Færsluflokkur: Bloggar
Þetta virðast múslimskir hryðjuverkamenn gera víða, þ.e. að skýla sér á bak við konur og börn þegar þeir gera árásir.
Þetta svínvirkar hjá þeim, því þeir fá mikla samúð frá mörgum Vesturlandabúum þegar þeir sýna myndir af þessu fólki dauðu og limlestu.
![]() |
Skýla sér bak við óbreytta borgara |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 17.2.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
![]() |
1800 milljarðar í uppbyggingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 16.2.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Systir mín þótti eilítið búttuð þegar hún var krakki og hafði henni einhverntíma verið strítt vegna þess, sennilega af eldri systkinum okkar. Hún var mikið hjá ömmu okkar og afa sem voru fædd á 19. öldinni.
Á árununum 1927-1944 áttu þau litla bújörð í Sogamýrinni, "Litluhlíð" þar sem nú eru gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar. Afi minn vann við skósmíðar á skóvinnustofu "í bænum", meðfram bústörfum en segja má að bústörfin hafi átt hug þeirra allan, gömlu hjónanna.
Systir mín komst því ekki hjá því að heyra þau tala oft um bústörf löngu eftir að þau brugðu búi í Litluhlíð og fluttu á "mölina" niður í Mávahlíð. Þá var að sjálfsögðu talað um lömb og annan búfénað sem "feit og falleg", ef þau voru vel haldin.
Eitt sinn heyrði hún fullorðið fólk tala um að tiltekin nágrannakona væri nú orðin ansi feit. Þá gellur í þeirri litlu, hróðugri á svipinn: "Já, og falleg!".
![]() |
Of þung strax við tveggja ára aldur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 16.2.2010 (breytt kl. 09:41) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)

![]() |
Flatlúsin í útrýmingarhættu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 13.2.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Skíðaparadísin í Oddsskarði er opin:
![]() |
Opið í Hlíðarfjalli og á Siglufirði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 13.2.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ef Bin Laden er "góðhjartaðastur" meðal samverkamanna sinna, hvernig eru þá hinir?
Bin Laden vildi senda syni sína í sjálfsmorðsárásir
![]() |
Félagar bin Ladens mun verri en hann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 12.2.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Í gær, þriðjudag, var logn, 7 stiga frost og svarta þoka á Reyðarfirði. Það er ekki mjög oft sem svona mikil þoka og svona mikið frost fara saman.
Þegar óvenjuleg veðurtilbrigði sýna sig, þá er gaman að grípa myndavél. Vart sést á milli húsa í þorpinu á bjartasta tíma dagsins, um klukkan eitt á hádegi.
Hrímið setttist á allt í umhverfinu
Sami trjágróður, hinu megin frá. Takið eftir hvernig hrímið sest bara öðru megin á broddfuruna. Örlítið grillir í heiðan austurhimininn, en svo læddist þokan að að nýju og sökum rakans í loftinu, nísti kuldinn fljótt að beini svo illa klæddur ljósmyndarinn flýtti sér inn í hlýjan bílinn.
Ef keyrt var inn í botn Reyðarfjarðar, upp brekkuna við Grænafellið áleiðis til Egilsstaða um Fagradal, þá fór maður skyndilega upp úr þokunni. Myndin er tekin af útsýnispallinum við Hryggsel í um 150 m. hæð yfir sjó. Horft er til suð-austurs, niður í botn Reyðarfjarðar.
Hausmyndin á blogginu er tekin af Eiði Ragnarssyni , úr fjallshíð handan þokunnar.
Hér er horft í hina áttina, í norð-vestur og við blasir Kistufell, hæsta fjall Austfjarða, vel á tólfta hundrað metra hátt. Glampandi sól í nokkurra kílómetra fjarlægð frá þorpinu
Á leiðinni til baka, inn í þokuna á ný, vöktu hrímuð stráin í vegkantinum athygli mína. Ég stoppaði og smellti af mynd
Stundum virtist sem "hann væri að rífa af sér", en það var tálsýn ein. Þokan hélst fram í myrkur. Á myndinni hér að ofan má sjá hrímað kjarrið við rætur Grænafells og Teigagerðistindur teygir sig upp úr þokunni.
Keyrt inn í þorpið aftur. Nokkur hundruð metrar í fyrstu mannvirkin... en engin sjást
Ég þurfti til Eskifjarðar í ökukennslu og við blasti þessi sjón þegar ég kom út úr beygjunni á nýja veginum um Hólmaháls. Ef ég man rétt þá er vegurinn þarna í um 120 m. hæð. Eskifjörður er klæddur hvítri sæng. Skugginn er ef Hólmatindi
Bloggar | 10.2.2010 (breytt 12.2.2010 kl. 00:34) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Bloggar | 10.2.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mig að forma má þér takast
Mjög í listum þú mig sérð
Harður verð ég við að bakast
Vísa sem er illa gerð
-----------------------
Hvað er verið að tala um hér?
Bloggar | 8.2.2010 (breytt kl. 17:17) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Ég man nú ekki ártalið nákvæmlega, en það var ca. 94-95 sem við á Snæfuglinum SU 20 frá Reyðarfirði, fórum í Barentshafið og kjaftfylltum allar frystigeymslur af þorskflökum, meira að segja frystiklefa kokksins.
Aldrei hafði verið komið með jafn mikið af frystum þorskflökum í land úr einni veiðiferð, en metið var bætt um nokkur tonn, viku síðar af togara sem var með okkur í "Smugunni".
Aflinn var fáránlega góður, en það tók aðeins 20 daga að fiska um 600 tonn. Eitt sinn þurfti að senda mann í öryggislínu í göngutúr út á pokann og hleypa úr honum, því hann komst ekki upp skutrennuna. Dauður þorskur flaut um allan sjó, sennilega um 20 tonn og það var ekki falleg sjón. Halið var 80-90 tonn eftir eins til tveggja tíma tog.
![]() |
Með metafla úr Barentshafi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 6.2.2010 (breytt kl. 17:03) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.6.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Virðing alþingis.
- Sami vandi, þitt er þannig, ljóð frá 23. október 2018.
- Bréfið
- AA samtökin 90 ára
- Trump ákveður að senda, Landgönguliða - til Los-Angeles! Kemur í kjölfar ákvörðunar sl. sunnudag, að senda hermenn úr Þjóðvarðarliði Bandar. til sömu borgar. Trump greinilega ætlar að tékka á, hversu langt hann kemst áður en dómstólar stoppa hann!
- Hvers vegna galið að bólusetja gegn flensu og RSV - Halda ekki vatni!
- Lögleiðir Ísland misrétti sem Hæstiréttur USA hefur dæmt ólöglegt ...
- Viðurnefnastjórnin
- Óeirðir eða friðsöm mótmæli - hver er markalínan?
- Tíska : Hátíðarklæðnaður fyrir þá yngri