Flokkast 12-18 stiga frost ekki sem vorhret?

Er Helga Ívarsdóttir e.t.v. hjá Veðurstofu Reykjavíkur, sem ég hélt reyndar að væri ekki til, en ekki hjá Veðurstofu Íslands? Stundum virðast veðurfréttamenn halda að veðurfréttir og veðurspár séu eingöngu fyrir íbúa á SV-hluta landsins.

Myndin hér að neðan er frá Veðurstofu Íslands og sýnir spákort fyrir laugardagsmorgun á Austurlandi.

Untitled


mbl.is Ekkert hret í kortunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já oft er bara veður á höfuðborarsvæðinu ,en minna um það úti á landi.

Hilmar Pálsson (IP-tala skráð) 11.4.2012 kl. 08:38

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Já, verð að viðurkenna að ég tók ekkert eftir þessu fyrr en ég flutti sjálfur út á land 1989, en veðurfréttamenn eiga að vera meðvitaðir um þetta.

Gunnar Th. Gunnarsson, 11.4.2012 kl. 09:30

3 identicon

"Helga segir aðspurð að það spái frekar svölu veðri næstu daga á höfuðborgarsvæðinu en hins vegar verði úrkomulítið og frekar þurrt þannig að það sé ekkert í kortunum sem bendi til þess að búast megi við hreti á næstunni. Kaldara yrði hins vegar norðan- og austanlands."

Ég les það út úr þessu að Helga sé spurð um veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu og síðan alhæft af fréttamanni í titli fréttarinnar.

Síðan bætir hún við að kaldara verði hjá ykkur sem kjósið að hafa aðsetur á fáfarnari slóðum. Held þið ættuð heldur að gelta á fréttamanninn.

Freyr Gudmundsson (IP-tala skráð) 11.4.2012 kl. 10:19

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Það þætti stórfrétt ef spáin fyrir höfuðborgarsvæðið væri -12 til -18 stig um miðjan apríl.

 Þetta sér maður líka á sumrin. Ef hitinn fer yfir 15-16 stig með sólarglennu, þá er það "frétt" dagsins.

Gunnar Th. Gunnarsson, 11.4.2012 kl. 11:28

5 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Ég á eftir að sjá að það verði 14 stiga frost á Egilsstöðum. Sjálfvirka spáin sennilega eitthvað að ýkja. En svo gildir þessi spá snemma morguns áður en sólin kemur upp.

Emil Hannes Valgeirsson, 11.4.2012 kl. 12:11

6 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Já, ég hef svo sem ekki trú á þessari spá heldur

Gunnar Th. Gunnarsson, 11.4.2012 kl. 15:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband