Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Bótasinnar

Stefán Ólafsson  Markmið stjórnmálaflokka á að vera að vinnandi fólk sé bjargálna, hafi góða afkomu sem skili ríkissjóð tekjum til þess að halda uppi velferðarkerfinu. Fyrirmyndarþjóðfélagið á að vera bótalaust samfélag, nema til þeirra sem ekki geta unnið fyrir sér. Félagshyggjuflokkum er ekkert sérlega umhugað að ná þessu markmiði, þeir vilja útdeila lífsgæðunum í gæsku sinni og réttlæti með jöfnuð að leiðarljósi. Bótalaust þjóðfélag riði þessum flokkum að fullu.
mbl.is Hækki skatta og tvöfaldi vaxtabætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Álitsgjafinn"

Stefán Ólafsson, prófessor hefur verið "álitsgjafi" í fjölmiðlum undanfarin ár, sem er rangnefni, því hann er málpípa stjórnmálaflokks sem eru andsnúinn Sjálfstæðisflokknum. Á þessu er grundvallar munur og í ljósi þess ber að skoða öll hans ummæli.

Hér að neðan er Stefán í hópi aðdáenda sinna

DSCN5499-A

 


mbl.is Hrunin frjálshyggjutilraun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geir Haarde á Reyðarfirði

Geir H. Haarde, formaður Sjáfstæðisflokksins, heiðraði Reyðfirðinga með nærveru sinni í morgun. Hann hélt fund á Fjarðahóteli kl. 10 í morgun og átti hann mjög gott spjall við fundarmenn. Inga Jóna, eiginkona hans var með í för og var þetta nokkurskonar kveðjufundur þeirra hjóna, en þau eru á yfirferð um landið þessa dagana.

003

Hér er Geir á fundinum í morgun, ásamt Guðmundi Skarphéðinnssyni, formanni kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norð-Austur kjördæmi.

Þess má geta að Sigmundur Ernir Rúnarsson, frambjóðandi Samfylkingarinnar í kjördæminu, mætti í "Samma-kaffi" í söluskála Olís á Reyðarfirði, snemma í morgun. Hann mun vera á kosningaferðalagi hér eystra vegna framboðs síns. Við áttu skemmtilegt spjall við kauða, en ég er ekki viss um að hann hafi áttað sig á því fyrirfram, að í "Samma-kaffi" er hann mættur í eitt almesta íhaldsbæli kjördæmisins, a.m.k. á Austfjörðum Grin. Í góðvild okkar sögðum við honum þó frá því, eftir klukkutíma spjall.

Hann var á leið í álverið til að kynna sig og sín sjónarmið. Vonandi fannst honum tíma sínum ekki kastað á glæ hjá okkur íhaldsskörfunum Joyful. Nei... ég held ekki, þetta var örugglega fróðlegt fyrir hann og örugglega minni tímaeyðsla en víða annarsstaðar. Cool Eitt get ég fullyrt eftir spjallið við hann.... VG er ekki hátt skrifað hjá honum.


mbl.is Hér var ekki hörð frjálshyggja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótrúlegt bull á örlagatímum

Ekki veit ég hver tilgangur Ástu Möller er með afsökunarbeiðni sinni, nema ef vera skyldi að fá prik fyrir í komandi prófkjöri. Kannski er þetta gott fordæmi, en það á þá líka að vera fyrir alla 63 þingmennina sem setið hafa á Alþingi undanfarin ár. Ásta kom ekki nærri nefndum eða ráðum flokksins í efnahagsmálum.... ef ég man rétt.

En þessi umræða á Alþingi í dag, er móðgun við fólkð í landinu. Að eyða tíma þingsins á þessum fáu dögum sem eftir eru, í karp um þessa hluti, hlýtur að vera nöturlegt fyrir fólk og fyrirtæki sem býður eftir lausnum á vandamálum sínum.


mbl.is Sekt og sakleysi á þingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sáttahönd dauðans

Sáttahönd til verndarhandarinnar.

rybw_hands.147140140_stdFramsóknarmenn hljóta að vera farnir að dauðsjá eftir stuðningi sínum við minnihlutastjórn vinstriflokkanna, nema þeim líki gólftuskuhlutverkið. Hvernig Össur Skarphéðinnsson talar niður til Framsóknarflokksins getur varla talist sáttahönd. Einnig mátti greina hótanir í garð Framsóknar, ef þeir ekki greiddu götu þingmála vinstriflokkanna. Úr orðum Össurar mátti lesa að ef Framsóknarflokkurinn vogaði sér að stoppa mál af, þá yrði það þungur kross fyrir flokkinn að bera, ábyrgðin væri svo mikil.  

Það verður ekki upp á þetta lið logið.


mbl.is Sigmundi Davíð boðin sáttahönd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrstir niður - fyrstir upp

128665602556206452Alheimskreppan skall á Íslendingum fyrstra þjóða af fullum þunga. Ég spái því að við verðum líka fyrst að jafna okkur á þessu. En til þess að svo megi verða þá verða íslensk stjórnvöld að liðka fyrir erlendum orkukaupendum sem hingað vilja koma með fyrirtæki sín, hvort sem það eru stóriðjufyrirtæki eða annar orkufrekur iðnaður. Þar liggja tækifæri okka, nú sem aldrei fyrr. 

 


mbl.is Fréttaskýring: „Biðja fyrir“ betri tíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Athyglisverð skýrsla

Í fljótu bragði er auðvelt fyrir mig að taka undir margt sem fram kemur í skýrslu endurreisnarnefndarinnar, sjá skýrsluna HÉR  Sjálfstæðisflokkurinn hefur með skýrslunni tekið afgerandi forystu íslenskra stjórnmálaflokka, í því að greina það sem úrskeiðis fór á undanförnum árum. Ekki er við því að búast að stjórnmálaflokkar sem nærast á stundarvinsældum, flokkar eins og t.d. Samfylkingin, geri hreinskilna úttekt á gjörðum sínum. Sá flokkur er yfirleitt í öðrum verkefnum, enda er sjálfsgagnrýni ólíkleg til vinsælda fyrir flokkinn.

Þessi skýrsla eru enn drög og væntanlega á fleira eftir að koma fram í henni. Þetta er í fyrsta sinn sem ég sé málefnalega gagnrýni af hálfu stjórnmálaflokks, á það sem úrskeiðis hefur farið á undanförnum árum. Upphrópanir í fyrirsagnastíl vinstriflokkanna, skila auðvitað engu í þessa umræðu.

Ps. Minni á skoðanakönnun hér til hliðar.


mbl.is „Flokkurinn þoli stór orð"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ingibjörg neflausa

20070730140544429Það kom berlega í ljós þegar Ingibjörg var fjarverandi vegna veikinda sinna í vetur, að flokkur hennar var fljótur að liðast í sundur. Í fjarveru hennar varð uppreisnarástand í flokknum og svo virðist sem hún hafi verið límið sem batt saman þetta flokkakraðak sem Samfylkingin er.

bonusVandræðagangur Ingibjargar í pérsónulegum ákvarðanatökum sínum varðandi þátttöku sína í stjórnmálum, hefur verið með ólíkindum. Stundum er talað um "pólitískt nef", og ég hallast að því að Ingibjörg sé neflaus í því samandi. Það er augljóst að arftaki hennar sem "lím" flokksins er fundinn í Jóhönnu Sigurðardóttur og Ingibjörg hefur því misst megin hlutverk sitt í flokknum.

Um leið og tími Jóhönnu kom, þá fór tími Ingibjargar.


mbl.is Ingibjörg býður sig fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverjir gera skýrslurnar?

Í okkar litla þjóðfélagi virðist engin vera hafin yfir grun um spillingu. Allir eru tengdir, beint eða óbeint. Útlendingur er orðinn seðlabankastjóri og það á víst að vera voða gott, en hann er vinstrimaður og það er ekki gott... segja sumir. Ég vil bíða og sjá hvað maðurinn hefur fram að færa áður en ég dæmi um það.

En það eru Íslendingar í rannsóknarnefndinni, kannski er það alveg glatað Errm

Szrb66Tsa13B


mbl.is Ráðamenn í skýrslutökur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bankarnir voru of stórir

Seðlabankinn hafði ekki bolmagn til að bakka upp einkabankana. Klúðrið var fólgið í því að bankarnir uxu þrautavaralánveitanda sínum yfir höfuð. Bankarnir og ríkisstjórnin bera sameiginlega ábyrgð á því.
mbl.is Ekki brugðist við varúðarorðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband