Færsluflokkur: Sakamál
Kallaði konur búnað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sakamál | 29.3.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vinstristjórnin hefur með skipulögðum hætti brotið lög og reglur og hunsar meira að segja dómstóla á efsta stigi.
Hún hefur einbeittan brotavilja og flokkast því undir skipulögð glæpasamtök. Það á auðvitað að banna öll slík samtök.
Vilja banna skipulagða glæpahópa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sakamál | 28.3.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Sigríður saksóknari verður að segja hvað Geir átti nákvæmlega að gera. Átti hann að skipa bönkunum að selja eignir þegar hann hafði ekki lagalegt vald til þess?
Sigríður saksóknari er líkari pólitískum böðli fremur en saksóknara í réttarríki.
Saksóknari: Geir gerði ekki nóg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sakamál | 15.3.2012 (breytt kl. 16:21) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Er þetta boðlegt?
Hann má nú eiga það hann Össur... hann er einlægur
Össur vissi ekki um tengslin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sakamál | 9.3.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þetta er enn ein þjóðarskömmin varðandi þennan sorglega Landsdóm, að ekki skuli verða til lifandi heimildir um málferlin. Einhverjir eiga eftir að naga sig í handarbökin vegna þessa.
Almenningur á að krefjast þess skilyrðislaust að útsendingar verði leyfðar úr réttarsalnum.
Hún er fáránleg sú skýring að útsending trufli réttarhaldið Truflar hljóðlát vél á þrífæti meira en 75 manns á bekkjum?
Neyðarlögin urðu til bjargar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sakamál | 6.3.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
.... og engin furða. Fagin, úr Oliver Twist? Aqualung? Hvaða maður er þetta?
Hlakka til að sjá Thick as a brick í Hörpunni í sumar
Davíð: Fáir höfðu áhyggjur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sakamál | 6.3.2012 (breytt kl. 15:19) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Í mínum huga er alveg klárt að maður sem fremur svona voðaverknað, er andlega vanheill þó vel megi vera að hann sé sakhæfur.
Ummæli Þórs Saari, að hann sé ekki hissa á svona verknaði miðað við ástandið í þjóðfélaginu, eru ömurlega ósmekkleg og lykta af pólitísku útspili manns sem komst á þing vegna mikillar óánægju og gremju almennings, en sér nú fram á að fá ekki frekara brautargengi í umboði kjósenda.
Ég sé að Marinó G. Njálsson, e-mail vinur Lilju Mós rær, á sömu mið og Þór Saari. Þeir troða marvaðann í pólitískum ólgusjó.
Árásin kemur Þór ekki á óvart | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sakamál | 6.3.2012 (breytt kl. 12:48) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Það átti aldrei að draga Geir H. Haarde fyrir landsdóm fyrir það fyrsta en til vara hefðu allir ráðherrar ríkisstjórnarinnar átt að sitja á sama bekk.
Ég tel þessa "gæsku" stjórnarandstöðunnar vera mistök. Vill Geir H. Haarde lifa með þann stimpil á bakinu að "vinir" hans í stjórnmálastéttinni hafi komið í veg fyrir að hann hlyti dóm að lögum, sekt eða sýknu? Hinir rætnu pólitísku andstæðingar Sjálfstæðisflokksins munu aldrei þreytast við að minna á það, ef málið gegn Geir verður fellt niður. Þá er betra að Geir falli með sæmd en að eiga yfir höfði sér ásakanir um ókomna framtíð, að "stjórnmálamafía" verndi sitt fólk.
Margir lögfróðir menn eru þess fullvissir að Geir verði sýknaður. Hættan er auðvitað hins vegar sú, að úr því farið var af stað með málið á annað borð, þá verði hinn pólitískur þrýstingur óbærilegur fyrir dómarana í málinu og því verði Geir a.m.k. sakfelldur fyrir einhver minniháttar atriði, því sýkn í öllum atriðum yrði bæði áfall fyrir vinstriflokkana og Landsdóm, en einnig áfellisdómur yfir vinnu rannsóknarnefndar Alþingis.
Geir á að bera höfuðið hátt og mæta örlögum sínum fyrir Landsdómi. Ákvörðunin um að leiða hann fyrir pólitísk réttarhöld vinstriflokkanna, verður ævarandi svartur blettur á þá flokka og þá einstaklinga sem drógu hann í sérstakan dilk, vegna þess að hann er Sjálfstæðismaður.
Málið gegn Geir verði fellt niður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sakamál | 15.12.2011 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég er hlynntur því að öryggismyndavélar sé sem víðast á opinberum stöðum. Upptökur úr þeim má nota til að koma upp um glæpamenn. Um aðgang úr upptökuefni myndavélanna þurfa þó að vera skýrar reglur og efnið má aldrei vera söluvara, allra síst á fjölmiðlamarkaði.
Ef þeir aðilar sem setja upp og reka eftirlitskerfi með myndavélum, eru gerðir ábyrgir fyrir upptökunum og hörðum refsingum beitt ef þeim er "lekið", þá held ég að líkurnar á að þessu öryggistæki verði misbeitt í annarlegum tilgangi, minnki töluvert.
Eru skýrar reglur hvað þetta varðar, t.d. á Íslandi?
Upptökum af Strauss-Kahn lekið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sakamál | 9.12.2011 (breytt kl. 12:16) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ef rannsóknir sýna að 2% nauðgunarkæra eru byggðar á upplognum sökum, er þá 98% líkur á því að Egill "Gilz" Einarsson og unnusta hans eru sek?
Er öruggt að 18 ára stúlka ljúgi upp á Egil og unnustu hans nauðgun, af því hann er ríkur og frægur?
Sumir virðast vera með þetta alveg á hreinu.
Ég ætla að bíða eftir bókinni
Kærir fyrir nauðgun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sakamál | 4.12.2011 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 24
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 22
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Karlmannatíska : RALPH LAUREN Polo Holiday 2024
- Hérna eru gamlar TÆKNITEIKNINGNAR af HINU NÝJA GOSI sem að er nú NÝ HAFIÐ: 20.NÓVEMBER 2024 en beðið er eftir NÝJUSTU TÆKNITEIKNINGUNUM:
- Úr munni hestsins
- Erfiðið út í buskann
- "ÚLFUR Í SAUÐAGÆRU"??????
- Það gýs á tveimur stöðum af ólíkum ástæðum
- Flokkur fólksins
- Að tapa sigrinum
- Namibía: hvenær koma Íslendingarnir aftur?
- Húsnæðisáætlanir sem gleyma fólkinu