Færsluflokkur: Menntun og skóli

Breyttir tímar í menntamálum

skóli

Ath. Ný skoðanakönnun hér til hægri, endilega takið þátt. Smile


mbl.is Ók vespu inni og sló kennarann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kennsluaðferð gegn einelti

eineltiÉg rakst á þetta á facebook: 

 

Kennari í New York var að kenna bekknum um einelti og lét þau framkvæma smá æfingu. Hún fékk börnunum pappírsbút og sagði þeim að hnoða og kuðla og trampa svo á kuðlinu... og skemma eins og þau gætu, bara ekki að rífa niður.

 

Svo lét hún börnin breiða úr pappírnum og prófa að slétta krumpurnar, en ekki síst, virða fyrir sér hvernig þau hefðu skemmt pappírinn og gera sér grein fyrir hvað hann var orðinn óhreinn. Síðan sagði kennarinn börnunum að biðja pappírinn afsökunar. Hversu mikið sem börnin báðu pappírinn afsökunar og reyndu að laga það sem þau hefðu krumpað og óhreinkað, þá hurfu skemmdirnar ekki.

 

Kennarinn fékk börnin til að ræða og skilja að hvað sem þau reyndu eða vildu slétta og laga það sem þau hefðu gert við pappírinn, myndi aldrei lagast og búið væri að skemma pappírinn varanlega. Þetta væri einmitt það sem gerðist þegar einelti væri beitt gegn öðrum. Hversu oft sem gerandinn bæði fórnarlambið afsökunar, þá væru örin komin til að vera og fylgja fórnarlömbunum allt þeirra líf.

 

Upplitið á börnunum í bekknum sagði kennurunum að hún hafði hitt í mark.


mbl.is Bókun byggð á misskilningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Krít og kjaftur

Smá viðbót við skólaheimsóknarbloggið.

Skólastjórinn Tom Drescher, sem var leiðsögumaður okkar um skólann, fór með okkur inn í kennslustofu sem var afar vel tæknilega búin.

Frisco 432

Í kennslustofunni voru stórir flatskjáir á veggjum og stórt tjald fyrir skjávarpa. 30 fartölvur voru svo til afnota fyrir nemendur.

Frisco 433

Stefán Már Guðmundsson, aðstoðarskólastjóri Grunnskóla Reyðarfjarðar.

Frisco 434

En þrátt fyrir alla nýjustu tölvu og kennslutækni, þá er engin ástæða til að fleygja gömlum en notadrjúgum verkfærum. Krítar og tússtöflur standa enn fyrir sínu og þær eru aldrei langt undan.

"Powerpoint presentation" hefur tekið öll völd á flestum fyrirlestrar og kynningarfundum. Sumir segja að þessi aðferð sé ofnotuð í dag og varla að nokkur maður geti orðið tjáð sig við hóp fólks án þess að nota Powerpoint.

"If you have to use Powerpoint.... you have no point", sagði einn kennarinn okkur ökukennaranemum í Kennaraháskólanum, á léttum nótum. Joyful

Við ökukennaranemarnir þurftum að skila verkefnum reglulega og flytja kynningu á þeim. Allir notuðu Powerpoint í kynningunni, alltaf...  utan einn neminn sem var kennaramenntuð kona. Hún sagði í upphafi kynningar sinnar á verkefninu, að hún ætlaði ekki að nota Powerpoint í þetta sinn, heldur aðra aðferð sem héti "Krít og kjaftur". Svo tók hún upp krít, gekk að krítartöflunni og kynnti verkefni sitt með glans. Happy


Þetta er ekki bara skólavandamál

Grunnskólinn í Hveragerði var einn af fyrstu grunnskólum landsins til þess að taka upp "Olweusarverkefnið  gegn einelti. Olweus hefur verið notuð hér í Grunnskóla Reyðarfjarðar í nokkur ár.

"Meginreglur í Olweusaráætluninni gegn einelti:

Olweusaráætlunin hvílir á fremur fáum lykilmeginreglum sem fengist hafa staðfestar í vísindalegum rannsóknum á þróun og breytingum þessa atferlisvanda, einkum árásarhneigðu atferli. Það er því mikilvægt að reyna að koma á „endurskipulagningu þess félagslega umhverfis sem er“ og að skapa skólaumhverfi (og helst líka umhverfi heima fyrir) sem einkennist af:

• hlýlegum og jákvæðum áhuga og alúð hinna fullorðnu
• ákveðnum römmum vegna óviðunandi atferlis
• stefnufastri beitingu neikvæðra afleiðinga (refsinga) sem hvorki eru líkamlegar né óvinveittar, brjóti nemandi gegn þeim reglum sem ákveðnar hafa verið
• fullorðnum í skóla (og á heimili) sem virka sem yfirboðarar við vissar aðstæður.

Þessar meginreglur hafa svo verið „þýddar“ yfir í ýmsar aðgerðir í skólum, á heimilum og hvað hvern og einn varðar (sjá 1. töflu). Helstu markmið aðgerðaáætlunarinnar eru þau að breyta „skipulagi tækifæra og umbunar“ fyrir einelti þannig að mjög dragi úr möguleikum á eineltisatferli og umbun fyrir það." Sjá hér

Að mínu mati er samstarf við foreldra gerenda í svona málum, lykilatriði. Oft eru foreldrar gerendanna algjörlega ómeðvitaðir um að barn sitt leggi einhvern/einhverja í einelti, en ef þau vita af því og gera ekkert í því, þá er þetta orðið "foreldravandamál" (að mínu mati).

Þekkt eru dæmi um foreldra sem neita að trúa að "barnið sitt" geri nokkuð af sér og bregst jafnvel við af hörku ef "ásakanir" um slíkt eru bornar fram. Það snýr jafnvel slíkum ásökunum upp í það að þær séu einelti í garð barns síns.

Í sumum tilfellum eru gerandi undir félagslegum þrýstingi, að leggja tiltekna einstaklinga í einelti. Ef þeir láta ekki undan þeim þrýstingi þá eru þeir hræddir um að þeir sjálfir verði fórnarlamb eineltis.

Veist þú alltaf hvað barnið þitt gerir utan heimilis?


mbl.is Fá sendar „alveg hræðilegar sögur"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útskriftarmynd

Hér sjáum við föngulegan hóp nýbrautskráðra ökukennnara, ásamt forstöðumanni ökukennaranámsins og forseta Menntavísindasviðs Háskóla Íslands lengst til hægri. Á myndina vantar þrjá sem ekki áttu heimangengt, þar af einn frystitogarasjómann sem var upptekinn á "Hampiðjutorginu". Stærri mynd HÉR

Okukennarar


Ökukennari

driving_instructor_mug1Þá er kallinn orðinn ökukennari. Ég er í fyrsta árgangi ökukennaranema sem brautskráist frá Háskóla Íslands.

 Laugardaginn 5. des sl. fór brautskráningin fram við hátíðlega athöfn í "Skriðu" í gamla Kennaraháskólanum. 24 nýir ökukennarar voru brautskráðir, þar af voru 11 konur, en ökukennarastarfið hefur verið heldur "karl-lægt" hingað til og þetta mun vera óvenju hátt hlutfall kvenna í útskrift.

Undanfarin ár hefur ökukennaranám verið í Kennaraháskólanum, KHÍ, en við sameiningu KHÍ og HÍ, (eða á maður að segja "yfirtöku" HÍ á KHÍ?), þá færðist þetta nám undir "Menntavísindasvið Háskóla Íslands".

Þetta hálfa annað ár sem námið hefur tekið, hefur verið ótrúlega fljótt að líða og nú, eftir brautskráningu, er ekki laust við ákveðna tómleikatilfinningu og jafnvel söknuð, því hópurinn sem útskrifaðist nú var einstaklega skemmtilegur.

Ég var aldursforseti nemenda, 49 ára gamall en 23 ár voru á milli mín og yngsta nemandans.

"Afskiptamálanefnd" var stofnuð til þess að halda utan um lokahóf nemanna og meiningin er að hún starfi áfram á laun og skipuleggi reglulegan hitting í framtíðinni.

