Lýðskrum fyrir einfeldninga

funny_dude_wheres_my_bailout_gear_button-p145551452074329364t5sj_400Hvaða "frjálhyggjutilraun" er maðurinn að tala um? Einkavæðingu bankanna? Var hún tilraun?

Nei, auðvitað ekki. Einkavæðing bankanna var rökrétt framhald á lýðræðisþróun í öllum vestrænum ríkjum og að sjálfsögðu verða bankarnir einkavæddir að nýju. Að einkavæða bankana EKKI, hefði orðið aðhlátursefni öðrum þjóðum. "Kúba norðursins" eða eitthvað álíka viðurnefni hefðum við setið uppi með ef hugmyndafræði harðra vinstrimanna hefði orðið ofaná.

Nákvæmlega sömu hlutir eru og hafa verið að gerast um allan heim, bara ekki á sama skala og hér. Hér voru byrjendur í bankarekstri við stjórnvölina og slakt eftirlitskerfi hjá hinu opinbera og agnarsmátt hagkerfi er ekki beinlínis sniðið fyrir athafnamenn með stóra útrásardrauma.


mbl.is „Tilraunin mistókst“ með herfilegum afleiðingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll brodir. Eg les stundum postinn thinn og finnst mer thu vera forskrufadur a stundum. Thu segir rettilega "Hér voru byrjendur í bankarekstri við stjórnvölina og slakt eftirlitskerfi hjá hinu opinbera"

Thetta var ekkert annad en tilraunastarfsemi elsku brodir nema tha ad felagar thinir og radamenn i Flokknum hafi ætlad viljandi ad setja her allt a hausinn. Hvada heilvita madur selur eignir thjodarinnar i hendur barna og leifir svo børnunum ad setja samfelagid a hvinadndi kupuna? Thad er miklu betra fyrir thig brodir ad vidurkenna ad thetta hafi verid tilraun en alvara.

Einar Gunnarsson (IP-tala skráð) 8.10.2009 kl. 14:35

2 Smámynd: halkatla

Við erum "South Park norðursins" Kúba norðursins hefði verið miklu skárri

halkatla, 8.10.2009 kl. 14:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband