Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Gerast kaupin á eyrinni virkilega svona?

Eru diplómatísk stórmál afgreidd með einfaldri fyrirspurn með tölvupósti?

"Sæll Stoltenberg!

Heyrðu... geturðu lánað mér pening? Ég var að spá í svona ... tja... rúmlega 2 þúsund miljón miljónir. Ég er nefnilega dáldið blönk núna. þú veist... Icesave og þetta árans bankahrun og allt það.

Endilega láttu mig vita.

Kær kveðja, Jóhanna

Ps. Þú fyrirgefur að ég skrifa þér á íslensku. Er ekki einhver hjá þér sem skilur „gammel norsk“?
mbl.is Hærra lán ekki í boði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkifrétt... nema tímasetningin

Pantað álit frá Fylkingarmanninum fyrrverandi. Þessi rök ef rök skyldi kalla, hafa heyrst áður. Sami hræðsluáróðurstónninn og hefur verið í SamFylkingunni frá því hún áttaði sig á að hægt væri að nota Icesave sem farmiða inn í ESB

 


mbl.is Alvarlegar afleiðingar af frekari töfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er það versta sem getur gerst?

.... ef við látum dómstóla um Icesave? Maður spyr sig Errm Sjá HÉR

633576365291792917-allieswithfriendslikethiswhoneedsenemies


mbl.is 610 milljarða króna lántökur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lýðskrum fyrir einfeldninga

funny_dude_wheres_my_bailout_gear_button-p145551452074329364t5sj_400Hvaða "frjálhyggjutilraun" er maðurinn að tala um? Einkavæðingu bankanna? Var hún tilraun?

Nei, auðvitað ekki. Einkavæðing bankanna var rökrétt framhald á lýðræðisþróun í öllum vestrænum ríkjum og að sjálfsögðu verða bankarnir einkavæddir að nýju. Að einkavæða bankana EKKI, hefði orðið aðhlátursefni öðrum þjóðum. "Kúba norðursins" eða eitthvað álíka viðurnefni hefðum við setið uppi með ef hugmyndafræði harðra vinstrimanna hefði orðið ofaná.

Nákvæmlega sömu hlutir eru og hafa verið að gerast um allan heim, bara ekki á sama skala og hér. Hér voru byrjendur í bankarekstri við stjórnvölina og slakt eftirlitskerfi hjá hinu opinbera og agnarsmátt hagkerfi er ekki beinlínis sniðið fyrir athafnamenn með stóra útrásardrauma.


mbl.is „Tilraunin mistókst“ með herfilegum afleiðingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinir ??

 "Við erum öll vinir og félagar, og viljum vera það áfram,“

Er fólk á sömu skoðun.. kemst það að sömu niðurstöðu, af því það er vinir?

Stjórnmálaskoðanir eiga ekki að hafa neitt með vinskap að gera.

Vinstrimenn hatast við enga meira en hægri menn... nema ef vera skyldi við aðra vinstrimenn sem eru ekki á nákvæmlega sömu skoðun og þeir.


mbl.is Búist við löngum fundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sorrý, sorrý

Þegar bankahrunið var að verða að hinum nöturlega veruleika fyrir ári síðan, þá var Geir Haarde og fleiri forystumenn Sjálfstæðisflokksins spurðir ítrekað af fjölmiðlamönnum hvort ekki væri rétt að biðja þjóðina afsökunar á orðnum hlut, því þetta gerðist jú á þeirra vakt. Geir sagðist ekki tilbúinn til þess, enda ekki á hreinu hvað hefði í raun gerst. Hann sagðist þó gera það ef niðurstaða rannsókarnefndar Alþingis kæmist að þeirri niðurstöðu að sökin væri hans.

Ekki gengu fjölmiðlamenn eins hart að forystumönnum Samfylkingarinnar, þó banka og fjármál þjóðarinnar væru á þeirra könnu og þrátt fyrir að viðvörunarbjöllur, og þá helst erlendis frá, byrjuðu ekki að gjalla að ráði fyrr en Samfylkingin komst í ríkisstjórn á vormánuðum 2007.

Auðvitað sváfu stjórnmálamenn á verðinum og þeir skulda allir með tölu þjóðinni afsökunarbeiðni, þó "sökin" væri ekki þeirra, en ég tek undir þau sjónarmið að það er betra að vita hverju verið sé að biðjast afsökunar á. Þess vegna er allt í lagi að bíða fram í nóvember þegar skýrsla rannsókarnefndarinnar liggur fyrir.

Margir hneiksluðust á viðbrögðum Geirs og félaga og sögðu þau sýna hroka og siðblindu. Jóhanna Sigurðardóttir skynjaði auðvitað viðbrögð almennings og nú sorrý-ar hún á báðar hendur við þau fáu tækifæri sem hún lætur svo lítið að sýna sig á almannafæri. Um daginn vegna Breiðavíkurmálsins og nú vegna bankahrunsins.

Og allir eru sáttir við Samfylkinguna.. hún kann nefnilega að biðjast afsökunar.

12-09-09


mbl.is Biður þjóðina afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Húrra fyrir Ögmundi

Ögmundur Jónasson er maður sem mér þykir vænt um í dag, þó ég sé ósammála honum í grundvallararatriðum í pólitík.

Ég gerði mér ekki grein fyrir því að eigendur IMF væru Bretar.

Við hljótum að fá áheyrn frá alþjóðasamfélaginu.

Það er verið að kúga okkur.

 

 


mbl.is Segir Breta og Hollendinga fjárkúga Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mig grunaði þetta

Í fjármálaheiminum er stundum sagt: "Ef eitthvað hljómar of gott til að vera satt, þá er það ósatt".

Það er furðulegt að framsóknarmaðurinn Höskuldur, skuli hlaupa heim frá Noregi með þessar fréttir, án þess að kanna betur hvað er á bak við þær. Norski framsóknarmaðurinn hefur eflaust viljað hressa íslenska flokksbróðir sinn eitthvað en sú hressing átti ekki að vera til útflutnings.

kvoldmaltid2

Þessi er klassík Grin


mbl.is Vilja ekki lána Íslandi stórfé
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Myndgetraun

Ásjóna dauðans yfir þessari ríkisstjórn, verður skýrari með tilkomu Álfheiðar. Ég ætla að sleppa því að rifja upp ummæli hennar á undanförnum árum, en þau eru mörg hver skelfileg, ekki síst í umhverfismálum. Þessi fyrrum Alþýðubandalagsmaður og fréttastjóri Þjóðviljans sáluga, er svar VG við "réttu" kynjahlutfalli í ríkisstjórninni.

Hugsið ykkur! Til þess að hafa rétt kynjahlutfall, er sett vanhæft ofstækiskvenndi í eitt vandasamasta ráðherraembætti sem til er, við aðstæður sem nú ríkja.

Myndgetraunin vísar til orðs úr enskri tungu

assholezl2


mbl.is Álfheiður verður ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Á einu öaabraði"

Glaðbeittur þingmaður golfmóti frá,

gleiður í pontunni stendur.

Áfengi drakk hann svo á honun sá,

án þess að verða samt kenndur!

im_not_drunk_i_just_walk_funny_tshirt-p235247054198505708uhvu_400

 


mbl.is Stendur og fellur með VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband