Hvað þýðir friðlýsing meginhluta Skerjafjarðar? Mig grunar að það þýði að fólk geti gleymt því að gerðar verði brýr til að tengja vegakerfið suður á bóginn.
Sumir vilja ólmir Reykjavíkurflugvöll burt úr Vatnsmýrinni og setja þar niður nokkur þúsund manna byggð og bæta þar með við þann umferðarvanda sem fyrir er og mun enn aukast með tilkomu "hátæknisjúkrahússins" við Hringbraut.
Svo vakna menn upp við vondan draum
![]() |
Tillaga að friðlýsingu Skerjafjarðar auglýst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umhverfismál | 14.1.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
... öfgafullum verndunarsinnum úr VG og fólki í samtökum sem vill einungis skoða fugla og vernda þá, eða fólki sem hefur beinna hagsmuna að gæta, að fuglastofnar séu sjálfbærir m.t.t. veiða og nýtingar?
Ég treysti fólkinu sem er í beinum tengslum við náttúruna og hefur áratuga reynslu í umgengni við hana. Þetta fólk mun verja fuglastofna sína með kjafti og klóm, án aðkomu eftirlitsmanna sem eru á framfæri skattborgaranna.
![]() |
Veiðibann eina siðlega viðbragðið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umhverfismál | 12.1.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Heyrst hefur að þegar Jóhönnu Sigurðardóttur var sagt að mikill fylgisflótti ætti sér stað dag hvern frá Samfylkingunni og að stuðningur við hana sjálfa sem formann flokksins færi einnig hraðminnkandi, þá hafi Jóhanna svarað:
"Þetta er ekkert til að hafa áhyggjur af... þetta er ekkert meira en í meðalári".
![]() |
Leggjast gegn landsfundi í vor |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | 11.1.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)

![]() |
Hafna áformum um sjúkrahúslokun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | 9.1.2012 (breytt kl. 13:47) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ef Norðmenn hafa fundið mikið magn olíu í Barentshafi, þá geyma þeir sér Drekasvæðið til mögru áranna. Drekasvæðið verður "síðasti séns" fyrir Norðmenn, því mun dýrara, dýpra og erfiðara er að vinna olíu af hafsbotni þar en í Barentshafi, sem er afar grunnt og með sléttum sandbotni.
Ef Norðmenn bíða með Drekasvæðið eru miklar líkur á því að við verðum að gera það líka. Án þeirra verður þetta erfiðara fyrir okkur Íslendinga.
![]() |
Fundu mikið af olíu í Barentshafi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 9.1.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Plöntuteljararnir geta sennileg þakkað hlýnandi lofslagi, að þeir hafi eitthvað við að vera. Guð blessi "Global warming".
![]() |
Örar breytingar vegna hlýnunar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 9.1.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Spaugilegt | 8.1.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þessi frétt um ofurmjóan vír, minnir mig á brandara sem ég heyrði fyrir rúmlega 30 árum síðan.
Bandarísk og svissnesk vísindastofnun voru í mikilli samkeppni sín á milli og eitt sinn sendi sú bandaríska tilraunaglas í pósti til þeirrar svissnesku, með þeim skilaboðum að þeir mættu eiga það og innihald þess. Svissnesku vísindamennirnir skoðuðu tilraunaglasið og komust að því að það væri tómt og sendu símskeyti yfir hafið og spurðu hvers vegna verið væri að senda þeim tómt tilraunaglas.
Bandaríkjamennirnir svöruðu um hæl: "Skoðið glasið betur".
Svissnesku vísindamennirnir skoðuðu þá glasið með öflugustu rafeindasmásjá sem fyrirfannst í landinu og sáu þá að það hafði að geyma agnarsmáan vír, þann smæsta sem þeir höfðu nokkru sinni séð.
Að nokkrum vikum liðnum fengu Bandaríkjamennirnir glasið endursent og eftir að hafa skoðað innihald þess og séð að sami vírinn var í glasinu, sendu þeir skeyti til starfsbræðra sinna í Sviss og í því stóð: "Þið máttuð eiga vírinn!"
Svarskeyti barst um hæl: "Skoðið vírinn betur".
Bandaríkjamennirnir gerðu það og komust þá að því að búið var að bora í gegnum vírinn... eftir honum endilöngum og gera úr honum rör!
![]() |
Þróa vír sem er þynnri en mannshár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | 6.1.2012 (breytt kl. 22:52) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Samkvæmt Billboard, bandaríska vinsældalistanum, var "Theme from a summer place" með Percy Faith og hljómsveit hans, vinsælasta lagið daginn sem ég kom í þennan heim.
Á þessari síðu; http://www.joshhosler.biz/ geta lesendur fundið hvaða lag var vinsælast á fæðingardegi sínum.
Bloggar | 6.1.2012 (breytt kl. 02:41) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ef ekki nú, þá aldrei, fyrir Heiðar Helguson. Síðasti séns og hann er vel að titlinum kominn. Ódrepandi baráttuvilji og dugnaður einkennir hann fyrst og fremst og það er auðvitað magnað að 34 ára gamall framherji skuli slá í gegn í ensku úrvalsdeildinni. Það er afrek útaf fyrir sig m.t.t. aldursins.
Aron Pálmason er ungur og mun eflaust hampa titlinum fljótlega en spurning með Þóru B. Helgadóttur. Var þetta hennar síðasti séns?
![]() |
Heiðar íþróttamaður ársins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | 6.1.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.6.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 27
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 23
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Darraðar dans
- Að skima fyrir bönnuðum hugsunum er eins og að skima fyrir vondum veirum, eða hvað?
- Mergur málsins
- Kúvendingin í útlendingamálum
- Líf og lífskjör
- Kjarkmenn rísa upp
- Allar fréttir neikvæðar, tilviljun eða áróður?
- Versta sem gæti gerzt
- Hæsta umframdánartíðni í Evrópu þrjú ár samfellt
- Hafró neitar að nota gögn frá fiskiskipum