Sáttahönd dauðans

Sáttahönd til verndarhandarinnar.

rybw_hands.147140140_stdFramsóknarmenn hljóta að vera farnir að dauðsjá eftir stuðningi sínum við minnihlutastjórn vinstriflokkanna, nema þeim líki gólftuskuhlutverkið. Hvernig Össur Skarphéðinnsson talar niður til Framsóknarflokksins getur varla talist sáttahönd. Einnig mátti greina hótanir í garð Framsóknar, ef þeir ekki greiddu götu þingmála vinstriflokkanna. Úr orðum Össurar mátti lesa að ef Framsóknarflokkurinn vogaði sér að stoppa mál af, þá yrði það þungur kross fyrir flokkinn að bera, ábyrgðin væri svo mikil.  

Það verður ekki upp á þetta lið logið.


mbl.is Sigmundi Davíð boðin sáttahönd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Við höfum hugsað nánast það sama þegar við lásum um "sáttahöndina".  Almenningur hlýtur að vera búinn að fá nóg af þessu og farinn að hugsa á sömu nótum.

Axel Jóhann Axelsson, 3.3.2009 kl. 17:18

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Já, ég trúi ekki öðru

Gunnar Th. Gunnarsson, 3.3.2009 kl. 17:30

3 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Sigmundur Davíð er nýkominn inn í pólitík, hann er að kynnast úlfum með góða ímynd.

Benedikt Halldórsson, 3.3.2009 kl. 20:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband