Dettur einhverjum í hug að þeim sem eru á móti háspennumöstrum, verði sáttir ef gerðar eru fígúrur úr þeim? Ég held að annað hvort eru menn ósáttir við mannanna verksummerki í umhverfinu, eða ekki.
Þessi mynd heitir "When electric poles fight". Spurning um að nota staurana einnig til að nýta vindorkuna?
.... eða bara að leifa þeim að vera úti að leika sér. Þeir eru ekki fyrir á meðan
![]() |
Sjónmengun ekki bara smekksatriði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umhverfismál | 14.2.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Andrea Jónsdóttir var í viðtali á Rás2 áðan og umræðuefnið var m.a. samanburður á Whitney Houston og Celine Dion.
Það er alltaf erfitt að bera saman tvo topp listamenn og segja að annar sé betri en hinn. Þetta er smekkur hvers og eins. Andrea taldi Whitney vera betri af því Celine væri svo "lærð". Það væri meiri sál í Whitney.
Að mínu mati eru þetta tvær bestu söngkonur sögunnar en Celine hefur samt vinninginn hjá mér, einfaldlega vegna þess að ég fæ oftar gæsahúð þegar ég hlusta á hana.
Skemmtilegt myndband hér að neðan
![]() |
Var Whitney Houston ólétt þegar hún lést? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tónlist | 13.2.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Spaugilegt | 11.2.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Í Kastljósviðtali Helga Seljan, lagði Ögmundur áherslu á að hendur hans hefðu verið bundnar af lögum um fjárfestingar lífeyrissjóða og að þau lög byggðust á braski. Hann sagðist hafa gert athugasemdir við lagasetninguna og gaf þar með í skyn að hann hefði greitt atkvæði sitt gegn lagafumvarpinu, sem hann gerði ekki.
Lífeyrissjóðunum var gert að leita hámarksávöxtunar "og það var einn maður sem andmælti þessu og hann situr hér", sagði Ögmundur. Fréttastofa RUV sýndi fram á að Ögmundur greiddi atkvæði sitt MEÐ frumvarpinu.
Í viðtalinu kom í ljós að hann sat aldrei fjárfestingarnefndarfundi sem formaður í stjórn lífeyrissjóðsins, heldur skipaði hann´og stjórn lífeyrissjóðsins sérstakan fjárfestingarhóp. Sá hópur kom með fullmótaðar tillögur um fjárfestingar sem Ögmundur skrifaði alltaf gagnrýnislaust undir.
Svo þegar Hlelgi spyr hann hvort honum finnist hann þurfa að biðja sjóðsfélaga afsökunar á fjárfestingum sjóðsins, þá svarar Ögmundur: "Nei".
Viðtalið má sjá hér að neðan.
![]() |
Ögmundur gagnrýnir Sjónvarpið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjármál | 10.2.2012 (breytt kl. 16:50) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þegar reglulegar hitamælingar hófust á jörðinn í kringum 1850, var mjög kalt. Fyrir loftslags-alarmista er því sú tímasetning afskaplega hentugt viðmið til að fá sem mesta hlýnun.
Myndbandið "We live in cold times"er upplýsandi: http://vimeo.com/14366077
Umhverfismál | 9.2.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mér finnst svolítið seint í rassinn gripið hjá Páli Óskari, að tala um mannréttindabrot núna fyrst. Af hverju ekki strax í upphafi?
Hann talar um að verið sé að flæma fátæklinga burt úr einhverjum hreysum þar sem byggja á tónlistarhöll en minnist ekki á (a.m.k. ekki í sjónvarpsviðtali) að lögreglan í landinu beitir samkynhneigða harðræði.
Mest áberandi aðdáendur Eurovision eru hommar. Standa samtök samkynhneigðra í Evrópu fyrir andstöðu við keppnislandið í ár? Eru almenn mannréttindabrot í landinu yfirvarp en harðræði hommanna aðalatriðið?
Ef hommarnir hefðu yfir litlu að kvarta í landinu, væri þá Páll Óskar að vinna í því að koma í veg fyrir að íslenskir tónlistarmenn tækju þátt í keppninni í ár?
![]() |
Evróvisjón í skugga kúgunar? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mannréttindi | 8.2.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Spaugilegt | 8.2.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Allra hörðustu náttúruverndarsinnarnir raða sér í stjórnir þessara félaga og tala fyrir hönd fjöldans, allrar þjóðarinnar jafnvel, eins og þeir fullyrða. Þeir sem ekki eru jafnharðir og ósveigjanlegir í samtökunum, eru flæmdir burt.
Vinstrimenn í flokkapólitíkinni flaðra upp um náttúruverndarsamtök og reikna með atkvæðum úr þeirri áttinni. Áður fyrr spyrtu þeir sig við verkalýðssamtök en það virðist liðin tíð, enda sáu verkalýðssamtökin að forneskjulegar hugmyndir vinstrimanna um kapitalismann voru ekki að gera sig í raunheimum.
![]() |
Leggja til stofnun þjóðgarða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umhverfismál | 7.2.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Kuldi, kuldi, kuldi.... neyðarástand. Þetta er örugglega "global warming" að kenna.... eða ESB. Myndin hér að neðan er af vefsíðu The Telegrapgh og fleiri slíkar má sjá hér
"Severe cold snap keeps Europe in its icy grip, bringing record low temperatures"
![]() |
Víða neyðarástand á Ítalíu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 6.2.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þeir sem hafa vogað sér að efast um orsök og afleiðingu hlýnandi loftslags á jörðinni, eru gjarnan uppnefndir "afneitunarsinnar". Uppnefning af þessu tagi er grímulaus aðgerð til að þagga niður í þeim sem spyrja óþægilegra spurninga um loftslagsmál.
Í nýlegri grein sem birtist í The Wall Street Journal og 16 vísindamenn skrifa undir, er nokkuð hörð gagnrýni á hinn svokallaða "alarmisma", sem virðist hafa ráðið opinberri umræðu um loftslagsmál á undanförnum árum. Í greininni segir m.a. eftirfarandi:
"The lack of warming for more than a decadeindeed, the smaller-than-predicted warming over the 22 years since the U.N.'s Intergovernmental Panel on Climate Change (IPCC) began issuing projectionssuggests that computer models have greatly exaggerated how much warming additional CO2 can cause. Faced with this embarrassment, those promoting alarm have shifted their drumbeat from warming to weather extremes, to enable anything unusual that happens in our chaotic climate to be ascribed to CO2"
Hlýnunin virðist hafa stöðvast að mestu sl. áratug, þrátt fyrir aukið magn co2 í andrúmsloftinu en þá var breytt um áherslur: ... "shifted their drumbeat from warming to weather extremes"
"Alarmism over climate is of great benefit to many, providing government funding for academic research and a reason for government bureaucracies to grow. Alarmism also offers an excuse for governments to raise taxes, taxpayer-funded subsidies for businesses that understand how to work the political system, and a lure for big donations to charitable foundations promising to save the planet."
Greinina alla má lesa hér og neðst má sjá vísindamennina sem kvitta undir.
Ég hef skrifað nokkur blogg á undanförnum árum um akkúrat þetta og fengið bágt fyrir og m.a. verið kallaður "afneitunarsinni" og verið þar með settur á bekk með þeim sem afneita þróunarkenningu Darwins.
![]() |
Meira en 200 látnir vegna kulda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | 3.2.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.6.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 19
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Það hvernig Esus er guð fyrirgefningarinnar.
- Gengu í gildruna
- Milliliiðir asking chatGPT about the musician Prince
- Kominn tími á að slökkva á sjálfstýringu alþingismanna
- KANNSKI VERÐUR ÞETTA TIL ÞESS AÐ RÁÐHERRAR HUGSI SIG UM TVISVAR ÁÐUR EN ÞEIR BRJÓTA LÖGIN?????
- Úr kæru til ríkislögreglustjóra vegna landráðatilburða utanríkisráðherra
- Öld kerlingarinnar!!
- Allar fréttir neikvæðar tilviljun eða áróður?
- Valdhroki, yfirlæti og vanvirðing við alþingi einnkennir Jóhönnustjórnina 2
- Zionistar taka Júðismann af lífi -- föstudagurinn þrettándi