Í myndbandinu er talið niður frá 20 og mark númer 14 (eftir 1, 32 min) sem Ungverji skorar er kolólöglegt því hann tekur heil 5 skref áður en hann skýtur á markið. Að mínu mati á það mark ekki erindi sem eitt af fallegustu mörkum mótsins.
Það vekur athygli mína hversu fá mörk á þessum lista eru hefðbundin langskot með uppstökki. Mest er þetta horna og línumörk sem vissulega eru glæsileg. Gegnumbrotsmarkið hjá Balic er magnað. Skottæknin er ótrúleg.
![]() |
EM: 20 fallegustu mörkin (myndband) |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | 3.2.2012 (breytt kl. 13:37) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þetta var mögnuð frásögn hjá Eiríki en ég set þó spurningu við tímasetninguna, aðeins viku eftir harmleikinn. Mennirnir týndust í hafi og þó lík þeirra hefðu fundist, væri tæplega búið að jarðsetja þá.
Ég hef efasemdir um réttmæti þess að taka sjónvarpsviðtal við Eirík á þessum tímapunkti. Mér fannst hann bera þess merki að vera enn í áfalli og ættingjar hinna látnu eru í viðkvæmu sorgarferli.
![]() |
Ég ætla ekki að gefast upp |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 1.2.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Smá hrekkir eru skemmtilegir, líka fyrir þolandann en "fræðingarnir" vilja voða-væða alla skapaða hluti. Skilaboð sálfræðingsins eru þau að þetta grín geti verið skelfileg upplifun fyrir börn og unglinga. Þegar búið er að troða því inn hjá þeim, sjá þau lífið í brengluðu ljósi og þeir sem veikir eru fyrir, verða enn veikari.
Sálfræðingurinn er að uppfæra saklaust grín í voðaverknað. Slæm skilaboð.
![]() |
Slæmt fordæmi fyrir þá yngri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 1.2.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Það er skiljanlegt að Ögmundur biðjist afsökunar á ummælum sínum. Stofnanaveldið reis upp og gargaði á hann. Silkihúfurnar móðguðust og afsökunarbeiðnin er diplómatísk.
En það breytir því ekki að sannleikskorn var í ádrepu Ögmundar.
![]() |
Ögmundur biðst afsökunar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 31.1.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Leo Gillespie mun vera nokkuð þekkt söngvaskáld, (götu-trúbador) bandarískur að uppruna en hefur ferðast um heiminn frá því um 1970. Sagt er að hann hafi hafnað heimsfrægð og ríkidæmi sem honum stóð til boða í upphafi ferils síns. Hann vildi ekki fjarlægjast uppruna sinn og raunverulega köllun sem er nálægðin við áheyrendur sína.
KK og Gillespie eru miklir vinir og hafa verið að túra um Austurland að undanförnu. Þeir voru á Kaffi Kósý á Reyðarfirði á föstudagskvöldið og í Herðubreið á Seyðisfirði á laugardagskvöldið.
Ég kíkti inn á pöbbinn á Reyðarfirði og tók upp eitt lag á myndavélina mína. Myndgæðin eru slök í rökkrinu en mér finnst hin notalega stemning skila sér ágætlega. Lagið heitir Devil inside.
Gestir voru ekki mjög margir en Reyðfirðingurinn Viðar Júlí lét sig ekki vanta og hlustar hér andaktugur á KK og Gillespie. Viðar er faðir hins þekkta útvarps og sjónvarpsmanns, Andra Freys Viðarssonar.
Tónlist | 29.1.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Jóhann Hauksson hefur sótt um nánast allar stöður á vegum hins opinbera frá því hann hætti með fússi á RUV, af því hann fékk ekki yfirmannsstöðu. Nú loksins fær hann starf, en það var auðvitað ekki auglýst og þurfti hann því ekki að fara í gegnum umsóknarferli og nálarauga óháðra aðila.
VG- maðurinn Jóhann Hauksson fær nú starf hjá Samfylkingarformanninum. Eru þessi hrossakaup til þess gerð að styrkja stjórnarsamstarfið?
Viðbót: VG er að hreiðra um sig á RUV... og það með ólöglegum hætti, Í Viðskiptablaðinu má lesa eftirfarandi m.a. um kjör Björgu Evu Erlendsóttur í stjórn Ríkisútvarpsins ohf. undir fyrirsögninni: "Einn stærsti eigandi vefrits VG tekur sæti í stjórn RÚV"
"Athygli vekur að í 8. grein laga um Ríkisútvarpið, þar sem fjallað er um stjórn félagsins, kemur fram að stjórnarmönnum skuli ekki hafa nokkurra hagsmuna að gæta í öðrum fjölmiðlafyrirtækjum eða fjölmiðlatengdum fyrirtækjum.
Orðrétt segir: ...Stjórnarmenn skulu í störfum sínum eingöngu hafa að leiðarljósi hagsmuni Ríkisútvarpsins ohf., fyrst og fremst skyldur þess til útvarps í almannaþágu. Þeir mega ekki, hvorki beint né óbeint, inna af hendi nokkurt starf, taka við greiðslu eða hafa nokkurra hagsmuna að gæta í öðrum fjölmiðlafyrirtækjum eða fjölmiðlatengdum fyrirtækjum sem leitt geta til árekstra við hagsmuni Ríkisútvarpsins ohf. (Feitletrun mín)
Samkvæmt hluthafalista Smugunnar, vefriti Vinstri grænnda, er Björg Eva þó hluthafi í félaginu en hún á þar tæplega 5% hlut. Sambýliskona Bjargar Evru, Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, er jafnframt ritstjóri Smugunnar.
Vinstri hreyfingin grænt framboð er stærsti einstaki hluthafi Smugunnar, með rúmlega 40% hlut, en þá á Lilja Skaftadóttir, listverkasali, tæplega 24% hlut. Lilja er jafnframt einn stærsti eigandi DV. Steingrímur J. Sigfússon er þriðji stærsti eigandi Smugunnar með tæplega 4,8% hlut en Björg Eva er fjórði stærsti eigandi félagsins."
Nýtt Ísland... ?
![]() |
Nýr upplýsingafulltrúi stjórnarinnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 26.1.2012 (breytt kl. 22:50) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)


![]() |
Fleiri fara í hvalaskoðun í vetur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umhverfismál | 25.1.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Þorrablót Reyðfirðinga var haldið í 91. sinn á bóndadaginn, 20. janúar. Við hjónin nutum þess heiðurs að vera formenn nefndarinnar þetta árið, en ný nefnd er kosin árlega af fráfarandi nefnd.
Fjölgað var í nefndinni í fyrra, úr 14 manns í 20 og veitir ekki af, því vinna við undirbúning blótsins jókst mikið við hina miklu íbúafjölgun í þorpinu, eftir að álver Alcoa Fjarðaáls hóf starfsemi sína. Blótið var flutt úr Félagslundi, félagsheimili staðarins sem hafði hýst blótið í um 60 ár, í íþróttahúsið. Sú breyting kostar að setja þarf upp svið, ljósabúnað, hljóðkerfi, dansgólf og teppi, borð og stóla ásamt ýmsu fleiru, á hverju ári og setja svo allt í fyrra horf strax daginn eftir.
Þetta er gríðarleg vinna og einhver úr nefndinni reiknaði að gamni sínu út að miðaverðið hefði þurft að vera um 30 þúsund krónur, ef borga hefði átt laun fyrir vinnuframlag nefndarinnar sem var um 2.500 vinnustundir síðustu tvær vikur fyrir blót, en þá hafði þegar farið fram töluverð forvinna, m.a. við gerð grín-annálsins um þorpsbúana. (Stækka má myndirnar með því að smella þrisvar á þær)
Baksviðs, báðu megin, hafði nefdin aðstöðu fyrir sig og leikmunina í annálnum.
Jói Deddi veltir vöngum yfir hvernig koma megi gestum sem haganlegast fyrir í salnum, en uppselt var á blótið og aðsóknarmetið var slegið hressilega. Rúmlega 380 manns sátu blótið í ár en gamla metið var ríflega 330 manns, sett árið 2008. Mest varð aðsóknin í Félagslundi um 270 manns, en það var í raun alls ekki boðlegt vegna þrengsla. Hæfilegur fjöldi í því ágæta húsi var ekki nema um 230.
Þarna er salurinn að verða nokkurnveginn klár, nokkrum klukkustundum áður en blótið hófst. Síldarnót er hengd í loftið til skrauts.
Trogin komin á borðin og Vallý tékkar hvort allt sé ekki örugglega í orden.
Rétt fyrir opnun hússins, kl. 19.30. Hákarl og brennivín fyrir gesti um leið og þeir ganga inn.
Fyrsti bakkinn tilbúinn. Sunna og Óskar glaðbeitt og full af tilhlökkun.
Bjarni bíður eftir fyrsta gestinum.
Menning og listir | 25.1.2012 (breytt kl. 13:29) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Spaugilegt | 23.1.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
![]() |
70 ár frá björgun breskra hermanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 22.1.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.6.): 5
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 26
- Frá upphafi: 947103
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 22
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Allar fréttir neikvæðar, tilviljun eða áróður?
- Versta sem gæti gerzt
- Hæsta umframdánartíðni í Evrópu þrjú ár samfellt
- Hafró neitar að nota gögn frá fiskiskipum
- Árásgrein Vísis á forvígismann Ísland - þvert á flokka
- -afmáðnáð-
- Landráð?
- Verðir stjórnarskráarinnar!
- Merkileg AI samantekt um WEF...
- Herratíska : SAINT LAURENT með haustinu 2025