytt kl. 00:39) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 23
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 22
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Imane Khelif boxari er karlmaður- hverjum datt það í hug!
- Hversvegna er ekki hægt að treysta áróðurfréttaflutningi frá Gaza ?
- Í tilefni af HVÍTASUNNUDEGINUM sem að er í dag: Gæti HEILAGUR ANDI birst fólki í nútímanum með einhverjum hætti?
- Gervigreindur guð á Hvítasunnu
- Velkominn sannleikur um bókun 35
- Pawel og eðli ESB
- Perlur sem finnast uppteknar frá 2003 eftir mig, um inngönguna í ESB, þar sem ljóðmælandinn er hlynntur henni
- Ísrael - Sæmdarheiti - Þjóðar og Lands
- ,,Að frægja land og þjóð ?
- Lokafærslan - 20250607