ökukennsla


Ergonomics - Vinnuvistfræði

510246AVið voru að ljúka kúrs um vinnuvistfræði í ökukennaranáminu. Íþróttamenntaður sjúkraþjálfari á sjötugsaldri var fyrirlesari. Hann leysti hlutverk sitt vel af hendi, enda maðurinn hokinn af reynslu og og hafsjór af fróðleik.

Þegar kennarinn hafði frætt okkur um óæskilegar líkamsstellingar við ýmiskonar vinnu og einnig þær ákjósanlegu, þá Barst Raggi Bjarna og hangandi hönd hans í tal. Samkvæmt heilsukenningunni, var hornið á úlnlið Rangnars, alltof krappt og þessi líkamsstaða gæti leitt til liðamótaskemmda, eða einhverju þaðan af verra.

 

Computer_Workstation_Variables

Upphandleggir okkar eiga að vera 0 - 30° út frá líkamanum og ákjósanlegt er 8°. Margir vinna með upphandleggi sína í 60° en slíkt getur leitt til ýmissa kvilla, s.s. vöðvabólgu víða í efri hluta líkamans, höfuðverk, svefntruflunum, kvíðaköstum o.fl.


mbl.is Raggi Bjarna býður öllum í afmæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kemst bara í einhvern menntaskóla

Bömmer!! , dóttirin kemst bara í "einhvern menntaskóla". Þetta drama hjá mæðgununum er bæði hlægilegt og grátlegt.

TechGuy-533-school-days-entertainment-maths-fantastic-very-funny-dinesh-joke-fun-schooldays-powerpoint-118_88


mbl.is Foreldrar bálreiðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reyklaus 8. bekkur til Köben

8. bekkur Grunnskóla Reyðarfjarðar bar sigur úr býtum í samkeppninni Reyklaus bekkur 2009 sem haldin er ár hvert á vegum Lýðheilsustöðvar. Verkefnið þeirra samanstóð af veggmyndum, borðspili sem heitir No smoking, bókamerkjum og vinnustaðafræðslu. Vinnustaðafræðslan fór fram í matsal Alcoa þar sem krakkarnir sýndu veggmyndirnar sínar, fluttu fyrirlestra með glærusýningum og dreifðu bókamerkjum.

Verðlaunin eru 3ja daga ferð til Kaupmannahafnar fyrir bekkinn og umsjónarkennara hans. Flogið verður til Kaupmannahafnar á þriðjudag í næstu viku og á dagskránni er meðal annars ferð í Tívoli og dýragarðinn. Erla Ormarsdóttir er umsjónarkennari 8. bekkjar og hélt utan um verkefnið með krökkunum og það skilaði þessum glæsilega árangri.

020%20-%20Copy

Krakkarnir í skólanum voru kallaðir saman í hátíðarsalnum fyrir fyrsta tíma á mánudaginn og engin vissi neitt hvað stóð til. Eftir að skólastjórinn hafði talað við krakkana um efni ótengdu verðlaununum, þá kallaði hún 8. bekkinn upp á svið. Engan grunaði neitt og allra síst að krakkarnir væru að fara í fría ferð til Kaupmannahafnar. Svipurinn á krökkunum var óborganlegur þegar Erla tilkynnti þeim úrslitin í samkeppninni og svo brutust út mikil fagnaðarlæti eins og sjá má á myndinni.


Hvað er ljóð?

Það var ljóðatími í gær hjá 8. bekk í Grunnskólanum á Reyðarfirði þar sem nemendur áttu að skrifa fyrst ljóð um tilfinningar og síðan liti. Máttu þau vinna þetta án þess að velta fyrir sér rími og ljóðstöfum. Einum stráknum í bekknum leiddist þetta óskaplega og skilaði eftirfarandi til kennarans.

Hvað er ljóð?

Ljóð er drasl

sem er tilgangslaust basl.

Hugsar og hugsar, gerist ekki neitt,

aumingja tíminn, fór ekki í neitt.

Hugsar um gulan, rauðan og bláan,

helvítis ljóðið gerir mig gráan.

Endemis ljóðið er að klárast,

vegna þess að ég er að brjálast.

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband